Harmsaga gæti hent okkur öll Ólöf Skaftadóttir skrifar 15. mars 2014 13:00 Leikararnir Snorri og Elma Stefanía rifust einu sinni í alvörunni á æfingaferlinu í Harmsögu og Elma endaði grátandi inni á klósetti en þá var það það dramatúrginn, Dóri DNA, sem bjargaði deginum. Fréttablaðið/Stefán
Snorri Engilbertsson og Elma Stefanía Ágústsdóttir leika aðalhlutverk í leikritinu Harmsögu. Þau sýndu verkið í Þjóðleikhúsinu í haust við góðan orðstír. Nú halda þau utan, á leiklistarhátíðina World Stages í Washington D.C., höfuðborg Bandaríkjanna, þar sem þau sýna meðal leikhúsfrömuða á borð við Peter Brook. Það er erfitt að leika Harmsögu að sögn Elmu og Snorra því verkið gengur nærri þeim. Elma er gift höfundinum, Mikael Torfasyni, og leikritið er byggt á raunverulegum atburðum. Una Þorleifsdóttir leikstýrði verkinu og John Grant sá um tónlistina.Úr Hlíðasmára í Kennedy Center Hvernig hefur það gengið að færa verkið yfir á ensku?Elma: Við erum ekki að læra þetta upp á nýtt heldur að flytja þetta einhvern veginn bara yfir á annað tungumál.Snorri: Já, ég fann einhvern hita í vinstra heilahvelinu, svæði sem ég var að nota sem ég hef bara aldrei notað áður. Að yfirfæra svona verk er mjög skrítið – og ég veit svosem ekkert hvernig ég er í ensku.Elma: Já, við pældum til dæmis í því að breyta nöfnunum yfir í ensk nöfn. En þá var búið að prenta út leikskrána í Kennedy Center. Þannig að við heitum enn þá bara Ragnar og Sigrún og búum í Hlíðasmára í Kópavogi. En hvernig kom það til að þið voruð valin á þessa hátíð?Snorri: Það var algjör tilviljun. Konur frá World Stages-hátíðinni heimsóttu Tinnu Gunnlaugs (innsk. blm. þjóðleikhússtjóra). Það hittist þannig á að þær komust á frumsýninguna. Þær töluðu ekki um að þær væru komnar til að leita eftir verkum á hátíðina.Elma: Þær voru búnar að loka prógramminu.Snorri: Svo veit ég ekki hversu löngu seinna kemur póstur til Tinnu og þær vilja fá verkið út. Harmsaga er eina íslenska verkið á World Stages.Elma: Svo sýnir Peter Brook kvöldið áður en við frumsýnum.Snorri: Á sama sviði. Þannig að hann hitar upp fyrir ykkur?Snorri: Eigum við ekki bara að orða það þannig? Hvaða saga er Harmsaga?Elma: Í henni eru samskipti á milli tveggja persóna undir smásjá. Við erum að vinna með hversdagslega hluti. Fólk í samböndum alls staðar í heiminum er að takast á við samskiptaörðugleika og ég held að það skipti engu máli hvert við förum með verkið því það munu alltaf einhverjir tengja.Snorri: Eftir sýningu vatt mjög góður vinur minn sér að mér. Hann grét og við féllumst í faðma því verkið hafði fengið svo á hann. Að hann hafði áttað sig á því að hann væri á vondum stað í sínu sambandi. Þetta er mesta hrós sem ég hef nokkurn tíma fengið, miklu meira en nokkur góð gagnrýni.Elma: Verkið fjallar um hið íslenska morð, það er ástríðuglæpur. Ég segi eins og Snorri. Þó að væri ekki nema ein manneskja sem myndi hugsa sig tvisvar um í einhverju mynstri í samskiptum, þá er það þess virði. Oftar en við höldum erum við að leika okkur við dauðann og það er sjokkerandi að sjá það. Og Sigrún og Ragnar í Harmsögu eru bara venjulegar manneskjur.Raunverulegar tilfinningar Hvernig er að leika í verki þar sem nándin er svona mikil, bæði ykkar á milli, og svo ertu gift höfundinum, Elma?Elma: Ég er mjög heppin með mótleikara. Við Snorri kynntumst í skólanum og fórum út í Harmsögu saman. Mér hefur alltaf liðið vel að vinna með honum. Varðandi það að eiginmaðurinn skrifaði verkið lít ég á það sem forréttindi. Að fá að vinna með honum og