Upplifði mikinn lúxus á setti Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar 17. mars 2014 09:00 „Ég er með samning við Borgarleikhúsið og hef leikið í ár þar á fullu. Ég hef mikla ástríðu fyrir leikhúsinu og þroskast sem leikari á sviði,“ segir Arnar. Vísir/GVA „
Ég mætti í prufu með vini mínum og Darren Aronofsky bað mig um að öskra og láta eins og ég væri í stríði. Ég gerði það og honum leist á mig og vildi endilega fá mig í myndina,“ segir leikarinn Arnar Dan Kristjánsson. Hann leikur Abel, son Adams og Evu, í stórmyndinni Noah sem frumsýnd verður hér á landi í Egilsbíói á morgun. Myndin var tekin upp hér á landi sumarið 2012 og er leikstjórinn enginn annar en Darren Aronofsky sem hefur meðal annars leikstýrt myndunum The Wrestler og Black Swan. Leikarinn Jóhannes Haukur Jóhannesson leikur Cain, bróður Abels, í myndinni. „Við fengum trailer út af fyrir okkur og upplifðum mikinn íburð í öllu sminki. Ég held að það sé algjör ógjörningur að greina að þetta hafi verið ég. Við Jói lékum í einni senu saman þar sem við glímdum. Við unnum þá senu með kóreógrafer og aðila sem sá um áhættuatriði og sýndum Darren síðan senuna. Hann var ekki alveg nógu sáttur við hana, tók sjálfur völdin og leikstýrði okkur aftur þannig að við bjuggum til nýja senu með honum,“ segir Arnar. Hann segir það hafa verið mikla upplifun að vera á setti Hollywood-stórmyndar, þó það hafi ekki verið nema einn tökudagur. „Við spjölluðum meðal annars við Anthony Hopkins og Patti Smith og hlustuðum á Emmu Watson segja okkur hvað hún elskaði íslenska tónlist mikið. Svo var yndisleg kona sem bar ofan í okkur ávexti og önnur sem passaði að við værum ekki þyrstir. Ég upplifði mikinn lúxus og það var gaman að taka þátt í þessu.“ Hann ber leikstjóranum Darren Aronofsky góða söguna. „Hann er algjört góðmenni og mikill listamaður. Í kvikmyndaleikstjórn þarf að taka allar ákvarðanir snöggt og örugglega. Hann gerði það listilega vel og maður sá aldrei neinar efasemdir leika um hann. Hann tók afstöðu til hlutanna og fylgdi þeim eftir. Það er mjög þakklátt að vinna undir svoleiðis leikstjóra. Hann bar líka mikla virðingu fyrir landinu og fannst gott að vera hér,“ segir Arnar. Hann ætlar að skella sér á myndina þó hann viti ekki hvort senan hans hafi verið tekin út eður ei. „Ég veit ekki hvort maður er hreinlega köttaður út eða ekki. Ég vona að ég komi í kreditlistanum.“
Mest lesið Síminn stoppar ekki vegna heimildarmyndar Bíó og sjónvarp „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Lífið Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Lífið Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Lífið Færsluóður miðaldra höfundur: „Ég man ekki eftir að hafa gengið í þessar grúppur“ Lífið Tólf barna móðir selur sveitadraum Lífið Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Lífið White Lotus-stjarna bætist í leikhópinn Bíó og sjónvarp Kempa leikstýrir tálbeitutrylli Ólafs Darra Bíó og sjónvarp Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Lífið Fleiri fréttir Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Færsluóður miðaldra höfundur: „Ég man ekki eftir að hafa gengið í þessar grúppur“ „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Tólf barna móðir selur sveitadraum Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Sjá meira