Börn Loka styrkja Barnaspítala Hringsins Gunnar Leó Pálsson skrifar 20. mars 2014 15:30 Valdimar Örn Matthíasson, sem hannaði bolinn, og Guðrún Finns, klúbbstýra Barna Loka. mynd/Guðný Ása Guðmundsdóttir „
Bolurinn var sleginn hæstbjóðanda á 50.000 krónur en sá sem bauð hæst heitir Ragnar Jóhannesson, hann er líklega aðdáandi númer eitt. Aðrir sem buðu ákváðu að leggja upphæðina sem þeir buðu í bolinn í söfnunina og svo hefur eitthvað bæst við og nú stendur söfnunin í rúmlega 250.000 krónum,“ segir Guðrún Finns, klúbbstýra Barna Loka, sem er aðdáendaklúbbur Skálmaldar. Bolurinn sem var prótótýpa af meðlimabolnum í fyrra er algert safnaraeintak og ákaflega sjaldgæfur. „Valdimar Örn Matthíasson sem hannaði bolinn fékk hugmyndina að gera góðverk út frá bjóráskoruninni sem tröllreið öllu hérna um daginn. Hann valdi að setja bolinn á uppboð til styrktar Barnaspítala Hringsins, en hann hefur sterk tengsl þangað. Bolurinn var upprunaleg hugmynd Valdimars að meðlimabolum fyrir klúbbinn en reyndist svo of dýr í framleiðslu. Hins vegar var gerð ein prótótýpa þannig að um algjörlega einstaka flík er að ræða,“ útskýrir Guðrún. Börn Loka er opinber aðdáendaklúbbur Skálmaldar og eru í honum 244 meðlimir á öllum aldri. „Flestir eru íslenskir en einnig eru þeir frá Frakklandi, Bretlandi, Bandaríkjunum, Ástralíu, Noregi, Þýskalandi og Kanada. Þetta er einstakur hópur af eðalmanneskjum með stórt hjarta,“ segir Guðrún. Bolurinn verður afhentur Ragnari á generalprufunni á Baldri í Borgarleikhúsinu þann 3. apríl næstkomandi. Við sama tækifæri verður fulltrúum frá Barnaspítala Hringsins boðið með Börnunum á sýninguna og söfnunarféð formlega afhent.
Mest lesið Dorrit missti aðgang á forrit Lífið Komin á eftirlaun og með skotheldar leiðir til að ferðast ódýrt um Ítalíu Ferðalög Stjörnufans á frumsýningu Um tímann og vatnið Bíó og sjónvarp Fréttatía vikunnar: Dolly, ESB og malaría Lífið Dolly skildi eftir sig lag fyrir hundrað ára afmælið Lífið Hvað kýs fræga fólkið? Lífið Nadía Atla og Arnar Freyr hætt saman Lífið Þau sjá um Áramótaskaupið í ár Lífið Stórglæsilegt einbýlishús á Arnarnesi til sölu Lífið Hvað veistu um… Dolly Parton? Lífið Fleiri fréttir Dorrit missti aðgang á forrit Dolly skildi eftir sig lag fyrir hundrað ára afmælið Fréttatía vikunnar: Dolly, ESB og malaría Nadía Atla og Arnar Freyr hætt saman Þau sjá um Áramótaskaupið í ár Stórglæsilegt einbýlishús á Arnarnesi til sölu Afmælispartý Bylgjunnar í beinni Hvað kýs fræga fólkið? Bylgjan heiðraði goðsögnina Þorgeir Hvað veistu um… Dolly Parton? Jakob Smári útnefndur bæjarlistamaður Mosfellsbæjar Birta Líf og Gunnar Patrik hætt saman Doppudrottningin Yayoi Kusama er látin Neðanjarðarlestin endalaus uppspretta skrítinna atvika Camilla Rut og Valgeir hafa slitið trúlofuninni „Það færist skuggi yfir manneskju sem endar með því að hann rænir hana lífinu“ Alræmt hús á Túngötu til sölu Leitaði á náðir Dolly Parton á erfiðum tímum Lést í kjölfar krabbameinsgreiningar Sigraði hundahlaupið með hundinn í pössun Flaggar í hálfa stöng í viku til heiðurs Dolly Dolly Parton látin Klökknaði við upprifjunina: „Á geðveikt erfiðum tíma í lífinu mínu“ Laufey fagnaði Laufeyjardeginum á Íslandi „Brúðkaup var ekki á bingóspjaldinu fyrir sumarfríið“ Stjörnum prýtt svitapartý Hvað veistu um… bæjarhátíðir? Fullt út úr dyrum í prjónapartýi ársins Siggi Gunnars hættur sem tónlistarstjóri Rásar 2 Léttist við stöðugt pizzuát Sjá meira