Mælir ekki með að gera tilraunir í bílnum Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar 22. mars 2014 09:00 Uppátækjasamur Ævar. Mynd/Ólöf Erla Einarsdóttir „
Þetta er mikill og skemmtilegur doðrantur. Fullkominn ferðafélagi,“ segir leikarinn og vísindamaðurinn Ævar Þór Benediktsson. Ný bók eftir hann, Umhverfis Ísland í 30 tilraunum, kemur út í maí. Margir þekkja Ævar örugglega úr þáttunum Ævar vísindamaður á RÚV en síðasti þátturinn fer í loftið í kvöld. „Í bókinni er stoppað á þrjátíu stöðum á Íslandi þar sem ég segi frá skemmtilegum staðreyndum um staðinn, meðal annars með vísan í þjóðsögur og Íslendingasögurnar. Á hverjum stað er framkvæmd tilraun sem tengist staðnum en hægt er að gera allar tilraunirnar heima líka. Það á samt helst ekki að framkvæma þær inní bílnum. Ég mæli með því að sleppa því,“ segir Ævar sem gaf út bókina Glósubók Ævars vísindmanns árið 2011 sem vakti mikla lukku og er uppseld hjá útgefanda. „Ég byggi bókina að stórum hluta á eigin reynslu,“ segir Ævar. Í sjónvarpsþætti sínum hvetur hann ungmenni til að senda sér póst og hefur ekki staðið á því. „Ég reyni að svara öllum og því gengur það hægt. Viðbrögðin frá krökkunum hafa verið stórkostleg og ég gæti verið í fullri vinnu við að svara spurningum þeirra. Ég vanda mig mikið því ég vil svara öllum vel og rétt. Krakkarnir spyrja mikið út í það hvernig snjallsímar virka, út í líkamann, heilann og hvað er inní okkur. Svo fékk ég til dæmis bón um daginn sem hljóðaði einfaldlega svona: Geturðu hjálpað mér að finna upp tæki sem hjálpar mömmu að vera minna þreytt,“ segir Ævar sem er því í miklu ábyrgðarhlutverki. „Ég tek þetta hlutverk mjög alvarlega. Ég hef einnig fengið bréf frá foreldrum þar sem þau segja mér að börnin séu að nota svörin frá mér til að æfa sig að lesa. Það er æðislegt og ýtir enn frekar undir að ég vandi mig við þetta allt saman.“
Mest lesið Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Lífið Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Lífið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Lífið Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Lífið Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið Lífið Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Lífið „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Lífið Guðrún Sóley gengin út Lífið Megas er látinn Lífið Stórbrotinn stíll Zendayu Tíska og hönnun Fleiri fréttir Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Harry Styles setti heimsmet Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Það allra besta að gráta í gufu Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Listabarn á leiðinni Kenningin um útskiptin miklu sem umbreytti vestrænum stjórnmálum Snæfríður og Högni selja útsýnisíbúð í 101 Baðst afsökunar á að hafa sagst vilja ríða Minogue Pétur Jóhann á von á öðru barnabarni Birtu fyrstu myndina af Mette-Marit eftir aðgerðina Stjörnulífið: Bátsferðir og brjóst Rauðhærðasti Íslendingurinn fundinn Stjörnum prýddur gestalisti Swift og Kelce Krakkatía vikunnar: Tindur, stríð og letibikkja Melabúðin fagnar sjötíu árum „Þú ert greinilega manneskja sem hefur strögglað mikið andlega“ „Það er gaman að gera erfiða hluti“ Taylor Swift og Travis Kelce eru gift Eins og að vera með kláða sem hverfur aldrei „Erum enn að ná utan um allt sem gerðist“ Fréttatía vikunnar: EBU, aftaka og Love Island „Klukkan er fimm einhvers staðar“ Sjá meira