Unir sér best í Dyngjunni sinni 8. mars 2014 12:30 Vefurinn sleginn Mynd/Auðunn
Að Fífilbrekku í Eyjafjarðarsveit er ævintýraveröld Guðrúnar Höddu Bjarnadóttur, handverks- og listakonu. Hún hefur komið sér upp myndarlegu listhúsi nærri heimili sínu og umhverfis það eru minni hús, sem hvert og eitt er listaverk. Það er snjómugga þegar ég held frá Akureyri inn í Eyjafjarðarsveit að hitta listakonuna Guðrúnu Höddu í Fífilbrekku. Eftir að hafa ekið fram hjá kirkjustaðnum Grund skoða ég kort og átta mig á að ég er komin of langt, sný við og beygi upp í brekkuna. Guðrún Hadda er nýkomin heim frá vinnu í Sjónlistamiðstöðinni á Akureyri og er að tendra ljósin í Dyngjunni, hinu veglega listhúsi sínu í Fífilbrekku, enda er byrjað að rökkva og hún á von á nokkrum konum á tóvinnunámskeið innan stundar. „Það var gamall draumur að vera með vinnustofu og galleríaðstöðu heima, svo varð byggingin stærri en mig hafði órað fyrir og ég bara nýt þess og þakka fyrir,“ segir Hadda brosandi þegar Dyngjan er dásömuð. Á túninu í kring eru lítil hús, flest byggð af Helga Þórssyni í Kristnesi og ætluð barnabörnum Höddu og manns hennar, Edwards Kiernan, önnur eru keypt í Húsasmiðjunni og reist af Höddu sjálfri eitt sumarið. Það var byrjunin á uppbyggingunni í Fífilbrekku, síðan var reist stórt íbúðarhús og vinnustofan í framhaldinu. „Ég ver flestum stundum hér í Dyngjunni listhúsi og vil helst ekki annars staðar vera,“ segir Hadda, sem auk þess að vinna listmuni í Dyngjunni heldur þar sýningar og námskeið. Um þessar mundir starfar hún sem fræðslufulltrúi í Sjónlistamiðstöðinni en hefur lengi verið stundakennari í listgreinadeild Háskólans á Akureyri.“Hafði áhyggjur af nafninu Hún heitir reyndar Guðrún Hallfríður en kveðst kalla sig Höddu. „Mér skilst að ég hafi sjálf byrjað lítil stúlka að kalla mig Höddu og það festist við mig. Samt man ég eftir mér fimm ára gamalli með áhyggjur af að ég gæti ekki alltaf látið kalla mig Höddu. Engin fullorðin kona héti Hadda og ég yrði líklega að fara að láta kalla mig Guðrúnu!“ Hadda fæst við margs konar handverk og listsköpun, það leynir sér ekki þegar komið er inn í Dyngjuna. „Mér gengur illa að halda mig við eitthvað eitt og finnst best að leyfa hugmyndunum að flæða,“ segir hún. Við hillurnar „Mér datt aldrei í hug að ég mundi fylla þetta hús en einhvern veginn safnast svo margt að mér að sú skoðun hefur breyst,“ segir Guðrún Hadda. Fréttablaðið/GunFyrirferðarmestur í Dyngjunni er vefnaðurinn því vefstólarnir taka sitt pláss. Tveir eru uppsettir þar, í öðrum er tuskumotta og í hinum brekánsvefnaður. „Ég þarf að drífa mig að ljúka við mottuna því ég er búin að gefa stólinn,“ segir Hadda brosandi en brekánið kveðst hún vera að vefa fyrir verslunina í Laufási. „Ég er í Laufáshópnum sem hannar vörur út frá munum úr Laufásbænum, ég er að vefa litlar hliðartöskur og hef rúmteppin sem fyrirmynd,“ útskýrir hún. Þriðji vefstóllinn er í smáhýsi rétt hjá Dyngjunni, þar er uppsett vaðmálsvoð. „Ég er alltaf með vaðmál í einhverjum stól,“ segir listakonan. Í fjórða vefstólnum sem er staðsettur í íbúðarhúsinu vefur hún damask.Kósý í kofanum Eitt af smáhýsunum sem Guðrún Hadda byggði sjálf.Treystir máttarvöldunum Í grunninn er Hadda þroskaþjálfi frá Þroskaþjálfaskóla Íslands. Hún bjó í níu ár í Eskilstuna í Svíþjóð þar sem hún vann á sambýli og vernduðum vinnustað fyrir þroskahefta. Í Svíþjóð tók hún ýmis handverksnámskeið meðal annars í vefnaði. Síðasta árið úti var hún í listadeild lýðháskóla. „Á sínum tíma var ég í Gagnfræðaskóla verknáms