eiga greiðan aðgang að samtali við höfundinn sjálfan um verkið fram og til baka hjálpaði mér að kafa dýpra í karakterinn og sú vinna skilaði sér á sviðinu. Elma heldur áfram: Mér fannst á vissan hátt þægilegt að hafa Mikka þarna, af því að það gengur nærri manni að leika þetta, jafnmikið að Snorra og mér. Það skiptir engu máli þótt maður reyni að setja upp vegg gagnvart því, vegna þess að maður gengur í gegnum raunverulegar tilfinningar. Snorri: Ég bið kærustuna mína (innsk. blaðamanns Harpa Einarsdóttir fatahönnuður) oft að lesa á móti mér og það var allt í einu orðið óþægilegt. Ég vil ekki að hún eigi eitthvað skylt við Sigrúnu eða að ég sem kærasti eigi eitthvað skylt við Ragnar. Tilfinningin þegar maður er að fara að sýna Harmsögu er eins og við séum að fara að stíga upp í bíl sem við vitum að er að fara að lenda á vegg. Hjónabandsráðgjafi sendi pör á HarmsöguElma: Ég veit um hjónabandsráðgjafa sem sendi pör á Harmsögu. En maður veit líka sjálfur, ef maður lendir svo í rifrildi, sérstaklega eftir að vera búinn að leika þetta svona oft, að það borgar sig ekki að rífast. Snorri: Já. Það er kominn einhver litur, eitthvert bragð, sem kemur í hausinn á mér ef ég finn að ég er að fara inn í rifrildi sem hefur aldrei verið svona sterkt áður – og ég segi við sjálfan mig: Nei, ég ætla ekki að fara inn í þetta. Það mun ekki hjálpa.Læsti sig inni á klósetti og grét í alvöru Hvernig var að vinna með Unu leikstjóra í hennar fyrsta verki í stóru húsi? Og hvernig var umgjörðin í kringum Harmsögu?Elma: Það var frábært í einu orði sagt. Snorri: Una kenndi okkur Elmu, og mér hefur alltaf þótt mjög vænt um hana. Hún er auðmjúk og æðrulaus og laus við öll leiðindi sem tengjast egói. Snorri: Svo var dramatúrginn okkar, Dóri DNA, algjör lykilmaður í hópnum. Hann er svo mikill peppari. Þegar við vorum búin að velta okkur upp úr handritinu heilu dagana, lyfti hann stemningunni upp.Elma: Einu sinni rifumst við Snorri í alvöru. Ég fór að gráta og læsti mig inni á klósetti. Þá var það Dóri sem bjargaði deginum. Snorri: Ég kalla það nokkuð gott að það hafi bara verið ein svona uppákoma í öllu ferlinu. Þau hlæja.„Þetta er ömurlegasta sýning sem ég hef séð“ En það eru ekki allir sem kunnu að meta sýninguna?Snorri: Nei, svo sannarlega ekki. Ég man eftir einum manni í salnum sem sagði hátt og snjallt yfir alla sýninguna: „Þetta er ömurlegt. Þetta er ömurlegasta sýning sem ég hef séð.“Elma: Þetta var mjög erfitt, að sitja undir frammíköllum, af því að ég held að það muni alltaf vera fólk sem fílar ekki það sem maður gerir og hefur skoðanir á því sem manni sjálfum líkar ekki. Það er allt í lagi og fólk má alveg mynda sér þannig skoðanir á því sem það er að sjá, en það er ofboðslega vont að fá það í andlitið – sérstaklega þegar maður er svona, eins og í þessu verki, nakinn á sviði. Þegar hann byrjaði, þá vorum við í senu þar sem ég er að byrja að labba á móti Snorra og ég horfði í augun á honum og við tókum ákvörðun án þess að segja nokkuð: Kýlum á þetta. Í staðinn fyrir að stoppa sýninguna, kveikja ljósin og biðja hann um að fara út. En hvað er fram undan hjá leikurunum tveimur?Snorri: Ég er að leika í Litla prinsinum sem verður líka frumsýnt í apríl í Kúlunni – en ég er reyndar í fríi þessa dagana því mótleikkona mín, Þórunn, var að eignast barn. Elma: Ég er að leika Abigail í Eldrauninni eftir Arthur Miller. Verkið verður frumsýnt í apríl á Stóra sviði Þjóðleikhússins þannig að ég fæ nokkurra daga frí frá æfingum til að stökkva út með Harmsögu.
