Viðskipti innlent

Segir varasamt að kaupa barnagleraugu á netinu

Haraldur Guðmundsson skrifar
Fjölmargar netverslanir selja ódýr gleraugu.
Fjölmargar netverslanir selja ódýr gleraugu. Vísir/Stefán
„Það er vissulega dálítið keypt af gleraugum á netinu og þetta held ég að sé bara almenn breyting á verslunarháttum landans,“ segir Brynhildur Ingvarsdóttir, formaður Augnlæknafélags Íslands, spurð hvort hún verði vör við að fólk kaupi gleraugu á netinu í auknum mæli. „En ég vinn mikið með börnum og maður ætti ekki að kaupa gleraugu fyrir börn á netinu,“ undirstrikar Brynhildur og heldur áfram

„Sjónin er að þroskast hjá börnum alveg fram til átta ára aldurs, það eru mikilvægustu árin, og maður á alls ekki að kaupa gleraugu handa ungum börnum á netinu því það skiptir máli að þau séu góð og að þau sitji vel á krökkunum.“

Brynhildur segir Augnlæknafélagið almennt mæla með því að fólk kaupi sín gleraugu hér heima.

„Við eigum mjög vel menntaða augnlækna á Íslandi og eftir að sjóntækjafræðingar fengu starfsleyfi til að mæla sjón þá er að koma hérna stétt af ungum sjóntækjafræðingum sem eru vel menntaðir. Því mælum við með því að fólk sæki til þeirra sem eru fagmenntaðir.“

Hrafnkell Freyr Magnússon, eigandi netverslunarinnar Kreppu­gler.is, selur gleraugu sem eru framleidd í Kína. Hann afgreiðir að eigin sögn fleiri hundruð pantanir á ári.

„Þetta er búið að vera mjög stöðugt hjá mér en ég hef aftur á móti ekki auglýst síðan ég byrjaði í þessu árið 2009. Þetta var fljótt að stækka og salan hefur verið stöðug síðan,“ segir Hrafnkell.

Hann segir flestar vörurnar sambærilegar þeim sem hægt er að kaupa í gleraugnabúðum hér á landi. Þar sé bæði um að ræða ódýrar umgjarðir og gler sem og vandaðri gæðavörur.

„Það er hægt að fá hlutfallslega dýrari umgjarðir sem eru sambærilegar margfalt dýrari umgjörðum hér á landi. Enda eru margir farnir að kaupa gleraugun beint frá Kína.“

Halldór Sigurðsson tækjastjóri kaupir sín gleraugu á netinu og hefur gert í mörg ár.

„Ég veit um nokkra sem hafa gert þetta og ég hef boðið fólki aðstoð við að kaupa gleraugu á netinu. Ein kona fór eftir ráðleggingum mínum og keypti á netinu, og gleraugun sem hún fékk kostuðu hingað komin 3.177 krónur í staðinn fyrir einhvern hundrað þúsund kall.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×