sem var góður skóli. Þar liggur í raun minn handverksgrunnur,“ segir hún. Eftir dvölina í Svíþjóð stundaði Hadda nám í listmálun við Myndlistarskólann á Akureyri og tók virkan þátt í uppbyggingu Listagilsins með starfrækslu opinnar vinnustofu sem kölluð var Grófin. Seinna rak hún Samlagið-listhús, í félagi með öðrum listamönnum. Jólamarkaður í Fífilbrekku er orðin árleg hefð. Þó ekki væri möguleiki að hafa varning úti eins og veðrið er í dag þá sleppur jólamarkaðurinn alltaf við óveður og ófærð að sögn Höddu. „Ég segi að maður eigi að ákveða svona hluti með góðum fyrirvara, treysta á æðri máttarvöld og ef maður breytir ekki um dagsetningu þá bara virkar það. Það er alltaf gott veður á markaðsdaginn þó stundum hafi verið vitlaust veður og ófærð bæði daginn á undan og eftir,“ segir hún. Græna húsiðÞetta hús var byggt fyrir barnabörnin að leika sér í.Uppsprettur víða Sumarsýning Höddu 2013 var unnin út frá altarisklæði frá miðri 16. öld sem varðveitt er í Þjóðminjasafni Dana. Það er úr Miklagarðskirkju sem var tekin niður á miðöldum en stóð skammt sunnan við Fífilbrekku. „Ég tel þetta altarisklæði eitt elsta myndverk sem varðveist hefur í heilu lagi héðan frá Eyjafjarðarsveit og því langaði mig að nota það í hugmyndavinnu sem varð grunnurinn að sýningunni,“ lýsir hún. „Í framhaldinu langar mig svo að fá konur í sveitinni í vinnu með mér við að skapa listmuni út frá þessu forna myndverki og tengja þannig nútíðina við menningu fortíðarinnar.“ Herðaslá Handverkið í Dyngjunni er af margvíslegum toga.Spýtuhús Enn eitt eftir Helga.Listaverk Tvö af húsum Helga Þórssonar á Kristnesi.Bollamottur Anna Sigríður Hróðmarsdóttir og Hadda halda oft sýningar og tefla saman leir og vefnaði. Hér er lítil borðmotta ofin í þráðabrekán ásamt leirbolla.
Mest lesið Robert Wilson er látinn Lífið Útskúfaður úr Hollywood vegna kossareglunnar Lífið Þrettán bestu lög Ozzy Osbourne Lífið Gary Busey játar kynferðisbrot Lífið Justin Timberlake með Lyme-sjúkdóm Lífið Dagur er líka listunnandi Lífið Dularfullur veðurbreytir Jakobs Frímanns og maðurinn á bak við hann Lífið Nýja Kardashian-gríman breytir Hopkins aftur í Lecter Lífið Mannblendnir refir slá í gegn á Snæfellsnesi Lífið Uppljóstrar um síðustu skilaboðin sem hann fékk frá Ozzy Lífið Fleiri fréttir Robert Wilson er látinn Gary Busey játar kynferðisbrot Nýja Kardashian-gríman breytir Hopkins aftur í Lecter Þrettán bestu lög Ozzy Osbourne Mannblendnir refir slá í gegn á Snæfellsnesi Einar og Milla eignuðust dreng Justin Timberlake með Lyme-sjúkdóm Útskúfaður úr Hollywood vegna kossareglunnar Dularfullur veðurbreytir Jakobs Frímanns og maðurinn á bak við hann Uppljóstrar um síðustu skilaboðin sem hann fékk frá Ozzy Góðhjartaður dýrahirðir og tæknigúrú Draumabrúðkaup í sextíu ára gömlum kjól frá ömmu Tugþúsundir vottuðu Ozzy virðingu Kokkarnir á Strikinu með stjörnur í augunum þegar Bon Jovi mætti Síðasta Þjóðhátíðin í bili hjá FM95BLÖ Spámenn bjóða betur en veðurfræðingar Ætlar í pásu frá giggum Forseti Alþingis snæddi kvöldverð með Michael Douglas Sjóðheitt og splunkunýtt Hollywood par Katrín Edda selur í Hlíðunum Þriggja ára snáði stal senunni í messu í Fljótshlíð Fyrstu tónleikar Purrksins í fjörutíu ár Sweeney sökuð um kynþáttahyggju Sögulegur klæðnaður á dreglinum Myndaveisla frá troðfullri tuttugu ára Bræðslunni Katy Perry og Justin Trudeau á stefnumóti „Þetta var algjört bíómyndamóment“ Samband Gallagher-bræðra sagt á hálum ís Harrý rétti fram eins konar sáttahönd Stjörnulífið: „Who the fuck is Kaleo?“ Sjá meira