Veðurstofan í samstarf við þá dönsku Atli Ísleifsson skrifar 12. nóvember 2014 11:32 Marianne Thyrring, forstjóri DMI og Hafdís Karlsdóttir, staðgengill forstjóra Veðurstofu Íslands, undirrita samstarfssamning. Mynd/Veðurstofa Íslands
Samstarfssamningur Veðurstofu Íslands og dönsku veðurstofunnar DMI var undirritaður í dag. Er þar meðal annars kveðið á um stóraukið samstarf á sviði rannsókna og veðurtengdrar þjónustu. Í fréttatilkynningu frá Veðurstofunni segir að veðurspár hafi þróast mikið á síðustu árum. Mælingar með fjarkönnunargögnum eins og gervitunglum og veðursjám hafi þar mikla þýðingu. „Líkönin sem notuð eru hafa þróast samhliða. Með betri líkönum og fleiri gögnum er unnt að spá fyrir um veður af enn meiri nákvæmni. Til þess þarf mikla reiknigetu sem fæst aðeins með ofurtölvum. Flestar veðurstofur í Evrópu reka sínar eigin ofurtölvur til þess að reikna veðurspár, þar á meðal danska veðurstofan. Þróun ofurtölva er hröð og kröfur til veðurstofa um nákvæmari og hraðari uppfærslu á veðurspám kallar á hraðari uppfærslur á ofurtölvunum en áður. Á sama tíma er þrengt að fjárhag veðurstofa, þær verða að leita leiða til að hagræða og ein leið er samstarf um ofurtölvur og þar með hagkvæmni í rekstri. Í mars á þessu ári hófu norska og sænska veðurstofan samstarf um fjárfestingu og rekstur ofurtölva. Danska veðurstofan leitaði eftir samstarfi við Veðurstofuna fyrir um ári um rekstur á næstu ofurtölvu sinni. Hún mun hafa tíu sinnum meiri reiknigetu en sú tölva sem danska veðurstofan er með í dag og þarf mun meira rafmagn. Orka í Danmörku er dýr og ekki framleidd með endurnýjanlegum orkugjöfum nema að mjög takmörkuðu leyti. Opinberar stofnanir í Danmörku eru undir ströngum kvótum um losun gróðurhúsaloftegunda sem gerir þeim nær ómögulegt að endurnýja ofurtölvu sína og reka í Danmörku. Íslandi býr vel hvað þetta varðar. Við framleiðum okkar rafmagn með endurnýjanlegum orkugjöfum á samkeppnishæfu verði. Með samstarfi Veðurstofunnar og dönsku veðurstofunnar um rekstur ofurtölvunnar njóta Danir okkar hagstæðu orkugjafa. Með samstarfinu gefst Veðurstofunni tækifæri til að stækka spásvæðið í kringum Íslands og þá sérstaklega suðvestur af landinu, sem er mikilvægur hluti þjónustusvæðis Veðurstofunnar. Veðurstofan mun þannig geta veitt enn betri veðurþjónustu almennt og til aðila sem eiga mikið undir góðum upplýsingum um veðurfar, s.s. bændur, ferðamenn og sjófarendur, auk enn betri þjónustu viðalþjóðaflug. Frá því að veðurmælingar hófust á Íslandi 1749 hefur samstarf og stuðningur frá Dönum verið ómetanlegur. Samningurinn sem er undirritaður í dag gerir Veðurstofunni kleyft að bæta þjónustu sína á öllum sviðum: í veðurspám, hafísspám, reikningum á fortíðarloftslagi og framtíðar sviðsmyndum mögulegra loftslagsbreytinga. Samningur þessi veitir einnig betri tækifæri til styrkumsókna og þátttöku í rannsóknarverkefnum, fjármögnuð af bæði norrænum og evrópskum rannsókna- og þróunarsjóðum. Fjárveitingar hafa dregist saman á sama tíma og tæknin þróast hraðar en veðurstofurnar geta fylgt eftir hver fyrir sig. Þrýstingur á aukið samstarf er sú leið sem veðurstofur í Evrópu hafa valið. Norrænu veðurstofurnar hafa tekið forystu hvað þetta varðar, sbr. samstarf Svía og Norðmanna og nú samstarf Dana og Íslendinga. Þegar er hafinnundirbúningur fyrir norrænt samstarf um fjárfestingu og rekstur ofurtölva. Samningurinn sem undirritaður var í dag er enn ákveðnara skref í norrænu samstarfi á sviði sameiginlegra reikninga á veðri og sviðsmyndum um loftslagsbreytingar°, en hvorttveggja byggir á samrekstri ofurtölvu.Svæðið „Iceland-Greenland-Area“.Mynd/Veðurstofan
Mest lesið Fólki ráðlagt að fylgjast vel með veðurspám Veður Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Innlent „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Innlent Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Innlent Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Trump vill ekki flýta sér Erlent Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Erlent Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Innlent „Ekki í lífshættu“ Innlent Fleiri fréttir Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Jarðskjálfti við Bárðarbungu í nótt „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Sjá meira