Mest lesið „Ég vakna á hverjum degi og þrái ekkert meira en að fá hann aftur“ Lífið Ákváðu að vera um kyrrt á Englandi þegar Trump náði kjöri Lífið Stjörnulífið: „Hann er pabbi minn“ Lífið Trylltist þegar hún varð fyrir árás byssumanna í Ríó Lífið Millie Bobby Brown í hóp Íslandsvina Lífið Stökk fjörutíu sinnum úr flugvél í Dubai Lífið Stór saga í litlum umbúðum: „Barnæskan mín er greypt í minnið“ Lífið Grátbað um að fá að deyja en fagnar nú öllum framförum Lífið „Ég gat ekki haldið aftur tárunum“ Lífið Sætar og seiðandi einhleypar sumarskvísur Lífið Fleiri fréttir Stökk fjörutíu sinnum úr flugvél í Dubai Stjörnulífið: „Hann er pabbi minn“ „Ég vakna á hverjum degi og þrái ekkert meira en að fá hann aftur“ Ákváðu að vera um kyrrt á Englandi þegar Trump náði kjöri Millie Bobby Brown í hóp Íslandsvina Stór saga í litlum umbúðum: „Barnæskan mín er greypt í minnið“ Segir af sér eftir að Coldplay kom óvart upp um framhjáhaldið Trylltist þegar hún varð fyrir árás byssumanna í Ríó Krakkatían: Barbie, forseti og flugstöð Charli xcx gifti sig „Nú eruð þið farin að draga mig aftur inn í pólitíska umræðu“ Óskandi að það væru fleiri börn með Downs á Íslandi Fréttatía vikunnar: Eldgos, heimsókn Ursulu og frægur gítar Grátbað um að fá að deyja en fagnar nú öllum framförum Stjórn fyrirtækisins hefur formlega rannsókn Bragason leikur Zeldu prinsessu Borgarbörnin orðin sveitaballasjúk: „Ef þú ferð þangað sérðu ekki einn síma á lofti“ Næturskrunið eyðileggi svefninn og ungmennin vansvefta Ótrúleg upplifun að vera í algjöru myrkri á tónleikum Tognaður í báðum lærum og blöðrur á öllum tám Sætar og seiðandi einhleypar sumarskvísur Coldplay kom óvart upp um framhjáhald forstjórans Útilokar fimmta hjónabandið: „Ég held ég sé búinn með það“ Sýnishorn úr nýjustu mynd Hlyns Pálmasonar Pete Davidson að verða pabbi: „Nú vita allir að við sváfum saman“ Af hverju vinkar Teslan alltaf á sama stað? Connie Francis er látin „Maður þarf alltaf að hafa augun opin“ „Ég gat ekki haldið aftur tárunum“ Birta og Króli eiga von á dreng Sjá meira