Kiel ekki í miklum vandræðum með Frisch Auf! í kvöld Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 19. nóvember 2014 20:49 Alfreð Gíslason. Vísir/Getty
Lærisveinar Alfreðs Gíslasonar fóru á kostum í kvöld þegar liðið endurheimti toppsætið með fjögurra marka sigri á útivelli á móti Frisch Auf! Göppingen, 29-25, en þarna mættust tvö af þremur efstu liðum deildarinnar. Kiel náði mest tólf marka forskoti en Alfreð Gíslason þurfti að taka leikhlé sex mínútum fyrir leikslok þegar frábær kafli heimamanna kom muninum niður í sex mörk. Munurinn varð síðan á endanum bara fjögur mörk. Aron Pálmarsson og Filip Jícha voru ekki með Kiel í kvöld en það kom ekki að sök því yfirburðirnir voru miklir frá fyrstu mínútu. Króatinn Domagoj Duvnjak var markahæstur hjá liði Kiel með níu mörk en Marko Vujin kom næstur með sjö mörk. Göppingen hefur líklega komið allra liða mest á óvart í deildinni í vetur en liðið var fyrir leikinn í þriðja sæti með 20 stig eða aðeins fjórum minna en topplið Löwen og Kiel. Magnus Andersson, sænskur þjálfari liðsins, fann hinsvegar fá svör við leik Kiel í kvöld. Kiel komst í 10-3 í upphafi leiks og var með 18-9 forystu í hálfleik. Domagoj Duvnjak skoraði fimm mörk í fyrri hálfleiknum og Marko Vujin var með fjögur. Kiel-liðið komst mest tólf mörkum yfir, 27-15, en heimamenn í Frisch Auf! náðu aðeins að laga stöðuna í lok leiksins.
Handbolti Mest lesið Sænskur varnarjaxl ólétt og segir að ferlinum sé lokið Fótbolti Lárus Orri: „Breytast í eitthvað allt annað og liggja út um allan völl“ Íslenski boltinn Ung frjálsíþróttakona lést í fríi með fjölskyldunni Sport Breiðablik og Víkingur mætast í undanúrslitum Íslenski boltinn Aron Elís: „ Ég ætla ekki að fara jinxa neitt“ Íslenski boltinn Uppgjör: ÍA – Víkingur R. 1-2 | Ævintýrasumar Óskars og Víkinga heldur áfram Íslenski boltinn Partey ekki hleypt inn í Kanada og missir af fyrsta leik Gana á HM Fótbolti Almar ekki í kassanum Fótbolti Lærissveinar Heimis missa heimaleik á hlutlausan völl Fótbolti Brasilísk fótboltagoðsögn lést rétt fyrir HM Fótbolti Fleiri fréttir Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Hörkuleikur í Ungverjalandi Sjá meira