Leikskólakennaranám – Öruggt framtíðarstarf Jóhanna Einarsdóttir skrifar 24. apríl 2014 07:00 Leikskólastigið er fyrsta skólastigið í skólakerfinu. Þar fer fram nám sem m.a. leggur grunn að námi á öðrum skólastigum. Auknar kröfur eru nú gerðar til leikskólakennara og fer kennslan fram við Menntavísindasvið Háskóla Íslands og Háskólann á Akureyri. Um þessar mundir standa þessar menntastofnanir, auk mennta- og menningarmálaráðuneytisins, Kennarasambands Íslands og Sambands íslenskra sveitarfélaga, fyrir kynningarátaki með það að markmiði að fjölga vel menntuðum og hæfum leikskólakennurum. Í átakinu sem hlotið hefur heitið „Framtíðarstarfið“ er leitast við að sýna starfið í raunsæju ljósi með stuttum myndböndum og viðtölum við leikskólakennara og nemendur. Auk þess verður ítarlegt fræðsluefni um starfið aðgengilegt á vefsíðunni www.framtidarstarfid.is.Menntun leikskólakennara Nám kennara á öllum skólastigum er nú fimm ár skv. lögum frá 2008. Við Menntavísindasvið Háskóla Íslands (MVS) er boðið upp á nokkrar leiðir til að stunda leikskólakennaranám. Fyrstu nemendur í nýju fimm ára meistaranámi verða brautskráðir nú í vor. Nú geta einnig þeir sem lokið hafa B.A.-, B.Ed.- eða B.S.-prófi í öðrum greinum bætt við sig tveimur árum á meistarastigi og fengið réttindi sem leikskólakennarar. Síðastliðið haust var á vegum MVS lögð fyrir könnun meðal starfsfólks leikskóla og nemenda í framhaldsskólum, þar sem áhugi þeirra á leikskólakennaranámi var kannaður og þeir spurðir að því hvaða þættir hefðu áhrif á námsvalið. Í ljós kom mikill áhugi á stuttu hagnýtu námi. Brugðist hefur verið við þessum niðurstöðum og settar á fót styttri námsleiðir við sviðið. Leikskólakennaranáminu má nú einnig ljúka í ákveðnum þrepum. Hægt er að ljúka tveggja ára diplómanámi eða þriggja ára B.Ed.-námi í leikskólafræði og byggja ofan á það nám þegar hverjum og einum hentar. Af hverju ætti fólk að sækjast eftir því að gerast leikskólakennarar? Leikskólakennarar hafa möguleika á að hafa veruleg áhrif á framtíð einstaklinga. Samfélagsleg áhrif þeirra eru mikil. Námið býður upp á möguleika á framtíðarstarfi þar sem atvinnuleysi þekkist ekki. Nú vantar um 1.300 leikskólakennara á landinu. Starfið er fjölbreytt og skapandi. Enginn dagur í vinnunni er eins. Leikskólakennaranámið er sveigjanlegt og áhugavert. Nemendur geta stundað námið í fjarnámi, staðnámi eða hvoru tveggja. Í leikskólakennaranámi býðst tækifæri til að taka þátt í rannsóknum á leikskólastiginu og þannig hafa áhrif á viðhorf og stefnumótun í málefnum barna. Líðan barna og nám í leikskóla getur skipt sköpum fyrir framtíð þeirra. Það er því nauðsynlegt að til starfa í leikskólum veljist vel menntað og hæft fólk. Samfélag okkar hefur ekki efni á öðru. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Ísland verðleggur sig út af markaði Diljá Matthíasardóttir Skoðun 27 milljónir á mann (14.500 milljarðar) Tryggvi Hjaltason Skoðun Gervigreindin bíður ekki eftir Alþingi - opnum aithingi.is Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir,Rafn Steingrímsson Skoðun Opið bréf til formanns utanríkismálanefndar Haukur Arnþórsson Skoðun Uppskrift að stéttskiptu samfélagi og vonleysi Davíð Bergmann Skoðun Hvað ég fór smám saman að skilja um Sjálfstæðisflokkinn Valerio Gargiulo Skoðun Ör í borgarmyndinni: Hvers konar borg