Lífið

Lék langafa og löggu

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
 „Oft þegar ég fór í bíl fram hjá leikhúsunum spurði ég hvenær ég yrði nógu stór til að mega fara í prufur.“
„Oft þegar ég fór í bíl fram hjá leikhúsunum spurði ég hvenær ég yrði nógu stór til að mega fara í prufur.“ Fréttablaðið/Valli
Hvaða auglýsingum hefur þú leikið í? „Ég hef leikið í nokkuð mörgum. Í sumar var ég í auglýsingu fyrir Flugfélag Íslands. Hún var tekin upp á Ísafirði og í flugskýli við Reykjavíkurflugvöll. Það var kalt þegar við vorum að taka upp atriði þar sem ég hleyp út úr flugvélinni en mér var sama, mér fannst þetta æðislega gaman.

Síðast lék ég í sjónvarpsauglýsingu fyrir UNICEF, þar sem við áttum að leika börn í flóttamannabúðum. Einu sinni lék ég í útvarpsauglýsingu fyrir Olís og svo hef ég leikið í nokkrum auglýsingum fyrir blöð.“



En leikritum? „Já, ég lék í Óvitunum sem var sýnt í Þjóðleikhúsinu í fyrravetur. Þar lék ég langafa sem var orðinn elliær og svolítið ringlaður en mikill áhugamaður um Jónas frá Hriflu, löggu og kaffikerlingu.

Síðasta vetur lék ég líka í Fólkinu í blokkinni, þar sem ég var afmælisgestur í fyrsta þættinum.“



Hver eru helstu áhugamálin þín? „Mín helstu áhugamál eru leiklist og fótbolti.“



Í hvaða skóla ertu? „Ég er í 4. bekk í Vesturbæjarskóla.“



Ertu í aukatímum? „Ég æfi fótbolta með KR og er í Sönglist þar sem ég læri bæði söng og leik, hef líka verið í Leynileikhúsinu.“



Hvað finnst þér skemmtilegast að gera? „Mér finnst ekkert skemmtilegra en að leika og spila fótbolta. Ég er oftast úti með vinum mínum í fótbolta.“



Hjálpar þú stundum til á heimilinu? „Stundum hjálpa ég til við að passa Daníel, litla bróður minn, sem er fimm ára.“



Hvað langar þig að verða þegar þú verður stór? „Mig langar eiginlega bara að leika.“



Er langt síðan þú lést þig dreyma um það? „Já, ég var þriggja ára þegar mig fór að dreyma um leiklist. Þá fór ég á opið hús í Borgarleikhúsinu. Á sama tíma var frændi minn að leika í Þjóðleikhúsinu og hann bauð mér baksviðs og upp á þak.



Oft þegar ég fór í bíl fram hjá leikhúsunum spurði ég hvenær ég yrði nógu stór til að mega að fara í prufur. Síðan rættist draumurinn þegar ég lék á stóra sviði Þjóðleikhússins fyrir fullum sal.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×