Fjölskylduhrærigrautur á sviðinu Álfrún Pálsdóttir skrifar 15. mars 2014 13:30 Hjónin Ellen Kristjáns og Eyþór Gunnarsson ætla að sameina alla fjölskylduna á Café Rósenberg í kvöld. Fréttablaðið/Arnþór „
Við mæðgurnar fengum þessa hugmynd er við vorum að troða saman upp á Rósenberg fyrir ekki svo löngu, að það væri gaman að sameina fjölskylduna á sviðinu,“ segir Elín Eyþórsdóttir, tónlistarkonan sem kemur úr ansi þekktri tónlistarfjölskyldu. Elín skipar danssveitina Sísí Ey ásamt systrum sínum Elísabetu og Sigríði og foreldrar þeirra eru hjónin Ellen Kristjáns og Eyþór Gunnarsson. Þrátt fyrir að starfa öll í tónlist er sjaldgæft að þau komi öll fram saman á tónleikum. Í kvöld er komið að því og ætlar Eyþór Ingi, yngsti bróðirinn, einnig að vera með en þetta er frumraun hans opinberlega á sviði með fjölskyldunni. „Hann er 16 ára og hefur einbeitt sér að raftónlist hingað til. Hann er mjög fær og það er aldrei að vita hvaða hljóðfæri hann grípur í á sviðinu.“ Tónleikarnir fara fram á Café Rósenberg í kvöld og er þeirra eigið efni á dagskránni í bland við ábreiður. Elín segir fjölskylduna ekki hafa verið í neinum ströngum æfingabúðum fyrir tónleikana. „Við erum búin að æfa svona eins og við getum. Svo getur verið að við tökum nokkrar órafmagnaðar útgáfur af lögum okkar í Sísí Ey.“ Það má því búast við miklu stuði frá þessari tónelsku fjölskyldu í kvöld. Annars er danssveitin Sísí Ey byrjuð að taka upp nýja plötu og segir Elín að næst á dagskrá hjá sveitinni sé að gefa sér tíma til að klára hana. „Ég veit ekkert hvenær hún kemur út en hálfnað verk þá hafið er.“
Mest lesið Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Lífið Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Lífið Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Lífið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Lífið Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið Lífið Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Lífið Guðrún Sóley gengin út Lífið „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Lífið Stórbrotinn stíll Zendayu Tíska og hönnun Megas er látinn Lífið Fleiri fréttir Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Harry Styles setti heimsmet Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Það allra besta að gráta í gufu Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Listabarn á leiðinni Kenningin um útskiptin miklu sem umbreytti vestrænum stjórnmálum Snæfríður og Högni selja útsýnisíbúð í 101 Baðst afsökunar á að hafa sagst vilja ríða Minogue Pétur Jóhann á von á öðru barnabarni Birtu fyrstu myndina af Mette-Marit eftir aðgerðina Stjörnulífið: Bátsferðir og brjóst Rauðhærðasti Íslendingurinn fundinn Stjörnum prýddur gestalisti Swift og Kelce Krakkatía vikunnar: Tindur, stríð og letibikkja Melabúðin fagnar sjötíu árum „Þú ert greinilega manneskja sem hefur strögglað mikið andlega“ „Það er gaman að gera erfiða hluti“ Taylor Swift og Travis Kelce eru gift Eins og að vera með kláða sem hverfur aldrei „Erum enn að ná utan um allt sem gerðist“ Fréttatía vikunnar: EBU, aftaka og Love Island „Klukkan er fimm einhvers staðar“ Sjá meira