Íslenskt tímarit um hönnun og listir Ragnheiður Tryggvadóttir skrifar 10. mars 2014 12:00 Helga Kjerúlf, Ágústa Arnardóttir, Elsa Ýr Bernhardsdóttir og Kolbrún Þóra Löve vilja meiri umræðu um gróskuna í íslensrki hönnun, arkitektúr og myndlist. Þær gefa út tímaritið Neptún Magazine. Mynd/Gva
Fyrsta tölublað Neptún Magazine um hönnun, arkitektúr og listir kom út í janúar síðastliðnum. Fjórar konur standa á bak við blaðið. "Okkur langaði til að búa til tímarit um hönnun, myndlist og arkitektúr og það vantaði íslenskt tímarit sem fjallar um gróskuna sem er í gangi í þessum greinum. Við stöndum fjórar á bak við Neptún Magazine og tengjumst allar á einhvern hátt gegnum Listaháskólann og Myndlistaskólann í Reykjavík,“ segir Helga B. Kjerúlf en með henni að útgáfunni standa Ágústa Arnardóttir, Elsa Ýr Bernhardsdóttir, og Kolbrún Þóra Löve. Fyrsta tölublaðið af Neptún Magazine kom út í lok janúar síðastliðins og er stefnt á að gefa út tvö blöð á ári til að byrja með. Blaðið er til sölu í öllum helstu bókabúðum og nú á netinu á vefsíðunni www.neptun.is. Í fyrsta blaðinu voru heimsóttar vinnustofur og meðal efnis var viðtal við Kristínu Þorkelsdóttur, sem hannaði meðal annars íslenska vegabréfið, upplifunarhönnuðinn Friðrik Stein Friðriksson og ýmislegt fleira. Næsta blað kemur út í sumar. „Hönnun blaðsins var mér afar hugleikin og það skipti okkur miklu máli að allt sem viðkæmi tímaritinu væri faglega gert," segir Helga. "Letur tímaritsins, Rather Semibold, er hannað af Or Type, sem er íslenskt-danskt samstarf tveggja grafískra hönnuða. Þá langar okkur að skapa meiri umræðu um myndlist og hönnun og fá til dæmis fólk sem hefur skrifað BA-ritgerðir um fagið til að ræða viðfangsefni sín og jafnvel taka þau eitthvað lengra." "BA-ritgerðir um myndlist og hönnun ná yfirleitt ekki augum fólks meðan oftar er fjallað um ritgerðir í fögum eins og viðskipta- eða stjórnmálafræði. Við erum opnar fyrir öllum hugmyndum. Ef einhver er með góða hugmynd og langar að vera með finnst okkur það bara spennandi,“ segir Helga. „Hugmyndin er líka að vera með einn frumkvöðul af eldri kynslóðinni í hverju blaði. Það er einfaldlega af nógu að taka,“ bætir hún við og segir Neptún Magazine hafa fengið frábærar viðtökur. „Við finnum fyrir miklum áhuga, sérstaklega að utan. Prent er að koma sterkt inn aftur og á ferðalögum okkar erlendis sjáum við í tímaritaverslunum að algjör sprenging hefur orðið í prentútgáfu um þetta efni. Við finnum líka fyrir mikilli ánægju hjá fólki hér heima, með að vera komin með þennan vettvang. Við lítum á Neptún Magazine sem byrjun á einhverju meira.“
Mest lesið Boltamömmur í miðjumoði Gagnrýni Hvað veistu um… Karl Bretakonung? Lífið Nýr Bond lítur dagsins ljós von bráðar Bíó og sjónvarp Top Gun- og Alien-leikari látinn Lífið Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent „Borgarstjórnarmeirihlutanum er ekki viðbjargandi“ Menning Ótrúleg saga fólks sem valdi mildi og mannúð í stað reiði Menning Síminn stoppar ekki vegna heimildarmyndar Bíó og sjónvarp Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Lífið Prótein á að vera í forgangi Lífið samstarf Fleiri fréttir Top Gun- og Alien-leikari látinn Hvað veistu um… Karl Bretakonung? Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Færsluóður miðaldra höfundur: „Ég man ekki eftir að hafa gengið í þessar grúppur“ „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Tólf barna móðir selur sveitadraum Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Sjá meira