Sport

Gunnar Nelson verður heimsmeistari innan fimm bardaga

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Gunnar Nelson eftir vigtunina í gær.
Gunnar Nelson eftir vigtunina í gær. Vísir/Getty
Gunnar Nelson berst í þriðja sinn í UFC í kvöld þegar hann mætir Rússanum Omari Akhmedov í O2-höllinni í London. Gríðarleg spenna hefur myndast fyrir bardagann hér heima sem og erlendis.Hann hefur verið frá í rúmt ár vegna meiðsla

Gunnar var vigtaður í gær og negldi 170 pundin (77,1kg) eins og alltaf en hann hefur aldrei verið í vandræðum með að hitta á rétta þyngd þegar kemur að vigtun. Rússinn var jafnþungur en hann er öflugasti andstæðingur Gunnars til þessa.

Gunnar ekki eins og hinir

„Það var frábært að komast hingað strax í byrjun vikunnar,“ segir Írinn John Kavanagh, þjálfari Gunnars Nelson, í samtali við Fréttablaðið. Hann hafði leyft sér að halla sér aðeins eftir annasaman dag þegar blaðamaður truflaði fegurðarblundinn.

„Við komum á mánudaginn þannig Gunni hefur fengið góðan tíma til að venjast aðstæðum. Við vorum að koma úr vigtuninni sem gekk vel eins og alltaf. Annars höfum við eytt vikunni í smá túrisma í bland við léttar æfingar til að halda þyngdinni niðri,“ segir Kavanagh en á fimmtudaginn var fjölmiðladagur þar sem alþjóðlegur áhugi á Gunnari skein í gegn.

„Það er mikið af fjölmiðlum hérna frá öllum heimshornum. Það hafa margir mikinn áhuga á honum enda er hann ekki eins og allir hinir. Margir bardagamenn berja sér á brjóst og eru með smá hávaða í kringum sig. En ekki Gunni. Hann er rólegur og hógvær og það finnst fólki spennandi.“

Gunnar Nelson og Omari Akhmedov berjast í kvöld.Vísir/Getty
Æfingin speglar bardagann

Gunnar var lengi frá vegna hnémeiðsla en hefur æft af fullum krafti í 4-5 mánuði. „Hann er ekkert ryðgaður eða neitt svoleiðis. Hann hefur æft sig mikið standandi og er betri núna en áður að kýla og það mun fólk sjá á laugardaginn,“ segir Kavanagh.

Í öðrum íþróttum, t.d. boltagreinum, þurfa menn nokkra leiki til að koma sér í keppnisform eftir meiðsli en þannig er það ekki í blönduðum bardagalistum.

„Æfingin speglar bardagann þó hún sé ekki gerð af jafnmiklum ákafa. Hann er betri núna en fyrir meiðslin og það mun sjást þegar hann vinnur Akhmedov,“ segir Kavanagh en hvað óttast þjálfarinn í andstæðingnum?

„Hann er mjög öflugur standandi og getur rotað menn með einu höggi. Hann slær fast og berst ósvipað öðrum. Hann er ekki alltaf með fulla stjórn á því sem hann gerir sem gerir hann óútreiknalegan. Hann mun fara í gólfið og þó hann sé ágætur þar er Gunni betri. Akhmedov vill ekkert endilega fara í gólfið með Gunna en á endanum hefur hann bara ekkert um það að segja,“ segir Kavanagh og hlær við.

Gunnar er vinsæll í London.Vísir/Getty
Meistari innan fimm bardaga

Kavanagh er einnig fljótur til svars aðspurður hvernig hann haldi að bardaginn endi. „Gunnar hengir hann í fyrstu lotu,“ segir þjálfarinn en hann hefur óbilandi trú á Gunnari sem hann spáir æðstu metorðum innan raða UFC á næstu mánuðum.

„Það er enginn vafi í mínum huga að Gunnar Nelson verður heimsmeistari í veltivigt UFC innan fimm bardaga. Núverandi heimsmeistari er hættur og því hefur leiðin opnast aðeins. Af þeim sem eftir eru í veltivigtinni er Gunni bestur. Hann verður heimsmeistari innan tólf mánaða,“ segir John Kavanagh.

Um klukkustund var í kvöldæfingu þegar Fréttablaðið ræddi við Kavanagh um miðjan dag í gær en svo var alveg klárt hvað átti að gera um kvöldið.

„Gunni er búinn að þrá að fá sér steik alla vikuna. Hann náði þyngdinni í dag þannig hann fær steik. Svo ætlum við á nýju 300-myndina í kvöld. Við förum vanalega í bíó kvöldið fyrir bardaga. Það drepur tímann,“ segir John Kavanagh, þjálfari Gunnars Nelson að lokum.

MMA

Tengdar fréttir

Leiðin að búrinu: Gunnar Nelson vs. Omari Akhmedov

Nú er aðeins vika í stærsta bardaga Íslandssögunnar! Gunnar Nelson berst gegn hinum rússneska Omari Akhmedov þann 8. mars í London og er bardaginn í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport.

Gunnar: Þá hefðu ekki allir lifað af

Gunnar Nelson ræðir ýmislegt við erlenda fjölmiðla í London og meðal annars um bílslysið í október þar sem hann og félagar hans sluppu ótrúlega vel. Gunnar og félagar í Mjölni voru þá á leið í óvissuferð er bíll þeirra valt ofan í Þjórsá.

Þjálfari Gunnars Nelson: Enginn stjórnar sjálfum sér betur en Gunnar

Gunnar Nelson er á leiðinni til London þar sem hann mætir Rússanum Omari Akhmedov í UFC-bardaga í í O2 Arena um næstu helgi. Akhmedov hefur ekki tapaða bardaga eins og Gunnar. John Kavanagh, írskur MMA-þjálfari Gunnars, ræddi við Guðjón Guðmundsson í kvöldfréttum Stöðvar tvö.

Upphitun fyrir UFC bardagana annað kvöld

Annað kvöld fer fram eitt stærsta bardagakvöld í sögu Íslands en þá mætir Gunnar Nelson aftur í búrið. Gunnar berst gegn Omari Akhmedov en bardagi þeirra er fyrsti bardaginn á aðal hluta bardagakvöldsins. Á bardagakvöldinu eru 10 frábærir bardagar en hér eru fjórir aðal bardagar kvöldsins.

Gaf 300 aðdáendum eiginhandaáritun

Framundan er þriðji UFC-bardagi Gunnars Nelson en hann berst við Rússann Omari Akhmedov í O2-höllinni í London á laugardaginn.

Greining á styrkleikum og veikleikum Gunnars

Eins og landsmönnum er kunnugt um mætir Gunnar Nelson aftur í búrið næstkomandi laugardag þegar hann berst við hinn rússneska Omari Akhmedov. Bardaginn fer fram í O2 Arena í London og verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport! En hverjir eru styrkleikar og veikleikar Gunnars?




Fleiri fréttir

Sjá meira


×