Hvetja til breytinga á lista Sjálfstæðisflokksins Fanney Birna Jónsdóttir skrifar 14. desember 2013 11:53 Framkvæmdastjórnin hvetur kjörnefnd til þess að hafa það í huga að helmingur borgarbúa eru konur og því mikilvægt að þær veljist til áhrifa ekki síður en karlar.
Framkvæmdastjórn Landssambands sjálfstæðiskvenna hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem þær hvetja til þess að konur verði í áhrifastöðum á lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. Þær hvetja kjörnefnd flokksins til að gera breytingar á listanum sem boðinn verður fram fyrir borgarstjórnarkosningar í vor og segja að til þess að geta horft björtum augum til framtíðar undir stjórn Sjálfstæðisflokksins þurfi fulltrúar beggja kynja að vera í áhrifastöðum. Í efstu þremur sætum flokksins eftir prófkjör í nóvember eru Halldór Halldórsson, Júlíus Vífill Ingvarsson og Kjartan Magnússon. Formaður stjórnar Landssambandsins er Þórey Vilhjálmsdóttir, aðstoðarmaður Hönnu Birnu Kristjánsdóttur innanríkisráðherra. Fyrrverandi formaður sambandsins, Jarþrúður Ásmundsdóttir, hafði áður tjáð sig um þennan rýra hlut kvenna og sagði það að stilla þremur körlum upp í efstu sætum gæti ekki talist sigurstranglegur listi. Yfirlýsingin í heild er svohljóðandi:Framkvæmdastjórn Landssambands sjálfstæðiskvenna harmar hversu hlutur kvenna er rýr í efstu sætum lista flokksins fyrir borgarstjórnarkosningar í Reykjavík í vor ef niðurstöður prófkjörs verða látnar standa og hvetur kjörnefnd til þess að nýta sér það svigrúm til breytinga sem nefndin hefur.Framkvæmdastjórnin hvetur kjörnefnd til þess að hafa það í huga að helmingur borgarbúa eru konur og því mikilvægt að þær veljist til áhrifa ekki síður en karlar.Með þrjá karla í efstu sætunum er því miður ekki hægt að halda því fram að konur muni hafa þar áhrif.Það er mikilvægt fyrir borgarbúa að Sjálfstæðisflokkurinn nái góðu kjöri og komist til áhrifa í borgarstjórn.Borgarbúar eru orðnir langþreyttir á gjaldskrárhækkunum, litlu aðhaldi í rekstri borgarinnar samhliða verri þjónustu.Skólakerfið og rekstur þess er einnig orðið mikið áhyggjuefni í ljósi nýjustu kannanna um árangur nemenda.Til þess að ná því markmiði að geta horft björtum augum til framtíðar undir traustri stjórn Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík - þurfa að vera fulltrúar beggja kynja í áhrifastöðum.
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Innlent NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Erlent Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Erlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Innlent Fleiri fréttir Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Sjá meira