Fjárhagserfiðleikar þrátt fyrir greiðsluaðlögun Linda Blöndal skrifar 23. september 2014 19:30
Rúmlega 9200 umsóknir vegna greiðsluerfiðleika hafa borist Umboðmanni á þeim fjórum árum sem hann hefur starfað. Um 36 prósent af þeim rúmlega 5000 einstaklinga sem komust í greiðsluaðlögun á hins vegar enn í verulegum skuldavanda vegna lágra tekna. Könnunin var kynnt hjá Umboðsmanni í morgun. Fram kom í máli Ástu Sigrúnar Helgadóttur umboðsmanns að meira en 70 prósent segja viðmót starfsfólks almennt gott. Í könnuninni sjáist að ánægjan hafi aukist með tímanum sem sýni að starf embættisins hafi þróast í rétta átt. Helmingur umsóknar fór í greiðsluaðlögun Af hinum 9200 umsóknum var beðið var um fjárhagsaðstoð til dæmis vegna gjaldþrotaskipta en flestir eða 5200 sóttu um greiðsluaðlögun og er 4900 málanna lokið. Um helmingur þeirra hefur fengið greiðsluaðlögunarsamning við kröfuhafa og þar með einhverja niðurfellingu skulda. Um 30 prósent var hins vegar synjað um greiðsluaðlögun og 17 prósent dró umsókn sína til baka. Ásta Sigrún segir að það geti ekki talist lágt hlutfall af umsóknum sem komist í greiðsluaðlögun miðað við ánægjumælingu í könnuninni.Ríkið verður að koma meira að borðinu Ásta bendir á að ríkið sem eigi kröfur á einstaklinga þurfi að koma meira kerfisbundið að úrlausnum mála, varðandi skuldir eins og skattaskuldir, meðlagsskuldir og aðrar skuldir við opinberar stofnanir. Það hafi lengi verið rætt og verði það áfram í aðdraganda breyttra laga um Umboðsmann.Óleyst mál frá 2010 Reynsla Sigrúnar Theodóru Steinþórsdóttur, þriggja barna einstæðrar móður og kennara í Mosfellsbæ er þó ekki góð en hún leitaði til umboðsmanns skuldara árið 2010. Mál hennar hefur nú verið óleyst hjá kærunefnd Umboðsmanns í næstum heilt ár. Kærunefndin er sjálfstæð stjórnsýslunefnd innan velferðarráðuneytisins.Lagði ekki nóg til hliðar Sigrún sem ræddi við Stöð 2 í kvöld, segir að hún hafi átt að leggja fyrir 3,4 milljónir í banka á 22 mánuðum sem hún var í greiðsluskjóli. Hún hafi bent á að hún hafi ekki haft efni á því, annnars hefði hún ekki sótt um fjárhagshjálp til að byrja með. "En þeir hlustuðu ekkert á það", sagði Sigrún. Reiknað er með lægri framfærslukostnaði hjá Umboðsmanni en gert er innan Velferðarráðuneytisins og segir Ásta Sigrún ástæðuna þá að úrræðin séu hugsuð til skamms tíma. Þrír ólíkir umsjónarmenn Sigrún segir að þrír umsjónarmenn hafi haft með mál hennar að gera og ferlið sé búið að vera mjög langt og óvissukennt. Fyrsti umsjónarmaðurinn sem henni var úthlutað hafi verið skilningsríkur og sett sig vel inn í hennar mál en Sigrún skildi árið 2007 og býr í húsi með þremur börnum sem er að fullu veðsett. Hún segist því ekki hafa getað selt húsið til að afla fjár og ekki haft efni á því að fara á leigumarkaðinn. Bið eftir félagslegu húsnæði væri mjög löng.Leið eins og þriðja flokks manneskju Annar umsjónarmaðurinn, segir Sigrún, vissi lítið sem ekkert um hennar mál og sýndi því lítinn áhuga. "Ég fékk svo einungis einn fund með þriðja umsjónarmanninum og eftir fundinn fékk ég póst frá honum þar sem hann ætlaði að leggja það til að neita mér um greiðsluaðlögun og vildi til dæmis fá kvittanir fyrir hlutum sem ég hafði keypt fyrir fjölskylduna eins og tvö reiðhjól á 15 þúsund hvort á bland.is fyrir syni mína og 20 þúsund króna sófa á heimilið á bland. Sigrún segist hafa upplifað þjónustuna eins og að geðþóttaákvarðanir réðu ferð. "Ég varð eftir síðasta fundinn mjög svartsýn, reið