Flottustu tónleikamyndir ársins Gunnar Leó Pálsson skrifar 28. apríl 2014 09:00 Hljómsveitin Skálmöld komst í myndaalbúm á hinni virtu síðu Rolling Stone undir yfirskriftinni, Flottustu tónleikamyndir ársins. Mynd/matthew eisman „
Þetta er gríðarlega hressandi og það er ekki leiðinlegt að vera í svona flottum hópi listamanna,“ segir Baldur Ragnarsson, gítarleikari Skálmaldar, en hljómsveitin minnti heldur betur á sig á vefsíðu bandaríska tímaritsins Rolling Stone fyrir skömmu, þegar tímaritið birti myndaalbúm á vefsíðu sinni undir yfirskriftinni Flottustu tónleikamyndir ársins en þar á meðal voru okkar menn í Skálmöld. Að vísu er Baldur aðalpersóna myndarinnar – eru hinir meðlimirnir ekkert öfundsjúkir? „Nei, nei, Þeir hljóta að fagna því að geta djöflast aðeins í mér,“ segir Baldur léttur í lundu. Myndin er tekin í Borgarleikhúsinu í Reykjavík þann 23. apríl síðastliðinn en þar hefur sveitin komið fram að undanförnu í sýningunni Baldri en sýningin er byggð á plötunni Baldri sem Skálmöld sendi frá sér árið 2010. Í sama myndaalbúmi má finna marga af þekktustu tónlistarmönnum heimsins eins og Damon Albarn, Boy George, Kings of Leon, Shakiru, Arcade Fire og marga fleiri. „Það er gaman að sjá að sýningin vekur athygli utan landsteinanna.“ Vissu meðlimir Skálmaldar af þessu? „Ljósmyndarinn, Matthew Eisman sem tók myndina sagðist vera að taka myndir fyrir erlent tímarit en sagði okkur ekki nafnið. Hann var fínn náungi og mikill fagmaður en hann hvarf svo bara og við vissum ekki meira fyrr en við sáum þetta á netinu,“ bætir Baldur við.
Mest lesið Tólf barna móðir selur sveitadraum á Selfossi Lífið Stjörnuleikur Góa og Unnar bjargar Höggi Gagnrýni Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Lífið Góðgerðartreyja til styrktar Ingvari hönnuð af 66° Norður Tíska og hönnun Eignaðist barn, missti ömmu sína og erfði púðlusafnið Menning Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Lífið Ranglega greind með MS-sjúkdóm Lífið Tímamót hjá Árna Má Menning Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Lífið Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Lífið Fleiri fréttir Tólf barna móðir selur sveitadraum á Selfossi Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Sjá meira