Svakalega sætir og ferlega ljótir Ragnheiður Tryggvadóttir skrifar 17. febrúar 2014 10:00 Matthildur María Pálsdóttir er mikill dýravinur. Mynd/Valli
Við eigum kvenkyns ástargauk sem heitir Kisa og hún eignaðist kærasta í haust, hann Bongó. Þau eignuðust síðan unga,“ útskýrir Matthildur María Pálsdóttir þegar hún er spurð út í gæludýrin á heimilinu en hún og bróðir hennar, Hálfdán Hörður, hafa hjálpast að við að ala upp ungana sem komur úr eggjum fyrir nokkru. „Áður en Kisa og Bongó eignuðust almennilegan varpkassa reyndu þau að búa til hreiður undir hillum inni í borðstofu. Pabbi smíðaði svo varpkassa í búrið þeirra svo næst verpti Kisa í hann. Það liðu um það bil þrjár vikur þangað til það komu ungar. Kisa sat á allan tímann og við sáum hana varla koma út til að borða. Við höldum að Bongó hafi gefið henni mat, eins og hann gerði síðan fyrir ungana,“ segir Matthildur. Fjórir ungar komur úr eggjum og þrír lifðu. Matthildur segir þá ekki beinlínis hafa verið krúttlega fyrst en samt dálítið sæta. „Þeir voru eiginlega bæði svakalega sætir og ferlega ljótir,“ segir hún sposk. „Þeir voru með bleika húð og gulbleikt fiður og með húð yfir augunum. Augun opnuðust ekki fyrr en eftir rúma viku og þá voru þeir dálítið sætir í nokkra daga. Svo hættu þeir aftur að vera sætir þegar fiðrið fór að detta af en fjaðrirnar ekki almennilega komnar. Þeir eru með stóran sarp framan á bringunni þar sem þeir geyma matinn og á meðan þeir voru fiðurlausir voru þeir eiginlega eins og skrítnir snjókallar, með tvær stórar kúlur fyrir búk. En eftir að fjaðrirnar komu almennilega eru þeir mjög fallegir.“ systkinin völdu nöfn á ungana og vildu hafa þau í stíl. Ungarnir heita Krummi, Þröstur og Lóa. „Við höfum einmitt áður alið bæði hrafnsunga og þrastarunga, en engan lóuunga,“ segir Matthildur. „Hálfdán fann einu sinni lóuunga í Vatnaskógi en flokkstjórunum fannst hann eiga að vera frekar úti í náttúrunni.“Kunna ungarnir að fljúga? „Já, þeir kunna það eiginlega allt of vel. Við höfum þurft að vængstýfa þá tvisvar, en þá eru flugfjaðrirnar klipptar. Þá eru þeir rólegri og fljúga ekki út um allt hús, eins og þeir voru farnir að gera.“ Matthildur segir Ástargauka geta lært að tala en það geti verið erfitt að skilja þá þar sem þeir séu skrækari í rómnum en aðrir páfagaukar. Hún býst samt ekki við að kenna Krumma, Þresti og Lóu nein orð þar sem ungarnir fari líklega á ný heimili bráðum. „Við viljum helst eiga þá alla, en mömmu og pabba finnst aðeins of mikið að eiga fimm fugla.“
Mest lesið Þurfti að vara syni sína við eftir umfjöllun um meintan eltihrelli Lífið Fór á skeljarnar á toppi hæsta tinds Lífið „Borgarstjórnarmeirihlutanum er ekki viðbjargandi“ Menning Balti og Sunneva brugðu sér af bæ Bíó og sjónvarp Fréttatía vikunnar: MS, þungunarpróf og glaumgosi Lífið Dóttir ísdrottningar fetar í fótspor móðurinnar Lífið Boltamömmur í miðjumoði Gagnrýni Prótein á að vera í forgangi Lífið samstarf Top Gun- og Alien-leikari látinn Lífið Af hverju haldast ekki liðir & krullur í hárinu? Lífið samstarf Fleiri fréttir Þurfti að vara syni sína við eftir umfjöllun um meintan eltihrelli Fór á skeljarnar á toppi hæsta tinds Fréttatía vikunnar: MS, þungunarpróf og glaumgosi Dóttir ísdrottningar fetar í fótspor móðurinnar Top Gun- og Alien-leikari látinn Hvað veistu um… Karl Bretakonung? Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Færsluóður miðaldra höfundur: „Ég man ekki eftir að hafa gengið í þessar grúppur“ „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Tólf barna móðir selur sveitadraum Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Sjá meira