og sár yfir því hvers konar meðferð maður fékk. Mér fannst ekkert hlustað á mig, enginn skilningur og mér fannst þetta hreinlega bara niðurlæging. Mér leið eins og þriðja flokks manneskju. Stimpluð sem skuldari".Vilja fá reynslu fólks fram Ásta Sigrún segir að könnunin sem kynnt var í morgun og er gerð í fyrsta sinn hafi einmitt verið til að skoða hvernig tekist hefur til en hún fagnaði því að fólk stigi fram og benti á það sem betur mætti fara í þjónustunni. Í könnuninni kom einnig fram að tekjulægri notendur eru ánægðari en hinir tekjuhærri. Ríflega 60 prósent þeirra sem hafa fengið greiðsluaðlögunarsamninga telji sig geta staðið við þá en tíu prósent alls ekki. Konur telja sig frekar geta staðið við samninginn en karlar. 63 prósent svarenda sögðu að úrræði Umboðsmanns hafi komið í veg fyrir frekari skuldasöfnun og rúmur þriðjungur hafi getað komið alfarið í veg fyrir frekari umframskuldir. Rúmlega þriðjungur sem fékk úrræði hjá Umboðsmanni er þó enn í miklum efnahagslegum þrenginum þótt skuldir hafi verið felldar niður eða 36 prósent úr þeim hópi. Betri staða hjá rúmlega 40 prósent umsækjendaUm hvort fjárhagsstaða sé betri en áður eftir aðstoð segja rúmlega 40 prósent af öllum sem sóttum um hjálp svo vera en tæpur fjórðungur telur hana verri, eins eða svipaða. Nánar má lesa um könnunina á vef Umboðsmanns www.ums.is
Mest lesið Átök á aðalfundi og lögregla kölluð til Innlent Segir samstarfsfólk Katrínar hafa hvatt sig til að draga sig úr leik Innlent De Niro kallaði Trump skrímsli fyrir utan dómshúsið Erlent „Er búinn að blokka 237 manneskjur á tíu dögum“ Innlent „Fyrirvarinn var í rauninni enginn“ Innlent Sindri Freyr er látinn Innlent Undir yfirborði kosningabaráttunnar kraumi svæsinn slagur Innlent Fyrstu tölur frá Reykjavík ættu að gefa góða mynd af úrslitum Innlent Öllu tjaldað til við opnun nýrra undirganga Innlent Katrín græði stórum á vangetu kjósenda til að kjósa taktískt Innlent Fleiri fréttir Öllu tjaldað til við opnun nýrra undirganga Segir samstarfsfólk Katrínar hafa hvatt sig til að draga sig úr leik Átök á aðalfundi og lögregla kölluð til Undir yfirborði kosningabaráttunnar kraumi svæsinn slagur Bíða krufningar til að varpa ljósi á atburðarásina „Fyrirvarinn var í rauninni enginn“ Fyrstu tölur frá Reykjavík ættu að gefa góða mynd af úrslitum „Er búinn að blokka 237 manneskjur á tíu dögum“ Katrín græði stórum á vangetu kjósenda til að kjósa taktískt Andlát í Bolungarvík og forsetaefni í slorinu Héraðsdómur ruddur vegna fjölskyldutengsla og fyrri starfa dómara Áfengi og fíkniefni mældust í stýrimanninum Tvíburafolöld mætt í heiminn í Suðurnesjabæ Ferðafólki bjargað úr sjálfheldu við Þiðriksvallavatn Þriðjungur þekkir ekki neitt til Eiríks og Viktors Sindri Freyr er látinn Voru látin í einhvern tíma áður en lögregla fór inn Vill sjá leiðtoga á Norðurlöndunum en ekki aumingja og gungur Mótor bátsins var of stór og mennirnir ekki í björgunarvestum Óttast að þvingun og nauðung verði færð í lög Andlát til rannsóknar í Bolungarvík Áhyggjur læknanna ótímabærar og byggðar á misskilningi Ástandið í Hafnarfirði geti haft langvarandi áhrif á börn „Okkar hlutverk að halda utan um hvert annað“ Ræddu lokasprett æsispennandi kosningabaráttu Biður kvikmyndagerðarmanninn afsökunar Tvö látin en ekkert bendi til saknæms atburðar Enginn í haldi í tengslum við mannslát í Bolungarvík Slökkvilið kallað út vegna sprenginga í Hafnarfirði Lögregla rannsakar andlát í Bolungarvík Sjá meira