Fyrirgefningin er í raun mjög fyndin Ugla Egilsdóttir skrifar 13. febrúar 2014 12:30 Þórdís Elva Þorvaldsdóttir er höfundur Fyrirgefðu ehf. Mynd/Pjetur „
Í heimi verksins hafa alls ekki allir efni á að fyrirgefa, aðeins hinir ríku,“ segir Þórdís Elva Þorvaldsdóttir, höfundur og leikstjóri sýningarinnar Fyrirgefðu ehf. sem frumsýnd verður í Tjarnarbíói á föstudaginn. „Leikritið gerist á óræðum tíma þar sem fyrirtækið Fyrirgefðu ehf. hefur milligöngu um sættir í deilumálum. Hins vegar geta fátækir sótt í minningarsjóð. Þóra Karítas leikur starfsmann sem er nýbyrjaður hjá fyrirtækinu og hefur það hlutverk að velja úr innsendum umsóknum í minningarsjóðinn,“ segir Þórdís Elva. „Þegar hún fer í gegnum nýja umsókn byrjar ný saga. Þessar sögur eru leiknar, þær gefa innsýn í líf margra, og sýna okkur fyrirgefninguna frá ólíkum sjónarhornum. Sögurnar í umsóknunum eru byggðar á viðtölum sem við tókum við yfir sjötíu manns á aldrinum 5-85 ára. Við gættum þess að allir ættu sér fulltrúa í hópnum. Þarna á meðal voru innflytjendur, mæður, unglingar, börn, prestar, sáttasemjarar, fíklar og eldri borgarar. Allur skalinn. Við notuðum síðan sögur þeirra sem við tókum viðtöl við, með þeirra leyfi, þannig að verkið er samansafn af sögum úr ofboðslega ólíkum áttum,“ segir Þórdís Elva. Leikritið er ekki væmið. „Í raun er fyrirgefningin mjög fyndin. Hún berskjaldar fólk. Það er erfið raun að játa að manni hafi orðið á í messunni. Fólk verður klaufalegt þegar stoltið þvælist fyrir því. Við beitum því húmor og kaldhæðni óspart í verkinu,“ segir Þórdís Elva. Hún segir að fyrirgefningin sé oft misnotuð. „Hún er oft ekki einlæg. Fólk í áhrifastöðum segir oft: „Hafi ég gert mistök biðst ég afsökunar,“ í stað þess að segja: „Ég gerði mistök,“ þá er ansi djúpt á fyrirgefningarbeiðninni sjálfri, og allt snýst um tilfinningalíf þess sem upplifði hlutinn en ekki um gjörðir þess sem biðst fyrirgefningar,“ segir Þórdís Elva. „Til þess að auglýsa leikritið fengum við fólk til að taka upp játningar á myndband,“ segir Þórdís Elva. „Síðan bjuggum við til kynningarmyndband fyrir Fyrirgefðu ehf., eins og um raunverulegt fyrirtæki væri að ræða, og settum það í loftið. Það fékk átta þúsund áhorf á þremur sólarhringum. Við leyfðum fólki að velkjast í vafa um hvort þetta væri raunverulegt fyrirtæki. Það vakti mikla eftirtekt og skiptar skoðanir, sem er gott. Ég vil meina að leikhúsið eigi að vera í samtali við samtíðarfólk sitt. Þegar listinni tekst best upp fær hún fólk til að spyrja sig áleitinna spurninga um samtímann,“ segir Þórdís Elva. Fyrirgefðu ehf. verður frumsýnt föstudaginn 14. febrúar í Tjarnarbíói klukkan 20.00. Takmarkaður sýningafjöldi.
Mest lesið Skipta um stríðsguð vegna alvarlegra meiðsla Bíó og sjónvarp Fyrsta verk Ella Egils selt á fimm þúsund krónur en verk dóttur hans á tífalt meira Lífið Olivia Rodrigo á Íslandi Lífið Franskt draumabrúðkaup eins og beint úr ævintýri Lífið Grafalvarlegt nýtt efni: „Jafn tilgangslausar og að selja flugelda inni í helli“ Tónlist Íslendingar sópa að sér verðlaunum í dansi Lífið Von á tíu nýjum lögum tíu árum eftir andlátið Tónlist Desiigner handtekinn eftir að hafa elt konu vopnaður hamri Lífið Óskarsverðlaunahafinn Brenda Fricker látin Bíó og sjónvarp Stjörnum prýtt fimmtugsafmæli Ragnars Jónassonar Lífið Fleiri fréttir Olivia Rodrigo á Íslandi Íslendingar sópa að sér verðlaunum í dansi Desiigner handtekinn eftir að hafa elt konu vopnaður hamri Fyrsta verk Ella Egils selt á fimm þúsund krónur en verk dóttur hans á tífalt meira Franskt draumabrúðkaup eins og beint úr ævintýri Stytta af Charlie Kirk á Times Square Stjörnum prýtt fimmtugsafmæli Ragnars Jónassonar Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Bríet sviptir hulunni af kærastanum Fyrsta lesbían til að prýða Playboy „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Haaland hunsaði Holland Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Ljóðrænt hótel á Akureyri David kemur áhugalausri Victoriu til varnar „Drullið ykkur í burtu“ Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Selja herrasetur í Þingholtunum Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lesbíur selja litríka íbúð „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Stjörnulífið: Patrekur og Gísli Marteinn saman á Bad Bunny Leikarinn Sam Neill er látinn „Við unnum í nágrannalottóinu“ Sjá meira