vill Reykjavík vera? Ásta Olga Magnúsdóttir,Egill Sæbjörnsson,Páll Jakob Líndal,Rafael Campos de Pinho Skoðun Gervigreind í skólum: Svindl er ekki stóra spurningin Helgi S. Karlsson Skoðun Langhundur Kristins Hrafnssonar ritrýndur Páll Steingrímsson Skoðun Framþróun í tónlistarnámi á háskólastigi á Íslandi Pétur Jónasson Skoðun Skoðun Skoðun Staðan í viðræðum Bandaríkjanna og Grænlands Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Nú er tækifærið - vinnum saman að betri grunnskóla Hólmfríður Arna Þórisdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin bíður ekki eftir Alþingi - opnum aithingi.is Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir,Rafn Steingrímsson skrifar Skoðun 27 milljónir á mann (14.500 milljarðar) Tryggvi Hjaltason skrifar Skoðun Opið bréf til formanns utanríkismálanefndar Haukur Arnþórsson skrifar Skoðun Spurningunni breytt – en ekki forsendunum Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Uppskrift að stéttskiptu samfélagi og vonleysi Davíð Bergmann skrifar Skoðun Eyjar í óvissu á meðan ráðherra bíður eftir haustinu Jóhann Ingi óskarsson skrifar Skoðun Ísland verðleggur sig út af markaði Diljá Matthíasardóttir skrifar Skoðun Framþróun í tónlistarnámi á háskólastigi á Íslandi Pétur Jónasson skrifar Skoðun Höfum við kjark til að gefa fólki tækifæri? Jónas Ingi Jónasson skrifar Skoðun Gervigreind í skólum: Svindl er ekki stóra spurningin Helgi S. Karlsson skrifar Skoðun Samræmd próf: Fyrir hvern? Grétar Birgisson skrifar Skoðun Frábær fjöl eða fúin? Svava Pétursdóttir skrifar Skoðun Höfrungahlaup Seðlabanka Íslands Örn Karlsson skrifar Skoðun Jafnréttislög í 50 ár Martha Lilja Olsen skrifar Skoðun Ísland 2.0 Magnús Árni Skjöld Magnússon skrifar Skoðun Fjölbreytt skólastarf í litlum skóla Guðmundur FInnbogason skrifar Skoðun Ör í borgarmyndinni: Hvers konar borg vill Reykjavík vera? Ásta Olga Magnúsdóttir,Egill Sæbjörnsson,Páll Jakob Líndal,Rafael Campos de Pinho skrifar Skoðun Gaslýsingar ráðherra Ingibjörg Einarsdóttir skrifar Skoðun Langhundur Kristins Hrafnssonar ritrýndur Páll Steingrímsson skrifar Skoðun Hvað ég fór smám saman að skilja um Sjálfstæðisflokkinn Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Mikil og ör fjölgun í hópi ökukennara ár eftir ár. Hver er ávinningurinn? Þuríður B. Ægisdóttir skrifar Skoðun Atvinnuvegaráðherra taki fram fyrir hendur Hafró Finnbogi Vikar Guðmundsson skrifar Skoðun Alþjóðasamstarf er Íslendingum lífsnauðsynlegt Haraldur Ólafsson skrifar Skoðun Hvernig samfélag má bjóða þér? Ingileif Friðriksdóttir skrifar Skoðun Nú er ábyrgðin þín kæri sveitarstjórnarmaður Jóhannes Þór Skúlason skrifar Skoðun Í ljósi sögunnar - Hugleiðing eftir kosningar Ámundi Loftsson skrifar Skoðun Um sveitarstjórnarkosningar, siðferðilega dofnun og brothætt eðli réttinda Inga Henriksen skrifar Skoðun Samfélagið eftir kosningar Sigurður Árni Reynisson skrifar Sjá meira
