Tannlæknir lætur reyna á auglýsingabann Brjánn Jónasson skrifar 2. maí 2014 07:00 Lítið hefur verið um auglýsingar fyrir þjónustu tannlækna eða annarra heilbrigðisstarfsmanna, enda hafa slíkar auglýsingar verið bannaðar að mestu þar til nýlega. Fréttablaðið/Vilhelm
Engin reglugerð hefur verið sett um auglýsingar lækna og annarra heilbrigðisstarfsmanna rúmu ári eftir að ný lög um heilbrigðisstarfsmenn tóku gildi. Tannlæknir sem auglýsir á netinu segir eðlilegt að auglýsa þjónustu sína. „Ég lét lögfræðing kíkja á lögin fyrir mig og hann vill meina að lögin um þetta séu mjög loðin. Þess vegna lét ég slag standa og prófaði þetta til að sjá hvað gerist,“ segir Daði Hrafnkelsson tannlæknir. Hann hefur auglýst á netinu í gegnum Google-auglýsingasöluna með látlausum texta þar sem vakin er athygli á heimasíðu hans. Þá segir í auglýsingunni: „Mikil gæði fyrir sanngjarnt verð. Föst verðtilboð.“ Daði segir lög sem banni nær alfarið auglýsingar tannlækna barn síns tíma. „Mér finnst þetta óskiljanlegt.“ Hann starfar í Danmörku en kemur hingað til lands nokkrum sinnum á ári til að sinna skurðaðgerðum í munni. Hann segir umhverfi tannlækna í Dannmörku allt annað. Þar tíðkist að sjúklingar fái tilboð hjá nokkrum tannlæknum fyrir meiriháttar aðgerðir. Þar með sé meiri samkeppni sem neytendur njóti góðs af. Hingað til hefur lítið farið fyrir auglýsingum lækna og annars heilbrigðisstarfsfólks. Læknum var lengst af bannað með öllu að auglýsa, nema til að vekja athygli á nýrri læknastofu eða breyttu heimilisfangi. Með nýjum lögum um heilbrigðisstarfsmenn sem tóku gildi í byrjun síðasta árs voru þau ákvæði felld úr gildi. Í lögunum segir aðeins að ráðherra muni setja reglugerð um auglýsingar, en það hefur enn ekki verið gert, sextán mánuðum eftir að lögin tóku gildi. Geir Gunnlaugsson landlæknir segir að mörgum hafi þótt fyrri reglur of þröngar. „Það er ákveðinn vilji til að rýmka möguleika einstaklinga sem eru í rekstri og bjóða heilbrigðisþjónustu að auglýsa sína þjónustu. Það er hluti af því að neytandinn geti tekið upplýsta ákvörðun.“ Hann segir að þrátt fyrir að engin reglugerð hafi verið sett um auglýsingar lækna geti þeir ekki auglýst eins og þeim sýnist. „Ég held að menn þurfi almennt að halda sig innan þess ramma sem hefur skapast um þetta. Þetta er ekki eins og hver önnur vara, það verður að vera einhver rammi,“ segir Geir.Kristín HeimisdóttirAuglýsingar á gráu svæði Kristín Heimisdóttir, formaður Tannlæknafélags Íslands, segir í raun ekkert banna auglýsingar á læknaþjónustu. Í siðareglum tannlækna segir að ekki megi reyna að afla sér viðskipta með „óviðeigandi auglýsingum, skrumi eða á annan ósæmilegan hátt“. Hún segir auglýsingar Daða Hrafnkelssonar tannlæknis á mörkunum, þar sem hann geri sérstaklega út á skurðaðgerðir þrátt fyrir að vera ekki sérmenntaður á því sviði. „Ég myndi telja þetta á gráu svæði,“ segir Kristín. Hún segir það sína persónulegu skoðun að fara þurfi varlega í að opna fyrir auglýsingar í heilbrigðisþjónustu. „Allar auglýsingar kosta, og þeir sem auglýsa þurfa að velta þeim kostnaði á sjúklinginn. Þess vegna er ekki gott að menn séu að kaupa auglýsingar sem kosta mikið fé.“
Mest lesið Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Innlent Fleiri fréttir Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Öll hin látnu um og undir tvítugu „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Sjá meira