Efstu sæti Sjálfstæðisflokksins óbreytt í Reykjavík Kristján Hjálmarsson og Andri Ólafsson skrifar 16. janúar 2014 09:00 Halldór Halldórsson, Júíus Vífill Ingvarsson og Kjartan Magnússon.
Lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík verður ekki breytt frá niðurstöðu prófkjörs flokksins í nóvember og því verður hann skipaður karlmönnum í þremur efstu sætum. Þetta herma heimildir Fréttablaðsins. Kjörnefnd flokksins í Reykjavík mun í dag leggja þessa tillögu fyrir fulltrúaráðsfund en eina breytingin sem gerð verður á listanum fyrir borgarstjórnarkosningarnar 31. maí næstkomandi er sú að frambjóðendur fyrir neðan þriðja sæti færast einu sæti ofar þar sem Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir borgarfulltrúi, sem hafnaði í fjórða sæti í prófkjöri, mun ekki taka sæti á lista.Þórey Vilhjálmsdóttir og Jarþrúður ÁsmundsdóttirEkki verður farið að kröfum þeirra sem kallað hafa eftir fleiri konum í forystusæti á listanum en hávær krafa þar um heyrðist eftir prófkjör flokksins þar sem ljóst varð að karlmenn skipa efstu þrjú sætin. Þeir eru Halldór Halldórsson, Júlíus Vífill Ingvarsson og Kjartan Magnússon. Framkvæmdastjórn Landsambands sjálfstæðiskvenna sendi frá sér yfirlýsingu í desember þar sem sambandið harmaði hversu hlutur kvenna væri rýr í efstu sætum lista flokksins fyrir borgarstjórnarkosningarnar í Reykjavík í vor ef niðurstöður prófkjörsins yrðu látnar standa og hvatti kjörnefnd til að nýta sér það svigrúm til breytinga sem hún hefur. Nýkjörinn formaður Landssambandsins er Þórey Vilhjálmsdóttir, aðstoðarmaður Hönnu Birnu Kristjánsdóttur innanríkisráðherra. Þáverandi formaður sambandsins, Jarþrúður Ásmundsdóttir, sagði í kjölfar prófkjörsins að það að stilla upp körlum í þrjú efstu sætin geti ekki talist sigurstranglegur listi og sagði niðurstöðuna mikil vonbrigði fyrir sjálfstæðiskonur. Það er Vörður, fulltrúaráð sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík, sem boðar til fundarins þar sem endanleg ákvörðun verður tekin.
Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Innlent Rubio: Ísland í miðjunni Innlent Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Innlent Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Innlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Bíði og bíði eftir Bjarna Innlent Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Fleiri fréttir Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Sjá meira