Hættur við að flytja úr Keflavík Jakob Bjarnar skrifar 24. janúar 2014 07:00 Hannes Friðriksson verið útmálaður sem neikvæður athyglissjúklingur -- þá sem liður í þöggun um málefnin, að sögn Hannesar.
Mikla athygli vakti þegar Hannes Friðrikssontilkynnti að hann ætlaði að flytja úr Reykjanesbæ vegna þess að hann var tekinn fyrir á Þorrablóti Keflavíkur. Hann er nú hættur við þau áform – ef hægt er að tala um að hætta við í því samhengi. „Já, ég er það. Ætlaði það reyndar aldrei. Þetta var nú kannski bara svona, grín í anda þess gríns sem gert var þarna á þorrablótinu. Svartur húmor,“ segir Hannes í samtali við Vísi. „Kjálkinn á mér er of laus.“ Hannes segir þó grein sína alvarlega öðrum þræði. Hann er að kalla eftir umræðu með greininni, sem hann birti í Víkurfréttum, og viðbrögðin hafa verið gríðarlega mikil. „Það stoppar varla síminn hjá mér. Viðbrögðin hafa komið mér á óvart. Og þau hafa verið mjög góð, þau sem að mér snúa.“ Greinin á sér í raun langan aðdraganda. Hannes, sem var í Sjálfstæðisflokknum á sínum tíma, barðist mjög gegn sölu á Hitaveitu Suðurnesja og stóð fyrir undirskriftasöfnun gegn þeim gjörningi. „Ég álpaðist óvart inn í bæjarmálapólitíkina. HS var byggð af bæjarbúum og stolt þeirra. Ein af grunnstoðum samfélagsins. Svo er farið út í þetta. Eftir þetta varð kaldara viðmót gagnvart mér innan Sjálfstæðisflokksins, ég fékk sterkan mótvind. Og ekki bara ég, heldur kona mín einnig en hún er borin og barnfædd hér.“ Hannes hefur síðan látið til sín taka og skrifað greinar þar sem hann gagnrýnir eitt og annað sem betur má fara. Í hvert skipti sem ég skrifa eitthvað, og þá reyni ég að kynna mér málin út í hörgul, er reynt að mála mig upp sem neikvæðan mann, ég er beittur þöggun og reynt að gera mig ótrúverðugan. En, ég lít ekki svo á að ég sé neikvæður þó ég sé að fjalla um neikvætt varðandi rekstur bæjarins sem nú er með skuldir til andskotans og yfirdrátt uppá milljarð.“ Hannes segist hafa látið sér viðbrögðin í léttu rúmi liggja en hann er ekki einn heldur er hann fjölskyldumaður og þrjú börn þeirra hjóna búa í Reykjanesbæ. Eftir Þorrablótið brast eitthvað; það var komið nóg. Með greininni vill Hannes vekja athygli á því hvernig fólk í Reykjanesbæ talar hvort um annað. Þar sé fólk frábært en pólitíkin ljót og grimm. Þar sem meirihlutinn fer sínu fram og þolir enga gagnrýni. „Ég vona að fólk komi auga á það,“ segir Hannes en honum hefur meðal annars verið núið því um nasir að hann sé athyglissjúkur. „Þetta er partur af þessari neikvæðu umræðuhefð. Ég er ekki athyglissjúkur. Ég uni mér best úti í bílskúr að tálga kalla. Með barnabörnunum. En mér finnst mikilvægt að það sem er að gerast í Reykjanesbæ, að það komi fram.“
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Erlent Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Innlent NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Erlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Erlent Eitraður reykjarmökkur veldur vandræðum í Suðaustur-Asíu Erlent Fleiri fréttir „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Sjá meira