Unglingapartí fer úr böndunum 17. mars 2014 09:30 Gríma naut þess að semja verkið með leikurum skólans. Vísir/Valli „
Leikfélagsstjórnin kom til mín og vildi gera eitthvað um unglingapartí sem fer úr böndunum. Það var grunnhugmyndin sem við unnum með og er leikritið frumsamið af mér og hópnum,“ segir leiklistarneminn Gríma Kristjánsdóttir. Hún leikstýrir sýningunni Batman in a box sem leikfélag Fjölbrautaskólans í Breiðholti setur upp. „Karaktersköpunin kemur algjörlega frá leikurunum og leikritið er skemmtilegt og fyndið þó vinnan hafi leitt okkur inn á dramatískari slóðir. Mér fannst mjög spennandi að gera eitthvað með nemendunum sem þau ættu sjálf,“ bætir Gríma við. Aðspurð um nafn leikritsins segir hún það vísa í eiturlyf. „Götunafn á e-pillum er Batman og þau eru sem sagt með Batman í boxi í leikritinu,“ segir Gríma. Hún segir undirliggjandi boðskap í verkinu þó það sé ekki hádramatískt. „Boðskapurinn er í raun að maður kemst ekki upp með hvað sem er og gjörðir okkar hafa afleiðingar.“ Gríma er búin með eitt ár í leiklistarskólanum CISPA í Kaupmannahöfn en tók sér barneignarleyfi í ár og fer aftur út í haust til að klára þau tvö ár sem hún á eftir. Hún hefur talsverða reynslu í leiklistarbransanum og hefur meðal annars unnið mikið með leikkonunni Margréti Vilhjálmsdóttur. Þá var hún ein af þeim sem stofnuðu leikhúsið Norðurpólinn á Seltjarnarnesi. Tvær sýningar eru eftir af Batman in a box, þann 21. og 22. mars næstkomandi.
Mest lesið Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lífið Nýr Bond lítur dagsins ljós von bráðar Bíó og sjónvarp Hvað veistu um… Karl Bretakonung? Lífið Ótrúleg saga fólks sem valdi mildi og mannúð í stað reiði Menning „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Lífið Síminn stoppar ekki vegna heimildarmyndar Bíó og sjónvarp Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Lífið Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Lífið Kempa leikstýrir tálbeitutrylli Ólafs Darra Bíó og sjónvarp Færsluóður miðaldra höfundur: „Ég man ekki eftir að hafa gengið í þessar grúppur“ Lífið Fleiri fréttir Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Hvað veistu um… Karl Bretakonung? Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Færsluóður miðaldra höfundur: „Ég man ekki eftir að hafa gengið í þessar grúppur“ „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Tólf barna móðir selur sveitadraum Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Sjá meira