Dönsku stelpurnar töpuðu stórt og misstu af undanúrslitunum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 17. desember 2014 18:56 Vísir/AP
Það verða Noregur og Spánn sem komast upp úr milliriðli 1 á Evrópumótinu í handbolta kvenna sem stendur nú yfir í Ungverjalandi og Króatíu. Spænska liðið tryggði sér sæti í undanúrslitunum með sjö marka sigri á Dönum, 29-22, í hreinum úrslitaleik á móti Danmörku. Dönsku stelpurnar áttu engin svör við sterku liði Spánverja sem síðan hreinlega keyrði yfir danska liðið í seinni hálfleiknum. Spánn var 15-12 yfir í hálfleik en breytti síðan stöðunni úr 17-15 í 28-18 með frábærum sextán mínútna kafla sem liðið vann 11-3. Line Anna Ryborg Jörgensen, fyrirliði danska liðsins, var yfirburðarmaður í liðinu með sjö mörk úr ellefu skotum en restin af liðinu náði sér engan veginn á strik. Alexandrina Cabral skoraði sex mörk úr sjö skotum fyrir spænska liðið og Beatriz Fernández var með fimm mörk en besti maður liðsins var markvörðurinn Silvia Navarro. Þetta eru mikil vonbrigði fyrir danska liðið sem vann bronsverðlaun á HM í fyrra og ætlaði sér stóra hluti á þessu móti. Liðið vann meðal annars Noreg á æfingamóti fyrir EM en náði ekki að fylgja því eftir á Evrópumótinu. Dönsku stelpurnar voru næstum því búnar að missa Rúmeníu upp fyrir sig sem hefði þýdd að þær spiluðu ekki um fimmta sætið en danska liðið skoraði þrjú síðustu mörk leiksins og er því enn ofar á markatölu. Heimastúlkur í Ungverjalandi geta reyndar komist í leikinn um fimmta sætið á kostnað danska liðsins en þá þurfa þær að vinna Noreg á eftir. Norska liðið hefur unnið fimm fyrstu leiki sína á mótinu og er þegar búið að vinna milliriðilinn. Evrópumeistarar Svartfjallalands eru komnar áfram í undanúrslitin eftir 30-29 sigur á Svíum fyrr í kvöld en Svíar þurfa að bíða eftir úrslitum úr leik Hollands og Frakklands í kvöld. Það þarf þó mikið að gerast til þess að Hollendingar nái undanúrslitasætinu af sænska liðinu.
Handbolti Mest lesið Haaland stakk af og fagnaði ekki með fólkinu Fótbolti Hafþór Júlíus gefst ekki upp þrátt fyrir vonbrigðin Sport „Verið að þreyta okkur þangað til við gefumst upp“ Körfubolti Hló að Haaland: Kom út úr vélinni með uppstoppaðan þvottabjörn Fótbolti „Skil ekki hvernig menn geta flaggað á eða séð eitthvað sem gerist ekki“ Íslenski boltinn „Þetta er svo hörmulegur dómur, án gríns“ Íslenski boltinn „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Enski boltinn Spila að eigin ósk í sömu litum og í leiknum fræga með „hendi guðs“ Fótbolti Aukinn viðbúnaður vegna sögu Englands og Argentínu Fótbolti Lögreglan hefur hafið rannsókn á andláti HM-leikmannsins Fótbolti Fleiri fréttir Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Sjá meira