Hatursorðræða á netinu 11. febrúar 2014 10:00 Margrét Steinarsdóttir segir internetið hafa opnað stóran vettvang fyrir hatursorðræðu. Fréttablaðið/GVA
Alþjóðlegi netöryggisdagurinn verður haldinn hátíðlegur í ellefta sinn í dag. Í tilefni dagsins stendur SAFT, Samfélag, fjölskylda og tækni, sem er vakningarátak um örugga og jákvæða tölvu- og nýmiðlanotkun barna og unglinga á Íslandi, fyrir ráðstefnu í Skriðu, aðalbyggingu Menntavísindasviðs Háskóla Íslands við Stakkahlíð, frá tólf á hádegi til fjögur. Ráðstefnan er haldin í samstarfi við ráðuneyti innanríkis-, velferðar- og mennta- og menningarmála, Póst- og fjarskiptastofnun og Menntavísindasvið Háskóla Íslands.Hanna Birna Kristjánsdóttir innanríkisráðherra heldur opnunarávarp og býður gesti velkomna og Eygló Harðardóttir flytur einnig erindi. Nokkrar málstofur verða haldnar, en þær eru Ábyrgð og vernd Íslendinga á netinu, Varðveisla persónuupplýsinga og Hvernig byggjum við upp „stafræna borgaravitund“?Margrét Steinarsdóttir er framkvæmdastjóri Mannréttindaskrifstofu Íslands og er hún ein þeirra sem flytja erindi á málstofunni um ábyrgð og vernd Íslendinga á netinu, en málstofunni stýrir Ingimar Karl Helgason blaðamaður. „Við munum meðal annars benda á skýrslu sem Mannréttindaskrifstofa gaf út um hatursorðræðu og segja frá efni hennar. Svo munum við tala almennt um hatursorðræðu og internetið – því internetið hefur auðvitað opnað stóran vettvang fyrir ýmiss konar fordóma og hatursorðræðu,“ segir Margrét. „Við ætlum einnig að snerta á alþjóðlega regluverkinu um internetumgengni og þau vandkvæði sem fylgja því að geta skýlt sér á bak við löggjöf annarra ríkja með því að skrá lén í ríkjum þar sem ekki er jafnstrangt regluverk um internetnotkun.“ Hún segir þetta verða örerindi en vonast til þess að líflegar umræður skapist í kjölfarið. „Við munum ræða um tjáningarfrelsið og svo aftur takmarkanir á því vegna hatursorðræðunnar – við vonum að við komum að sem mestum upplýsingum sem við teljum að geti komið að gagni í umræðunni,“ segir Margrét. Þemað á netöryggisdeginum í ár er Gerum netið betra, saman og munu yfir hundrað þjóðir um allan heim standa fyrir skipulagðri dagskrá þennan dag.
Mest lesið Þurfti að vara syni sína við eftir umfjöllun um meintan eltihrelli Lífið Fór á skeljarnar á toppi hæsta tinds Lífið „Borgarstjórnarmeirihlutanum er ekki viðbjargandi“ Menning Fréttatía vikunnar: MS, þungunarpróf og glaumgosi Lífið Balti og Sunneva brugðu sér af bæ Bíó og sjónvarp Dóttir ísdrottningar fetar í fótspor móðurinnar Lífið Boltamömmur í miðjumoði Gagnrýni Prótein á að vera í forgangi Lífið samstarf Top Gun- og Alien-leikari látinn Lífið Af hverju haldast ekki liðir & krullur í hárinu? Lífið samstarf Fleiri fréttir Þurfti að vara syni sína við eftir umfjöllun um meintan eltihrelli Fór á skeljarnar á toppi hæsta tinds Fréttatía vikunnar: MS, þungunarpróf og glaumgosi Dóttir ísdrottningar fetar í fótspor móðurinnar Top Gun- og Alien-leikari látinn Hvað veistu um… Karl Bretakonung? Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Færsluóður miðaldra höfundur: „Ég man ekki eftir að hafa gengið í þessar grúppur“ „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Tólf barna móðir selur sveitadraum Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Sjá meira