Opinn fundur í Háskóla Íslands um jöklarannsóknir NASA og Caltech Stefán Árni Pálsson skrifar 4. febrúar 2014 09:33 Opinn fundur í HÍ í dag. mynd/samsett
Í tilefni af komu vísindamanna frá Bandarísku geimferðastofnuninni NASA og Caltech-háskóla í Kaliforníu hingað til lands til jöklarannsókna efna Háskóli Íslands og Sendiráð Bandaríkjanna á Íslandi til hádegisfundar í dag kl. 12.00–13.15 í Hátíðasal Háskóla Íslands. Þar mun Helgi Björnsson, vísindamaður við Jarðvísindastofnun Háskólans, fjalla um mikilvægi alþjóðlegs samstarfs í jöklafræði og Mark Simons, prófessor í jarðeðlisfræði, og Brent Minchew, doktorsnemi í jarðeðlisfræði, báðir við Caltech-háskóla, ræða um samstarfsverkefni NASA, Caltech og Háskóla Íslands á þessu sviði. Samstarfsverkefnið snýr að þróun nýrrar tækni til ratsjármælinga á hreyfingu jökla. Tæknibúnaðinn mætti einnig senda um allan heim í ómönnuðu flygildi til að mæla breytingar sem orðið hafa á yfirborði jarðar við náttúruhamfarir eins og eldgos, jarðskjálfta, skriðuföll og flóð. Frumgerð þessa búnaðar er nú um borð í rannsóknaflugvél NASA sem stödd er hér á landi ásamt vísindamönnum frá geimferðastofnunni og Caltech. Á meðan á dvöl bandarísku vísindamannanna stendur hér á landi verður tækjabúnaðurinn nýttur til mælinga á hreyfingu jökla. Flogið verður yfir Langjökul og Hofsjökul með nokkurra klukkustunda millibili í nokkra daga og við það fæst samfelld mynd af hreyfingu jöklanna. Á sama tíma verður komið fyrir GPS-landmælingatækjum sem mæla mjög nákvæmlega færslur í stökum punktum á jöklunum. Þessar flugmælingar, ásamt þeim grunngögnum sem Jöklahópur Jarðvísindastofnunar hefur á undanförnum árum aflað um botn, yfirborð, afkomu og hreyfingu jöklanna, verða notaðar til að auka þekkingu á eðliseiginleikum jökulíss og bæta reiknilíkön af flæði jökla. Samstarfshópur Caltech, NASA og Háskóla Íslands hefur áður mælt hreyfingu Langjökuls og Hofsjökuls snemma sumars og endurtekur nú mælingar um hávetur til þess að kanna hvaða áhrif leysingarvatn hefur á ísflæði. Erindin á hádegisfyrirlestrinum í dag verða flutt á ensku. Hægt verður að ná tali af bæði Helga Björnssyni, Mark Simons og Brent Minchew eftir fyrirlesturinn í hádeginu.
Mest lesið Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Erlent Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Erlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Innlent Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Innlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Fleiri fréttir Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Sjá meira