"Kærleikur einskorðast ekki við trúarbrögð“ Hjörtur Hjartarson skrifar 3. janúar 2014 19:00
Brynjar Níelsson, þingmaður Alþingismaðurinn, Brynjar Níelsson segir að kristin trú þurfi að standa af sér ófrægingarherferð. Hann óttast að afkristnun íslensku þjóðarinnar muni stuðla að upplausn samfélagsins og afmenningu þess. Stjórnarmaður hjá Siðmennt segir rangt að einskorða kærleika við trúarbrögð. Brynjar var með ræðu í messu í Seltjarnarneskirkju á nýársdag þar sem þetta kom meðal annars fram. Þar segir Brynjar jafnframt að fækkun undanfarinna ára í þjóðkirkjunni megi helst rekja til rægingaherferðar sem trúin, kirkjan og kristileg gildi verða fyrir. "Þegar menn hafa stofnað félagsskap þar sem beinlínis er talað um kristna trú sem blekkingu og hindurvitni. Það er auðvitað að rægja, það er ekki mikil virðing borin fyrir fólki sem trúir, kristnu fólki," segir Brynjar. Sigurður Hólm Gunnarsson hjá Siðmennt gefur hinsvegar lítið fyrir þessi orð Brynjars sem hann segir á villigötum. "Ég berst ekki gegn kristinni trú, alls ekki. Ég berst fyrir samfélagi þar sem er umburðarlyndi gagnvart ólíkum lífsskoðunum. Ég berst fyrir veraldlegu samfélagi þar sem hið opinbera skiptir sér ekki af því með beinum hætti hverrar trúar eða hvaða lífsskoðun ég hef," segir Sigurður.Í stórri alþjóðlegri könnun á trúrækni þjóða kemur fram að Ísland er í níunda sæti yfir trúlausustu þjóðir heims. Kína, Japan og Tékkland skipa þrjú efstu sætin. Trúuðustu þjóðir heims eru Ghana, Nígería og Armenía. Þá kemur einnig fram í könnunni að þeim Íslendingum sem telja sig trúaða hefur fækkað úr 74 prósentum, 2005 í 57 prósent 2012. Þróunin er afgerandi. "Ef við hættum að kenna þetta, trúa þessum gildum, þá mun það auðvitað hafa áhrif á íslenskt samfélag. Það gerist ekkert að sjálfu sér," segir Brynjar. Þessu er Sigurður ósammála. Hann segir að kærleikur og manngildi ekki einskorðast við trúarbrögð, hvorki kristin né önnur. "Siðferði hefur ekkert með trú að gera. Siðferði fjallar um hvernig við hugsum um náungann, hvernig við hegðum okkur gagnvart náunganum og það er algjörlega óháð trúarbrögðum." Brynjar segir að spyrna verði við fótum til að koma í veg fyrir að kristinfræði verði hornreka í menntun Íslendinga. Hann hefur ekki ákveðið hvort hann hyggst beita sér fyrir málinu innan veggja Alþingis. Kristilegu gildin verði hinsvegar að vera í hávegum höfð. "Þetta er hluti af okkar kristilegu arfleið og ætla að fara að þynna þetta út eða eyða þessu út úr skólakerfinu gæti verið mjög óheillavænleg þróun."
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda Innlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Innlent NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Erlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Fleiri fréttir Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Sjá meira