Frægur fyrirlesari hjá RIKK Ugla Egilsdóttir skrifar 21. febrúar 2014 12:00 Irma Erlingsdóttir. Mynd/Gabrielle Motola „
Við höfum fengið fullt af fyrirspurnum um hvort bækurnar séu komnar í bókabúðir,“ segir Irma Erlingsdóttir, einn ritstjóra þriðju útgáfu RIKK í röðinni Fléttur. Útgáfuhóf verður fyrir bókina klukkan 16-18 í Öskju í Háskóla Íslands. „Áhugi á öllum femínískum málum hefur aukist mikið.“ „Á meðal greinahöfunda eru tvær heimsþekktar fræðikonur, þær Cynthia Enloe og Joni Seager, en Cynthia heldur erindi í útgáfuhófinu í dag sem er byggt á grein hennar í bókinni. Grein Cynthiu fjallar um Dominique Strauss Khan-hneykslið og þá karllægu hugmyndafræði sem átti þátt í fjármálahruninu 2008. Greinin heitir DSK: Víkingar og mestu snillingarnir. Síðasti kaflinn fjallar bara um útrásarvíkingana.“ Fjöldi fræðimanna á greinar í bókinni. „Bókinni er skipt í þrjá hluta. Fyrsti hlutinn fjallar um jafnrétti, samfélag, samtvinnun og samtímamenningu. Annar hlutinn er um kyngervi og jafnrétti í bókmennta- og menningarfræðilegu ljósi. Í þriðja hlutanum eru greinarnar eftir útlensku fræðikonurnar, sem fjalla aðeins meira um alþjóðleg mál. Dagný Kristjánsdóttir bókmenntafræðingur heldur einnig erindi í útgáfuhófinu, auk þess sem Guðni Elísson kynnir bókina,“ segir Irma. Boðið verður upp á léttar veitingar.
Mest lesið „Hræðilegt að sjá ofbeldið sem ég beitti mig“ Lífið Áslaug Arna mætti með nýja kærastann Lífið Margrét og Ísak Ernir gengu í það heilaga Lífið Myndaveisla af stuðinu hjá Áfram Ísland Lífið Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Lífið Dorrit missti aðgang á forrit Lífið Kjósendur á lokasprettinum: „Ég bara gleymdi þessu“ Lífið Myndaveisla úr gleðinni hjá já-fólkinu Lífið Krakkatía vikunnar: Skyr, knörr og rauðbrystingur Lífið Fréttatía vikunnar: Dolly, ESB og malaría Lífið Fleiri fréttir Áslaug Arna mætti með nýja kærastann Margrét og Ísak Ernir gengu í það heilaga „Hræðilegt að sjá ofbeldið sem ég beitti mig“ Krakkatía vikunnar: Skyr, knörr og rauðbrystingur Myndaveisla úr gleðinni hjá já-fólkinu Myndaveisla af stuðinu hjá Áfram Ísland Kjósendur á lokasprettinum: „Ég bara gleymdi þessu“ Dorrit missti aðgang á forrit Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Dolly skildi eftir sig lag fyrir hundrað ára afmælið Fréttatía vikunnar: Dolly, ESB og malaría Nadía Atla og Arnar Freyr hætt saman Þau sjá um Áramótaskaupið í ár Stórglæsilegt einbýlishús á Arnarnesi til sölu Afmælispartý Bylgjunnar í beinni Hvað kýs fræga fólkið? Bylgjan heiðraði goðsögnina Þorgeir Hvað veistu um… Dolly Parton? Jakob Smári útnefndur bæjarlistamaður Mosfellsbæjar Birta Líf og Gunnar Patrik hætt saman Doppudrottningin Yayoi Kusama er látin Neðanjarðarlestin endalaus uppspretta skrítinna atvika Camilla Rut og Valgeir hafa slitið trúlofuninni „Það færist skuggi yfir manneskju sem endar með því að hann rænir hana lífinu“ Alræmt hús á Túngötu til sölu Leitaði á náðir Dolly Parton á erfiðum tímum Lést í kjölfar krabbameinsgreiningar Sigraði hundahlaupið með hundinn í pössun Flaggar í hálfa stöng í viku til heiðurs Dolly Dolly Parton látin Sjá meira