Rúrik fótboltakappi semur lag um móður sína Marín Manda skrifar 2. apríl 2014 09:30 Rúrik útilokar ekki að gefa út fleiri lög.
Rúrik Gíslason gaf móður sinni frumsamið lag um samband þeirra á afmælisdaginn. Sverrir Bergmann söng lagið, Í augum mínum, sem var spilað í óvissuferð fjölskyldunnar þegar móðirin varð sextug. Móðir hans var himinlifandi. „Fyrsta erindið átti ég síðan fyrir einu og hálfu ári og hafði aldrei klárað þetta lag en þótti alltaf svolítið vænt um það og vissi að einn daginn myndi ég klára það,“ segir Rúrik Gíslason fótboltamaður. „Svo hringdi systir mín í mig og sagði að það væri búið að plana óvissuferð fyrir móður okkar á sextugsafmælinu og bað hún mig að semja lag til hennar því ég hafði því miður ekki tök á því að vera með.“ Hann segist þá hafa sest niður með gítarinn sinn og klárað lagið sem fjallar um samband þeirra mæðgina og heitir Í augum mínum. Því næst hafði hann samband við Sverri Bergmann söngvara og Halldór Gunnar Fjallabróður sem sungu og spiluðu inn lagið fyrir hann. Hann segir þá félaga eiga mikið hrós skilið fyrir útfærsluna á laginu sem var spilað fyrir móður hans á sjálfan afmælisdaginn. „Ég hef mjög gaman af því að semja lög og geri ágætlega mikið af því en ég hef ekkert verið að reyna meika það því það eru aðrir sem eru betri en ég að flytja lögin. Ég ber ótrúlega mikla virðingu fyrir íslenskri tónlist svo ég hef ekkert verið að troða mér í sviðsljósið,“ segir Rúrik, sem þó vill ekki útiloka að hann gefi út annað lag einn daginn. „Fótbolti á hug minn allan og hitt er áhugamál. Það er ómögulegt að segja hvað ég geri síðar og veltur svolítið á viðbrögðunum við þessu lagi, hvort maður sé alveg glataður eða hvort maður eigi semja meira. Mamma var að minnsta kosti ánægð og það skiptir mig öllu máli,“ segir hann glaður í bragði.
Tengdar fréttir Rúrik samdi lag fyrir mömmu sína Knattspyrnumanninum Rúriki Gíslasyni er margt til lista lagt en hann sýndi á sér nýja hlið í tilefni afmæli móður sinnar. 1. apríl 2014 10:18 Mest lesið „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Lífið Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Lífið Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Lífið Tólf barna móðir selur sveitadraum Lífið Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Lífið Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Lífið Stjörnuleikur Góa og Unnar bjargar Höggi Gagnrýni Góðgerðartreyja til styrktar Ingvari hönnuð af 66° Norður Tíska og hönnun Ölvuðu Íslendingarnir í Kristjaníu stóðu upp úr Tónlist Haribo-kastalar og hrekkjavökugleði í Bónus Lífið samstarf Fleiri fréttir „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Tólf barna móðir selur sveitadraum Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn Sjá meira
Rúrik samdi lag fyrir mömmu sína Knattspyrnumanninum Rúriki Gíslasyni er margt til lista lagt en hann sýndi á sér nýja hlið í tilefni afmæli móður sinnar. 1. apríl 2014 10:18