Lífið

Aldur er afstæður að mati Johnny Depp

Johnny Depp og Amber Hearts trúlofuðust á dögunum.
Johnny Depp og Amber Hearts trúlofuðust á dögunum. Vísir/Gettyimages
Johnny Depp segir  að 23 ára aldursbil á milli hans og unnustunnar, Amber Hearts, sé ekki vandamál. 

Þvert á móti segist hann læra mikið af leikkonunni ungu sem hann féll fyrir er þau léku saman í myndinni The Rum Diary. 

„Ég er með mikla lífsreynslu en mér finnst ég ekki horfa niður á hana né vera einhversskonar læriföður fyrir hana. Mér finnst það eiginlega vera öfugt, hún gefur mér innblástur."

Depp skildi við barnsmóður sína Vanessa Paradis sumarið 2012 og segsit í raun aldrei hafa verið tilbúinn í hjónaband fyrr en núna. Leikarinn vinsæli bað Hearts fyrr á árinu en ekki er vitað hvenær skötuhjúin munu ganga niður kirkjugólfið. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×