Lífið

Hlustar á Taylor Swift

Lena Dunham er aðdáandi Taylor Swift.
Lena Dunham er aðdáandi Taylor Swift. Vísir/Gettyimages
Leikkonan, rithöfundurinn og leikstjórinn Lena Dunham hlustar á tónlist með söngkonunni Taylor Swift þegar hún skrifar handritið að sjónvarpsþáttunum vinsælu, Girls.

Dunham segist fá innblástur yfir lögum Swift sem flest fjalla um ástina svo ekki sé minnst á ástarsorgina.

„Hún semur um sín eigin örlög á óvenjulegan máta, sérstaklega fyrir unga konu í tónlistaheiminum. Ég skrifaði mest alla þriðju seríu á meðan ég hlustaði á plötuna Red og fyrri helming fyrstu seríu hlustandi á Speak Now-plötuna.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×