„Ég hafði aldrei séð Með allt á hreinu“ Gunnar Leó Pálsson skrifar 13. febrúar 2014 08:00 Helgi Valur Gunnarsson, nemandi í Verzlunarskóla Íslands, hefur vakið mikla athygli í hlutverki Stinna stuð í söngleiknum Með allt á hreinu sem skólinn setur upp. Vinarbeiðnirnar hrannast upp á Facebook fyrir vikið. fréttablaðið/daníel „
Ég hafði ekki séð Með allt á hreinu áður en ég vissi að skólinn ákvað að setja upp söngleikinn,“ segir Helgi Valur Gunnarsson, nemi í Verzlunarskóla Íslands, en hann hefur vakið athygli í hlutverki Stinna stuð í uppsetningu skólans á söngleiknum Með allt á hreinu. Hann segir að persóna Egils Ólafssonar hafi heillað hann mest þegar að hann sá myndina fyrst en hann hafi þó ekki búist við því að fá þetta eftirsótta hlutverk. Helgi Valur er á sínu fyrsta ári í skólanum og hefur lítið komið að tónlist fyrr en núna. „Ég byrjaði að syngja af alvöru fyrir svona ári en hafði ekkert verið að leika nema þegar ég tók þátt í Skrekk,“ segir Helgi Valur. Þar sem að hann er óreyndur í leiklistinni hlýtur það að taka á taugarnar að bregða sér í hlutverk einnar vinsælustu persónu í íslenskri kvikmyndasögu. „Það er mikil pressa að leika Egil Ólafsson en það er hins vegar mjög gaman. Þetta er auðvitað stressandi en það fer að minnka þegar nokkrar sýningar eru liðnar. Stressið var rosalegt fyrst,“ útskýrir Helgi Valur. Hann er að upplagi íþróttamaður mikill og áttu íþróttirnar hug hans allan á yngri árum. Seinna meir hefur hneigð hans til listarinnar aukist til muna. Verzlunarskóli Íslands er þekktur fyrir íburðarmiklar Nemendamótssýningar og er Með allt á hreinu engin undantekning þar á. Breytir þátttaka í svona sýningu ekki hinu daglega lífi talsvert? „Þetta breytir hinu daglegu lífi mikið því þetta er mjög tímafrekt.“ Helgi Valur segir einnig að hann hafi fengið mikla athygli á samfélagsmiðlinum Facebook. „Ég hef fengið töluvert af vinarbeiðnum og pókum á Facebook en það er bara gaman að því.“ Helgi Valur stefnir á enn frekari tónlistar- og leiklistarframa eftir Verzlunarskólann. „Ég ætla klárlega að halda áfram í tónlistinni og leiklistinni.“
Mest lesið Þeir lofuðu rokki en afhentu rækjusamloku á Þingvöllum Lífið Stórstjörnur tróðu upp í útskriftarveislum Verzlinga Lífið Áslaug lék eftir útskriftarpósu móður sinnar Lífið Draumabrúðkaup Gerðar við Garda-vatn Lífið „Auðveldara hér að vera bara eins og maður er“ Tíska og hönnun Stjúpur og fjólur það heitasta Lífið Sagt að drulla sér heim þegar hún ætlaði að kjósa í fyrsta sinn Lífið „Við erum bara tvö eftir“ Lífið Vill helst brenna myndir frá unglingsárunum Tíska og hönnun „Formaður Sjálfstæðisflokksins átti eflaust flott úr“ Lífið Fleiri fréttir Stórstjörnur tróðu upp í útskriftarveislum Verzlinga Áslaug lék eftir útskriftarpósu móður sinnar Draumabrúðkaup Gerðar við Garda-vatn Stjúpur og fjólur það heitasta Þeir lofuðu rokki en afhentu rækjusamloku á Þingvöllum „Formaður Sjálfstæðisflokksins átti eflaust flott úr“ Sagt að drulla sér heim þegar hún ætlaði að kjósa í fyrsta sinn Krakkatía vikunnar: Bein, Grettir og gúrkutíð Grafinn í sand í sólarhring Fréttatía vikunnar: Eldur, Karl III og Þjóðhátíð „Við erum bara tvö eftir“ Afi snýr aftur á litla sviði Þjóðleikhússins Allir fárveikir eftir tónlistarmyndband Helgi Björns og Ragga Gísla ætla að trylla lýðinn með tali og tónum „Ég viðurkenni alveg að ég mun sakna Tenerife“ Tilkynntu óvart dauða konungsins „Ógeðslega flókinn tími í lífi fólks“ Ætla valdasjúkir tækifærissinnar að steypa okkur í glötun? Hvað veistu um... flugvelli? Vignir Vatnar opnar sig um sjálfsvígshugsanir Lygilega erfið þrautabraut Nemendur í Seljaskóla graffa 56 metra listaverk við skólann Fyrrverandi þingmaður selur í Laugardalnum Eyþór og Ástríður eignuðust lítinn Arnalds Þurfti hjálp við að anda og lítið var um svör Kvikmyndagerðarmenn framtíðarinnar í fíling Frumsamin kórverk í heimabruggi bílskúrsbands Ari Edwald og Ingibjörg keyptu súkkulaðihöllina Naglbíts-barn á leiðinni Sólveig Anna og Marta María léku á als oddi og Óli tottaði vindil Sjá meira