Hláturinn gleður og eflir frið á milli manna Friðrika Benónýsdóttir skrifar 3. maí 2014 13:00 „Ég hætti sjálf að hlæja strax sem krakki vegna þess að hinir krakkarnir hlógu alltaf að því hvernig ég hló,“ segir Ásta. Vísir/Daníel
Fyrsti sunnudagur í maí er alþjóðlegur hláturdagur. Hann er haldinn hátíðlegur í um sjötíu löndum, þar með talið á Íslandi. Upphafsmaður hláturjógahreyfingarinnar er indverski læknirinn dr. Madan Kataria. Hann stofnaði fyrsta hláturklúbbinn árið 1995 ásamt konu sinni Madhuri. „Hann trúir því að það sé hægt að efla frið á milli manna í heiminum með því að fólk hlæi saman og gleðjist saman á þessum degi,“ segir Ásta Valdimarsdóttir hláturjógakennari, sem hefur veg og vanda af framkvæmd hláturdagsins hér á landi. Í Reykjavík er haldið upp á daginn með hlátursamkomu í Laugardalnum og hefst hún samkvæmt venju klukkan 13 við gömlu þvottalaugarnar. „Ég byrjaði með þetta fyrir rúmum tíu árum,“ segir Ásta. „Síðustu árin höfum við verið inni í Laugardal. Við byrjuðum á því að hafa þetta hláturgöngu en svo kom í ljós að margir sem mæta eiga erfitt með gang en hafa ákaflega gaman af því að taka þátt í þessu með okkur þannig að við höldum núorðið kyrru fyrir og hlæjum og gerum hláturæfingar.“ Ásta segist vel vita að margir hafi efasemdir um gildi hláturjógans, það hafi hún líka haft sjálf í upphafi. „Ég bjó úti í Noregi um tíma og sá auglýsingu um námskeið í hláturjóga í blaði. Mér fannst þetta voðalega asnalegt fyrst og hætti meira að segja við að mæta á fyrsta námskeiðið sem ég skráði mig á. Svo heyrði ég viðtal við konuna sem var með þessi námskeið og það höfðaði sterkt til mín. Ég hætti sjálf að hlæja strax sem krakki vegna þess að hinir krakkarnir hlógu alltaf að því hvernig ég hló. Hobbýið mitt hefur lengi verið að syngja og þegar ég fór í söngnám var mér sagt að ef ég gæti ekki hlegið þá gæti ég aldrei sungið. Þannig að ég sótti aftur um, fór á námskeiðið og hef aldrei séð eftir því.“ Ásta segir hláturjógað sífellt vera að sækja í sig veðrið og nú séu margir jógakennarar og íþróttakennarar farnir að benda nemendum sínum á hvað það sé gott og hollt að hlæja. „Þannig að umræðan í þjóðfélaginu er alltaf að aukast.“ Grundvöllurinn í hláturjóganu er að kalla fram barnslega gleði, að sögn Ástu, og endurupplifa þá tilfinningu barnsins að geta hlegið að öllu. „Það finnst mörgum það asnalegt að eiga að hlæja eftir pöntun og eiga erfitt með að trúa hversu auðvelt það er. Um leið og sú stemning er komin á að allir ætla sér að hlæja þá gengur það miklu betur og það hefur sýnt sig að um leið og þú ferð að hlæja þá verða alls konar góð viðbrögð í líkamanum.“ Ásta segir alla velkomna í Laugardalinn á morgun og að undanfarin ár hafi margir mætt með börnin sín og jafnvel hunda, sem sé virkilega skemmtilegt. „Ég hvet fólk eindregið til að koma og kynna sér þetta,“ segir hún. „Það gæti komið því verulega á óvart hversu mikla vellíðan hláturinn vekur.“
Mest lesið Sat uppi með sex kíló af kæstri skötu Lífið Jólagjafir íslenskra vinnustaða Lífið Óléttan uppgötvaðist þremur dögum fyrir byrjun skólans Menning Segir son sinn ekki hafa þurft að deyja Lífið „Fyrri kona mannsins míns er með Parkinson, ekki ég“ Áskorun Þessi smurðu mest á reikning Jommunnar Lífið Seinfeld og Friends-leikari látinn Lífið Kristmundur Axel tók við af Bubba Lífið Michelle Trachtenberg er látin Lífið Missti höndina viku fyrir sextán ára afmælisdaginn Lífið Fleiri fréttir Sat uppi með sex kíló af kæstri skötu Kristmundur Axel tók við af Bubba Seinfeld og Friends-leikari látinn Jólagjafir íslenskra vinnustaða Deildar meiningar um lyktina: „Þetta er byrjendaskata“ Fréttamenn gæða sér á skötu í gegnum árin Laufey á landinu Þar sem vinsælustu lög landsins verða til Þessi smurðu mest á reikning Jommunnar Einhverfir kaþólikkar um allan heim heita Þorlákur Cooper bað móðurina um hönd Hadid „Mér finnst gaman að láta sjokkera mig“ Brúðkaup ársins 2025 Heitt í hamsi hjá gestum á „helvíti á jörðu“ í Breiðholti Chris Rea hefur ekið heim um jólin í síðasta skipti Saga jarðaði alla við borðið Vísa ásökunum Skinner um kosningasvindl á bug Kimmel ávarpar bresku þjóðina: Frábært ár fyrir fasisma „Ég hugsa til þín á hverjum einasta degi“ Stjörnulífið: Óskar tíkunum gleðilegra jóla Veikindi eyðilögðu líka stóru stund Manúelu Hefur misst vini og kunningja vegna skoðana sinna Leitin á Svínafellsjökli sem hefur enn ekki skilað árangri Krakkatía vikunnar: Ísskápastríð, Eivör og Grafarvogur „Við byrjuðum að hlusta á jólalög í júlí“ Frægir fundu ástina 2025 Íslenska stelpan sem gerðist mormóni Fréttatía vikunnar: Rob Reiner, Dóra Björt og fullir unglingar 500 Esjuferðir á árinu: „Sumir hrista bara hausinn og lygna augunum“ Útgefandi Walliams lætur hann róa Sjá meira