Ætla mér lengra með þjálfaraferilinn Henry Birgir Gunnarsson skrifar 10. júlí 2014 06:00 Ragnar er á leið á kunnuglegar slóðir. fréttablaðið/valli „
Ég er á leiðinni aftur til Frakklands. Ég verð í þjálfarateymi Cesson-Rennes ásamt því að vera styrktarþjálfari félagsins og unglingaþjálfari,“ segir Ragnar Óskarsson, fyrrverandi landsliðsmaður, en hann hættir sem aðstoðarmaður Ólafs Stefánssonar hjá Val þar sem hann er á leiðinni utan. Ragnar er öllum hnútum kunnugur í Frakklandi enda lék hann þar í ellefu ár á sínum tíma. „Það er góður vinur minn að taka við liðinu og hann vildi fá mig með í teymið. Ég er því að horfa til lengri tíma með þessari ákvörðun. Það er uppbygging í gangi og þetta er mjög spennandi verkefni,“ segir Ragnar en Cesson-Rennes hafnaði í sjöunda sæti frönsku úrvalsdeildarinnar á síðustu leiktíð. Þar sem Ragnar er ekki kominn með nein þjálfararéttindi má hann ekki sitja á bekknum hjá liðinu næsta vetur þó svo hann sé aðstoðarþjálfari. Hann mun fara strax í það að ná sér í þjálfararéttindi er hann kemur utan. Ragnar á sjö ára gamla dóttur í Frakklandi og hún er helsta ástæðan fyrir því að hann fer til Frakklands. „Hún býr 40 mínútum frá því þar sem ég verð. Hún er það sem skiptir mestu máli í þessu. Ég vil komast sem næst henni. Tíminn líður fljótt og ég vil eðlilega fá að vera sem mest með henni. Þetta eru ár sem maður fær ekkert aftur,“ segir Ragnar. Hann viðurkennir að hugurinn hafi í raun aldrei stefnt út í þjálfun þegar ferlinum lyki en nú er annað upp á teningnum. „Þetta var aldrei stefnan en svona hefur þetta þróast. Ég var meira að horfa á styrktarþjálfunina en hef svo haft ótrúlega gaman af því að þjálfa eftir árið með Óla hjá Val. Það var frábær reynsla og lærdómsrík. Ég ætla mér að fara eitthvað lengra með þennan þjálfaraferil og það eru góðar líkur á því að ég verði næstu árin í Frakklandi. Þar hefur mér alltaf liðið vel og það hjálpar til að þekkja hvernig allt gengur fyrir sig hérna.“
Handbolti Mest lesið Syrgja átján ára fimleikakonu Sport Gerir grín að klæðaburði liðsfélaga síns Körfubolti Samþykkja hvern Rússann á fætur öðrum inn á Ólympíuleikana Sport Segir að Arsenal stefni á sögulega fernu á þessu tímabili Enski boltinn Amorim endaði viðtalið á gamansömum nótum Enski boltinn Stjórnin leyst frá störfum eftir að tólf ára drengur drukknaði Sport Daninn skaut Man. United upp fyrir Liverpool Enski boltinn Sjáðu dönsku þrumuna sem færði United-mönnum öll þrjú stigin Enski boltinn Hafa áhyggjur af notkun gríma sem líkja eftir þjálfun í þunnu lofti Sport „Við eigum heima í Evrópu“ Enski boltinn Fleiri fréttir Reynir farinn að láta til sín taka í þýsku deildinni Elín Klara atkvæðamikil og sigursæl í jólaleiknum Birgir byrjaði rólega eftir jólafrí en fagnaði sigri Stoltur af stráknum en ætlar ekki að kaupa hann aftur Ekkert spilað í vetur en gæti mætt Íslandi í fyrsta leik á EM Arnar Daði rekinn frá Stjörnunni en áfram þjálfari kvennaliðsins Öll höllin æpti nafn Gísla í spennutrylli Sakaður um niðurlægingu: „Við viljum ekki hafa hann sem þjálfara“ Haukur getur náð hundrað plús hundrað fyrir EM-fríið Rúnar sótti sinn fyrsta sigur sem þjálfari Wetzlar Haukur með sjö mörk og Magdeburg rétt marði botnliðið Rúmlega áttræður Moustafa endurkjörinn forseti IHF með yfirburðum Slæm fjárhagsstaða HSÍ kemur ekki niður á EM Donni fagnaði EM vali með skotsýningu Sigvaldi Björn fjarri góðu gamni í sjaldséðu tapi Kolstad Eva Björk með stórleik í fyrsta sigri Stjörnunnar „Hann er ein stærsta ástæðan fyrir því“ KA-menn fengu góða jólagjöf Flautumark hjá FH og ÍR með þeim í Höllina KA í undanúrslit á kostnað bikarmeistaranna Stærsti leikur ársins í Eyjum fer fram í kvöld „Er því miður kominn í jólafrí“ „Þetta var mjög skrítinn leikur“ Haukakonur í fjórða sætið KA/Þór - Valur 23-30 | Ótrúlegur viðsnúningur gestanna Ómar óstöðvandi og Magdeburg í undanúrslit Ómar Ingi fær meiri ábyrgð og tekur við kyndlinum af Aroni Ekkert stríð við Porto og einstakur Þorsteinn nítjándi maður Síðasta verkefni reyndist dýrt fyrir Sigvalda Teitur fer á EM sem hornamaður í stað Sigvalda Sjá meira