Fegurðardrottning gerir góðverk með skólafélögunum Marín Manda skrifar 24. mars 2014 15:00 Tanja Ýr Ástþórsdóttir og Aníta Brá Ingvadóttir.
Tanja Ýr Ástþórsdóttir, formaður Góðgerðarnefndar, hvetur fólk til að gera góðverk í þessari viku þegar Stúdentafélag Háskólans í Reykjavík heldur Góðgerðarviku í fyrsta sinn. Stúdentafélag Háskólans í Reykjavík stofnaði Góðgerðarnefnd í febrúar síðastliðnum og er tilgangur nefndarinnar að sjá um góðgerðarmál tengd Stúdentafélaginu og standa vörð um góðgerðarviku Háskólans sem haldin er í fyrsta sinn í þessari viku en mun verða árlegur viðburður hér eftir. „Við munum standa að hinum ýmsu fjáröflunum og uppákomum í skólanum þessa vikuna og verðum með bingó, happdrættismiðasölu og kökubás en einnig verður boðið upp á tónlistaratriði í skólanum. Aðalatriðið er bara að hafa gaman af þessu,“ segir Tanja Ýr Ástþórsdóttir, formaður Góðgerðarnefndar Stúdentafélags Háskólans í Reykjavík. Hún segir þessa viku fyrst og fremst vera til þess að vekja athygli á að fólk sýni umhyggju og vert sé að hvetja almenning til að axla samfélagslega ábyrgð og styrkja gott málefni. „Það að gera góðverk er eitt það besta sem maður getur gert. Að sýna kærleik og hlýhug er eitthvað sem ætlast er til af okkur öllum. Okkur fannst umhyggja vera verðugt málefni til að styrkja í fyrstu góðgerðarviku Stúdentafélags Háskólans í Reykjavík og þannig stuðla að bættum hag barna og foreldra þeirra. Það eru allir velkomnir til þátttöku, bæði nemendur HR sem og allir aðrir þótt þetta sé haldið innan veggja HR. Við vonumst að sjálfsögðu til þess að allir leggi sitt af mörkum. Margt smátt gerir eitt stórt.“ Tanja Ýr er fegurðardrottning Íslands og stundar hugbúnaðarverkfræðinám við Háskólann í Reykjavík. Hún hefur haft mikinn áhuga á góðgerðarmálum og var því boðið að verða formaður Góðgerðarnefndarinnar en ásamt henni eru í nefndinni Maren Sól Benediktsdóttir varaformaður, Auður Elísabet Guðrúnardóttir og Ásta Katrín Gestsdóttir.
Mest lesið Síminn stoppar ekki vegna heimildarmyndar Bíó og sjónvarp „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Lífið Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Lífið Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Lífið Færsluóður miðaldra höfundur: „Ég man ekki eftir að hafa gengið í þessar grúppur“ Lífið Tólf barna móðir selur sveitadraum Lífið Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Lífið White Lotus-stjarna bætist í leikhópinn Bíó og sjónvarp Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Lífið Kempa leikstýrir tálbeitutrylli Ólafs Darra Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Færsluóður miðaldra höfundur: „Ég man ekki eftir að hafa gengið í þessar grúppur“ „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Tólf barna móðir selur sveitadraum Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Sjá meira