Leikskólastigið er fyrsta skólastigið í skólakerfinu. Þar fer fram nám sem m.a. leggur grunn að námi á öðrum skólastigum. Auknar kröfur eru nú gerðar til leikskólakennara og fer kennslan fram við Menntavísindasvið Háskóla Íslands og Háskólann á Akureyri. Um þessar mundir standa þessar menntastofnanir, auk mennta- og menningarmálaráðuneytisins, Kennarasambands Íslands og Sambands íslenskra sveitarfélaga, fyrir kynningarátaki með það að markmiði að fjölga vel menntuðum og hæfum leikskólakennurum. Í átakinu sem hlotið hefur heitið „Framtíðarstarfið“ er leitast við að sýna starfið í raunsæju ljósi með stuttum myndböndum og viðtölum við leikskólakennara og nemendur. Auk þess verður ítarlegt fræðsluefni um starfið aðgengilegt á vefsíðunni www.framtidarstarfid.is.Menntun leikskólakennara Nám kennara á öllum skólastigum er nú fimm ár skv. lögum frá 2008. Við Menntavísindasvið Háskóla Íslands (MVS) er boðið upp á nokkrar leiðir til að stunda leikskólakennaranám. Fyrstu nemendur í nýju fimm ára meistaranámi verða brautskráðir nú í vor. Nú geta einnig þeir sem lokið hafa B.A.-, B.Ed.- eða B.S.-prófi í öðrum greinum bætt við sig tveimur árum á meistarastigi og fengið réttindi sem leikskólakennarar. Síðastliðið haust var á vegum MVS lögð fyrir könnun meðal starfsfólks leikskóla og nemenda í framhaldsskólum, þar sem áhugi þeirra á leikskólakennaranámi var kannaður og þeir spurðir að því hvaða þættir hefðu áhrif á námsvalið. Í ljós kom mikill áhugi á stuttu hagnýtu námi. Brugðist hefur verið við þessum niðurstöðum og settar á fót styttri námsleiðir við sviðið. Leikskólakennaranáminu má nú einnig ljúka í ákveðnum þrepum. Hægt er að ljúka tveggja ára diplómanámi eða þriggja ára B.Ed.-námi í leikskólafræði og byggja ofan á það nám þegar hverjum og einum hentar. Af hverju ætti fólk að sækjast eftir því að gerast leikskólakennarar? Leikskólakennarar hafa möguleika á að hafa veruleg áhrif á framtíð einstaklinga. Samfélagsleg áhrif þeirra eru mikil. Námið býður upp á möguleika á framtíðarstarfi þar sem atvinnuleysi þekkist ekki. Nú vantar um 1.300 leikskólakennara á landinu. Starfið er fjölbreytt og skapandi. Enginn dagur í vinnunni er eins. Leikskólakennaranámið er sveigjanlegt og áhugavert. Nemendur geta stundað námið í fjarnámi, staðnámi eða hvoru tveggja. Í leikskólakennaranámi býðst tækifæri til að taka þátt í rannsóknum á leikskólastiginu og þannig hafa áhrif á viðhorf og stefnumótun í málefnum barna. Líðan barna og nám í leikskóla getur skipt sköpum fyrir framtíð þeirra. Það er því nauðsynlegt að til starfa í leikskólum veljist vel menntað og hæft fólk. Samfélag okkar hefur ekki efni á öðru.
Gervigreindin bíður ekki eftir Alþingi - opnum aithingi.is Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir,Rafn Steingrímsson Skoðun
Ör í borgarmyndinni: Hvers konar borg vill Reykjavík vera? Ásta Olga Magnúsdóttir,Egill Sæbjörnsson,Páll Jakob Líndal,Rafael Campos de Pinho Skoðun
Skoðun Gervigreindin bíður ekki eftir Alþingi - opnum aithingi.is Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir,Rafn Steingrímsson skrifar
Skoðun Ör í borgarmyndinni: Hvers konar borg vill Reykjavík vera? Ásta Olga Magnúsdóttir,Egill Sæbjörnsson,Páll Jakob Líndal,Rafael Campos de Pinho skrifar
Skoðun Mikil og ör fjölgun í hópi ökukennara ár eftir ár. Hver er ávinningurinn? Þuríður B. Ægisdóttir skrifar
Skoðun Um sveitarstjórnarkosningar, siðferðilega dofnun og brothætt eðli réttinda Inga Henriksen skrifar
Gervigreindin bíður ekki eftir Alþingi - opnum aithingi.is Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir,Rafn Steingrímsson Skoðun
Ör í borgarmyndinni: Hvers konar borg vill Reykjavík vera? Ásta Olga Magnúsdóttir,Egill Sæbjörnsson,Páll Jakob Líndal,Rafael Campos de Pinho Skoðun