Innlent

Fasteignaskattar dekka lækkun sorphirðugjalda

Garðar Örn Úlfarsson skrifar
Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir er bæjarstjóri Hafnarfjarðar þar sem hækkun sorphirðugjalda er dregin til baka.
Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir er bæjarstjóri Hafnarfjarðar þar sem hækkun sorphirðugjalda er dregin til baka.
„Hafnarfjarðarbær vill ligga sitt að mörkum með aðilum vinnumarkaðarins til að halda niðri verðlagi í landinu og skapa stöðugleika í efnahagsmálum og því er hækkun sorphirðu og -eyðingargjalds dregin til baka,“ segir í samþykkt sem gerð var í bæjarstjórn Hafnarfjarðar í gær.

Fram kemur að lækkun þjónustugjaldsins er mætt með fasteignaskatti. Endanleg álagning skattins fyrir árið 2014 sé rúmum 20 milljónum krónum hærri en gert hafi verið ráð fyrir í fjárhagsáætlun 2014.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×