Settu upp flóttamannabúðir í Grindavík Álfrún Pálsdóttir skrifar 21. febrúar 2014 08:30 Mynd/Gassi „
Tökurnar gengu eins og í sögu. Það var kalt úti og rok en krakkarnir stóðu sig alveg ótrúlega vel,“ segir Sigríður Víðis Jónsdóttir, upplýsingafulltrúi Unicef á Íslandi, en samtökin voru að ljúka við að gera umfangsmikla auglýsingaherferð til að vekja athygli á ömurlegu hlutskipti flóttamanna í heiminum. Unicef, í samvinnu við Íslensku auglýsingastofuna og True North, sáu um verkefnið en um 80 manns komu að verkefninu í sjálfboðavinnu. Kvikmyndatökufólk, leikmyndahönnuðir, búningahönnuðir og tæknimenn gáfu vinnu sína, auk þess að lána kvikmyndatökubúnað.Sigríður Víðis JónsdóttirAuglýsingin markar upphaf að átaki Unicef sem miðar að því að vekja athygli á ömurlegum aðstæðum flóttabarna víða um heim. Til að skapa réttar aðstæður voru flóttamannabúðir settar upp við Sólbrekku við Grindavík. Sigríður segir að skemmtileg stemning hafi myndast í hópnum á tökudegi og að andrúmsloftið hafi verið jákvætt þrátt fyrir kuldann. „Allir voru þarna til að leggja góðu málefni lið og samhugurinn var mikill. Ungmennaráð Unicef tók að sér að hlýja litlu leikurunum og láta þá fá teppi og kuldagalla á milli taka,“ segir Sigríður og bætir við að þetta hafi verið mikil lífsreynsla fyrir krakkana sem tóku þátt. „Við fréttum til dæmis af því að einn fimm ára snáðinn hefði nefnt það við foreldra sína þegar hann kom heim um kvöldið hvað hann væri þakklátur fyrir að eiga heimili.“ Leikarinn Ólafur Darri sá um að talsetja auglýsinguna, Emilíana Torrini útsetti og syngur lagið sem hljómar undir og ljósmyndarinn Gassi tók myndirnar sem eru óneitanlega áhrifaríkar.
Mest lesið Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Lífið Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Lífið Bonnie Tyler er látin Tónlist Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Lífið The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Lífið Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Lífið Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum Lífið Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Lífið Qualley og Antonoff í sundur Lífið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Lífið Fleiri fréttir Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Harry Styles setti heimsmet Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Það allra besta að gráta í gufu Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Listabarn á leiðinni Kenningin um útskiptin miklu sem umbreytti vestrænum stjórnmálum Snæfríður og Högni selja útsýnisíbúð í 101 Baðst afsökunar á að hafa sagst vilja ríða Minogue Pétur Jóhann á von á öðru barnabarni Birtu fyrstu myndina af Mette-Marit eftir aðgerðina Stjörnulífið: Bátsferðir og brjóst Rauðhærðasti Íslendingurinn fundinn Stjörnum prýddur gestalisti Swift og Kelce Krakkatía vikunnar: Tindur, stríð og letibikkja Melabúðin fagnar sjötíu árum „Þú ert greinilega manneskja sem hefur strögglað mikið andlega“ Sjá meira