Hætt við að selja meydóminn sinn á netinu þrátt fyrir 90 milljóna króna tilboð Kjartan Atli Kjartansson skrifar 12. maí 2014 12:50 Hanna Kern, kallaði sig Elizabeth Raine í fyrstu.
Bandaríski læknaneminn sem hugðist selja meydóm sinn á netinu hefur hætt við, þrátt fyrir mörg tilboð. Konan, sem heitir Hanna Kern, stofnaði vefsíðu undir nafninu Elizabeth Raine og tók á móti tilboðum í meydóm sinn. Kern segist hafa verið komin með tilboð upp á rúmlega nítíu milljónir króna þegar hún ákvað að hætta við. „Eftir að hafa reynt þetta af fullri alvöru hef ég komist að því að þetta var aldrei góð hugmynd,“ segir Kern og heldur áfram: „Ég skil vel af hverju öðrum konum hefur mistekist þetta.“ Kern ætlar að einbeita sér að læknanáminu sínu en tók fram í yfirlýsingu að hún væri með mjög sterkar skoðanir á vændi og rétti konunnar til þess að selja líkama sinn. Breska blaðið Daily Mail greindi frá því að Kern hefði fengið fá tilboð í meydóminn, miklu færri en hún hafði vonað. Fyrirtækið Unique Media PR, sem sá um kynningu á uppboðinu, fer líklega fram á einhverskonar bætur vegna þess að Kern hætti við. Samningurinn á milli Kern og fyrirtækisins fól í sér að ákveðin prósenta af hæsta boðinu í meydóm Kern færi til fyrirtækisins. Í fyrstu huldi Kern andlit sitt af hræðslu við að vera rekin úr skólanum sem hún nemur við. En í síðasta mánuði ákvað hún að stíga fram, eftir að einhverjir höfðu efast um að henni væri alvara með uppboðið. Kern segist hafa BA-gráðu í bæði verkfræði og líffræði. Á vefsíðu hennar kemur fram að hún sé 178 sentímetrar á hæð og vegi 59 kíló.Missti móður sína tíu ára Hin bandaríska Kern fluttist með foreldrum sínum til Sádí Arabíu, þegar hún var ung að aldri. Faðir hennar starfaði í olíugeiranum þar í landi. Hún segist halda uppboðið til þess að græða peninga fyrst og fremst, en nefnir einnig að henni þyki þetta vera ævintýri. Hún segist einnig ánægð að geta haft áhrif á gildismat fólks og finnst eftirsóknarvert að storka við venjum og hefðum. Hún hefur verið spurð af hverju hún sé enn hrein mey, tuttugu og sjö ára gömul. „Ég hef alltaf haft mikið að gera. Ég hef aldrei fundið þann rétta og strákar hafa aldrei verið í forgangi í mínu lífi. Kern segist ekki útiloka að eittvað meira en bara kynlíf komi út úr uppboðinu. „Ég útiloka ekki að ég finni ástina. En samt finnst mér það afar ólíklegt.“
Mest lesið Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Innlent Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir Innlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Erlent Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Erlent Fleiri fréttir Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Fimm handteknir og grunaðir um skipulagningu hryðjuverks Vill gera á Vesturbakkanum það sem gert var á Gasa Þúsundir tálma göngu Óraníureglunnar Hátt í þrjátíu drepnir í tveimur skotárásum Heimili rýmd nærri herflugstöð Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair „Ég hafna samningi þeirra“ Nýr sendiherra er Búi og kannast ekki við „þjóðarmorð á hvítum“ Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Gríðarlegur fjöldi fagnaði páfanum Sex látnir eftir að íbúðarbygging hrundi Stofna „samskiptarás“ til að meðhöndla gervigreind Sex ára stúlka setti heimsmet Hafi hafnað tillögu Írana um opnum Hormússunds Sjá meira