Gera upp gamlar kirkjur Ragnheiður Tryggvadóttir skrifar 24. mars 2014 15:00 Hjónin Snorri Guðvarðsson og Kristjana Agnarsdóttir hafa sérhæft sig í að endurgera málverk í gömlum kirkjum. Þau féllu bæði fyrir þeirri gömlu tækni og handverki sem til þarf og vinna vel saman. mynd/ úr einkasafni "
Þetta er ákveðin kúnst. Það getur ekki hver sem er stokkið í þessi verk með okkur. Við segjum stundum að það þurfi að vera málari, listmálari og föndrari í sér og búa auk þess yfir ómældri þolinmæði,“ segir Snorri Guðvarðsson málari en hann og eiginkona hans, Kristjana Agnarsdóttir, ferðast um landið og endurgera málverk í kirkjum og gömlum húsum. Snorri segir þau bæði hafa kolfallið fyrir tækninni og handverkinu sem til þarf.Snorri hefur sérhæft sig í viðarmálun. Hann segir ómælda þolinmæði þurfa til slíkra verka. mynd/ úr einkasafni„Við vinnum með efni sem notuð voru fyrir hundrað árum, línolíum-málningu, línolíum-kítti og fleira. Við endurnýjum mikið viðarmálun sem sumir kalla „oðrun“, marmaramálun á súlum og gólfum og vinnum með blaðgull. Pabbi var mikið í viðarmálun og þannig kviknaði áhuginn hjá mér. Ég byrjaði árið 1976 á kirkjunni á Grund í Eyjafirði og féll algerlega fyrir þessari gömlu veröld. Ég sérhæfði mig sjálfur með því að lesa bækur, skoða myndir og gera endalausar tilraunir. Kristjana hefur unnið með mér í um 12 ár og það var eins hjá henni, hún féll strax fyrir þessu,“ segir Snorri og bætir við að þau hjónin séu afar samhent. „Kristjana er fullkominn félagi í þetta. Hún er fyrirmyndar málari og mikill föndrari í sér. Og miklu þolinmóðari en ég,“ segir hann sposkur. Alls eru þær orðnar fimmtíu, kirkjurnar sem hjónin hafa unnið við. Sumar þeirra hafa þau tekið í allsherjar yfirhalningu en unnið minni verk í öðrum. Þetta er seinleg vinna og yfirleitt flytja þau á staðinn í hvert sinn. Þeim finnst það lítið mál og oft fara þau aftur og aftur á sömu staðina.Úr Skinnastað í Öxarfirði.„Yfirleitt eru verkin fjármögnuð með styrkjum og algengt að einhver hluti sé tekinn í gegn eitt árið og svo annar árið eftir. Þetta eru hálfgerð eilífðarverkefni og við höfum alltaf eitthvað að gera,“ segir Snorri. „Næsta verk hjá okkur er Þykkvabæjarklausturskirkja, síðan kirkjan á Þverá í Laxárdal og svo á Litla-bæ í Skötufirði vestur á fjörðum.“ En sinna þau eitthvað venjulegri húsamálun? „Nei, ég á einhverjar rúllur úti í skúr, en það er nákvæmlega ekkert spennandi lengur,“ segir Snorri sposkur. „Við búum síðan í húsi sem byggt var árið 1877 og því stöðug vinna við að halda því við. Það á afar vel við okkur.“
Mest lesið Síminn stoppar ekki vegna heimildarmyndar Bíó og sjónvarp „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Lífið Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Lífið Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Lífið Færsluóður miðaldra höfundur: „Ég man ekki eftir að hafa gengið í þessar grúppur“ Lífið Tólf barna móðir selur sveitadraum Lífið Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Lífið White Lotus-stjarna bætist í leikhópinn Bíó og sjónvarp Kempa leikstýrir tálbeitutrylli Ólafs Darra Bíó og sjónvarp Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Lífið Fleiri fréttir Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Færsluóður miðaldra höfundur: „Ég man ekki eftir að hafa gengið í þessar grúppur“ „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Tólf barna móðir selur sveitadraum Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Sjá meira