Lífið

Femínísk flóðbylgja

Ólöf Skaftadóttir skrifar
Vigdís Finnbogadóttir lét sig ekki vanta í fyrra.
Vigdís Finnbogadóttir lét sig ekki vanta í fyrra. MYND/Kári Björn Þorleifsson
„Ég vil lifa í heimi þar sem konur þurfa ekki að óttast það að vera barðar, limlestar og áreittar fyrir það eitt að vera konur. Það þarf að eiga sér stað hugarfarsbreyting – í raun bylting. Milljarður rís er nauðsynlegur partur af þessari byltingu sem þarf að eiga sér stað í heiminum sem leiðir til aukins jafnréttis kvenna og stúlkna,“ segir Soffía Sigurgeirsdóttir framkvæmdastýra UN Women á Íslandi og heldur áfram.

„Þessi kerfisbundna mismunun á konum og stúlkum á sér stað um allan heim. Ein af hverjum þremur konum verður fyrir ofbeldi á lífsleiðinni.“

Við viljum vekja athygli á stöðu kvenna út um allan heim og við ætlum að gera það með dansi í Hörpu í hádeginu 14. febrúar, í Hofi á Akureyri, í Félagsheimilinu Herðubreið á Seyðisfirði og á Ísafirði.“

UN Women skorar á skóla, fyrirtæki, stofnanir og einstaklinga að sýna samstöðu og stuðning í verki og taka þátt í dansinum og gleðinni sem fylgir þessari vitundarvakningu.

„Við höfum séð árangur en á síðasta ári áttu sér stað róttækar breytingar á Indlandi í kjölfar hrottalegrar hópnauðgunar og löggjöf hvað varðar nauðganir og önnur kynferðismál hert. Þá er einnig verið að setja lög sem banna sýruárásir og torvelda þannig aðgang að sýru þar í landi og þolendur slíks ofbeldis eru í auknum mæli að stíga fram í réttindabaráttunni.“

Í fyrra komu saman 2.100 manns og dönsuðu af lífi og sál fyrir mannréttindum kvenna og stúlknaMYND/Kári Björn Þorleifsson
Milljarður rís er haldið í samstarfi við tónlistarhátíðina Sónar og Rvk Lunch Beat og Dj Margeir mun sjá fyrir tónlistinni. 

„Í fyrra komu saman 2.100 manns og dönsuðu af lífi og sál fyrir mannréttindum kvenna og stúlkna. Í ár viljum við fá að minnsta kosti 3.000 manns í Hörpu og um land allt,“ segir Soffía.

Hægt er að taka þátt í herferðinni á samfélagsmiðlunum með því að setja inn myndir eða myndbönd með kassmerkinu #milljardurris14.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×