Norsku stelpurnar töpuðu fyrsta leiknum sínum á EM Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 17. desember 2014 21:23 Vísir/AP
Þórir Hergeirsson og stelpurnar hans í norska kvennalandsliðinu í handbolta töpuðu í kvöld sínum fyrsta leik á Evrópumótinu í handbolta en það kom ekki að sök þar sem liðið var þegar búið að tryggja sér sigur í milliriðli eitt og um leið sæti í undanúrslitum keppninnar. Ungverska liðið sem er á heimavelli vann fjögurra marka sigur á Noregi, 29-25, og um leið þriðja sætið í riðlinum og sæti í leiknum um fimmta sætið. Danska liðið sem steinlá fyrir Spánverjum fyrr í kvöld endaði því í fjórða sæti og hefur lokið keppni á mótinu. Norska liðið var búið að vinna fimm fyrstu leiki sína á mótinu og komst í 4-1 og 7-4 í leiknum í kvöld. Ungverska liðið skoraði sjö síðustu mörk fyrri hálfleiks og leiddi 15-11 í leikhléi. Ungverska liðið skoraði síðan fjögur af fyrstu sex mörkum seinni hálfleiksins, komst í 19-13 og leit ekki til baka eftir það. Noregur mætir Svíþjóð í undanúrslitaleiknum á föstudaginn en í hinum leiknum mætast Svartfjallaland og Spánn. Ungverjaland og Frakkland spila um fimmta sætið á mótinu. Frakkar tryggðu sér þriðja sætið í sínum milliriðli og þar með sætið í riðlinum með því að vinna Holland 20-18 í lokaumferðinni.
Handbolti Mest lesið Áhrifavaldar sýna vanvirðingu á risamóti í tennis Sport „Gangandi martröð“ Enski boltinn Fólskubrot á Gísla sem var sjálfur rekinn af velli Handbolti Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu Enski boltinn Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Enski boltinn „Var ekki langt frá því að tárast“ Handbolti Dagskráin í dag: Liverpool ætlar að landa fyrsta sigrinum Sport Nýi Japaninn aðstoðaði Hákon við rán Fótbolti Gætu tekið þátt í meti en fráfall konungsins hefur mikil áhrif Fótbolti Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Enski boltinn Fleiri fréttir „Var ekki langt frá því að tárast“ Sá besti í ham en meistarar Vals þurftu að hafa fyrir sigrinum Fullkomin byrjun eftir heimkomu Dags Árna Fólskubrot á Gísla sem var sjálfur rekinn af velli „Leikmenn í hópnum sem þurfa að taka við keflinu“ Lærisveinar Guðjóns Vals ekki lengi að jafna sig á tapi í fyrsta leik Sauð upp úr og Bjarka fleygt í jörðina Haukur var markahæsti leikmaður síns liðs í naumu tapi Magdeburg hafði betur í jöfnum Íslendingaslag Titilvörnin byrjar vel hjá Díönu og Elínu Stórleikur Donna dugði skammt Valsmenn slógu í klárinn undir lokin Arnar Freyr fagnaði sigri í frumrauninni með Flensburg en naumt tap hjá Arnóri Jóhanna Margrét skoraði fimmtán þegar Haukar unnu Meistarakeppnina Eyjakonur og Haukar meistarar samkvæmt spánni Gísli tekur við og stýrir Víkingi í næstefstu deild Reynir Þór með fína frammistöðu í tapi Víkingar gefa frá sér sætið í Olís-deildinni Sá rautt eftir nokkrar sekúndur: „Maður lætur muna eftir sér“ Óvænt hætt sem þjálfari af persónulegum ástæðum Ólafur fékk rautt spjald eftir sjö sekúndur í endurkomunni Ótrúlega ósáttur við Val: „Hafa skilið mann eftir einan í myrkrinu“ Guðjón Valur framlengir við Gummersbach Heiðursmannasamkomulag var svikið: „Kom okkur á óvart“ Einn af strákunum okkar biðlar til Trump um samning Áfall í undirbúningi Íslands fyrir HM Gísli Þorgeir með níu mörk í níu skotum þegar Magdeburg vann Ofurbikarinn Díana varð meistari meistaranna eftir vítakeppni Fjórtán ára undrabarn spilar með Þorsteini Leó Landsliðskona í Val Sjá meira