Íslensk listaverk prýða snjóbretti í Sotsjí Gunnar Leó Pálsson skrifar 17. febrúar 2014 12:00 Margeir Dire Sigurðsson og Georg Óskar Giannakoudakis, ásamt Míu Margeirsdóttur, vinna vel saman og skipa listamannatvíeykið Góms. Mynd/Einkasafn „
Brettin sem listaverkin okkar prýða eru komin í sölu,“ segir listamaðurinn Margeir Dire Sigurðsson en hann ásamt Georg Óskari Giannakoudakis mynda saman listamannatvíeykið Góms. Þeir hönnuðu listaverk sem prýðir snjóbretti sem íþróttavörumerkið Head hefur sett í sölu. Head er þekkt merki í íþróttaheiminum og þá sérstaklega í vetraríþróttaheiminum.Hér sjáum við verkið sem prýðir snjóbrettin.Mynd/EinkasafnSvissneska snjóbrettadívan Sina Candrian notar bretti sem verk Góms prýðir á Vetrarólympíuleikunum í Sotsjí. „Það er gaman að sjá svona virtan snjóbrettakeppanda nota bretti með okkar listaverki,“ segir Margeir léttur í lundu. Þeir félagar eru æskuvinir og hafa unnið saman í myndlist í allmörg ár. Fyrir utan brettalistaverk vinnur Margeir hörðum höndum við að skreyta veggina sem umlykja hjartagarðinn á milli Laugavegs og Hverfisgötu. „Ég er einnig að vinna í því að opna eigið gallerí og verslun sem mun heita 33, enda stendur sú aðstaða við Laugaveg 33,“ útskýrir Margeir. Þá er Georg Óskar með sýningu í Reykjavík Art Gallery, við Skúlagötu 30.
Mest lesið Þetta fengu ráðherrarnir gefins Lífið Isiah Whitlock Jr. látinn Lífið Egill Ólafs og Gísli Marteinn sprækir á annan í jólum Menning Móðurmorð í blóðugu jólaboði Gagnrýni Opnar sig um augnlokaaðgerðina Lífið Jólaboð Evu: Kalkúnabringur með öllu tilheyrandi Matur Heitustu lögin á FM árið 2025 Tónlist Þegar Bardot fór í „leyniferðalag“ til Íslands Lífið Clooney orðinn franskur Lífið Von á barni með þeim nýja átta mánuðum eftir skilnaðinn Lífið Fleiri fréttir Opnar sig um augnlokaaðgerðina Blö byrjar árið á bingói Isiah Whitlock Jr. látinn Þetta fengu ráðherrarnir gefins Sautján ára Glúmur leigði bíl og leitaði Bardot á frönsku rivíerunni Illugi Jökuls gómaði rottuunga eftir klukkutíma eltingaleik Clooney orðinn franskur Þegar Bardot fór í „leyniferðalag“ til Íslands Idris Elba sleginn til riddara fyrir baráttu gegn hnífaburði Blysröð í anda þjóðhátíðar í stað brennu Von á barni með þeim nýja átta mánuðum eftir skilnaðinn Spurt var um fólkið sem var grátandi, ælandi og öskrandi Kryddsíld fagnar afmæli og öllum er boðið Melanie Watson er látin Telur notkun á lagi í Miðflokks-stuðningsmyndbandi siðlausa Stjörnulífið: „Ég get ekki frestað þessu lengur“ Heldur ótrauð áfram þrátt fyrir að ná ekki milljónamarkmiðinu Brigitte Bardot er látin Glódís Perla og Kristófer gengu í það heilaga Bæði sorg og gleði að ala upp fimm börn með sérþarfir Sjálfur jólasveinninn skotspónn samsæriskenninga Þakkar Trump í ólettutilkynningunni Íslenskur mágur Rex Heuermann efins um ódæði hans Vinsælustu myndböndin á Vísi á árinu Frægir fjölguðu sér árið 2025 Gítarleikari The Cure er látinn Skilaði týndum heyrnartólum alla leið til Hamborgar Sjáðu nýja stiklu úr stjörnuprýddri hasarmynd Balta Ásgeir Kolbeins furðu lostinn yfir steini í jólapakkanum Viðtöl ársins 2025: Missir, afsögn ráðherra, umsáturseinelti og læknir sem þóttist vera með krabbamein Sjá meira
Viðtöl ársins 2025: Missir, afsögn ráðherra, umsáturseinelti og læknir sem þóttist vera með krabbamein