Til Gunnars Braga Tryggvi Gunnarsson skrifar 3. mars 2014 20:28 Samkvæmt fjölmiðlum, RÚV, Stöð 2 og Fréttablaðinu, lofuðu formenn Sjálfstæðisflokks og Framsóknar fyrir Alþingiskosningarnar 2013 að þjóðaratkvæðagreiðsla yrði haldin um hvort halda ætti viðræðum við ESB áfram. Ekki var minnst á að slíta bæri þessu viðræðuferli. Eftir kosningarnar endurtóku bæði Bjarni Ben. og Sigmundur Davíð (Laugarvatni 22 maí 2013) þetta fallega loforð. Á vefnum Vísi.is segir þú að Framsóknarflokkurinn hafi ekki gefið nein loforð um þjóðaratkvæðagreiðslu á þessu kjörtímabili. Einungis hafi verið um að ræða þjóðaratkvæðagreiðslu ef Framsókn lenti í stjórn með Evrópusinnuðum flokki til að hafa þannig hemil á honum. Þetta átti að vera varnagli gegn bandóðum aðildarsinnum Samfylkingarinnar, eins og Frosti Sigurjónsson hafði á orði. Hér vandast nú málið fyrir ykkur framsóknarmenn, því hvers vegna var þá Sigmundur Davíð að lofa þjóðaratkvæðagreiðslu um þetta mál eftir kosningar, þegar fyrir lá að Samfylkingin yrði ekki með Framsókn í ríkisstjórn heldur Sjálfstæðisflokkurinn? Staðreyndin er því að sjálfsögðu sú að þessi varnaglakenning ykkar er ekkert annað en daunill fjóshaugalygi og með eindæmum fáránleg í þokkabót. Gátuð þið ekki fundið eitthvað aðeins trúverðugra en þessa endemis framsóknarþvælu? Þú og Frosti eruð hér með orðnir uppvísir að ósannindum sem þið ættuð að skammast ykkar fyrir, en það gerist nú tæplega vegna yfirgengilegs hroka og yfirlætis, sem einkennir einkum þitt hátterni, Gunnar Bragi. Varðandi sannfæringu þingmanna við atkvæðagreiðslur á Alþingi, sem þú dregur mjög í efa, þá er afar eðlilegt að spyrja þig um eftirfarandi vegna greinar Inga Vilhjálmssonar í helgarblaði DV: 1) Hversu mikinn þátt spilar sannfæring Evrópusambandshatarans og einokunarmógúlsins, Þórólfs Gíslasonar, fyrrverandi yfirmanns þíns, í ákvarðanatöku þinni á hinu háa og virðulega Þjóðþingi okkar Íslendinga? 2) Eru lætin og yfirgangurinn í þér varðandi slitatillöguna þína nokkuð vegna sérstakrar hagsmunagæslu í þágu hins volduga kvótakóngs á Sauðárkróki? Að lokum vil ég geta þess að framlagningin á þingsályktuninni um slit á viðræðum við ESB í miðri umræðu um skýrslu Hagfræðistofnunar Háskólans var alls ekki sjálfsögð og eðlileg eins og þú hélst fram. Þetta athæfi þitt var ekki aðeins grófur fautaskapur, heldur einnig algjör rökleysa, því að þessi skýrsla átti að vera grundvöllur fyrir málefnalegri umfjöllun á þingfundum og síðan átti að taka málið fyrir í nefnd þar sem sérfræðingar yrðu kallaðir til að veita þingmönnum svör við spurningum þeirra. Þetta þýðir að ákvörðunin um slitin var tekin áður en forsendur fyrir henni lágu fyrir og þar af leiðandi var hér um að ræða hundalógíska valdníðslu vegna ótta við óhagstæðar niðurstöður um skýrsluna. Alþingismenn og fjölmiðlar, dreifið þessu bréfi sem víðast. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Þjóðarmorð? Finnur Th. Eiríksson Skoðun Heimilislæknar og reglugerðardrög Alma D. Möller Skoðun Sterkari skólar fyrir öll börn Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Einstaklingurinn og fullveldið Signý Sigurðardóttir Skoðun Skilvirk núna en ekki ef við göngum í ESB Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Það sem við gefum áfram Sigurður Árni Reynisson Skoðun Breyttar áherslur í borgarskipulagi Þórarinn Hjaltason Skoðun „Áður en við segjum já eða nei“ Hilmar Kristinsson Skoðun Ég hef líka trú á Ögmundi Arnar Sigurðsson Skoðun Húsnæðiskaupmáttur Eggert Sigurbergsson Skoðun Skoðun Skoðun Traust á lögmönnum er ekki einkamál lögmanna Vilbert Gústafsson skrifar Skoðun Upplýsingar eru ekki ógn, þær eru forsenda Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Heimilislæknar og reglugerðardrög Alma D. Möller skrifar Skoðun Einstaklingurinn og fullveldið Signý Sigurðardóttir skrifar Skoðun Skilvirk núna en ekki ef við göngum í ESB Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Sterkari skólar fyrir öll börn Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Ég hef líka trú á Ögmundi Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun „Áður en við segjum já eða nei“ Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Þjóðarmorð? Finnur Th. Eiríksson skrifar Skoðun Breyttar áherslur í borgarskipulagi Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Hernaðarbrölt Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Það sem við gefum áfram Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Ríkið má ekki skorast undan Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Gjaldtaka hins opinbera þarf að vera fyrirsjáanleg Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Bandaríkin 250 ára: frelsi, stjórnarskrá og lærdómur fyrir Ísland Júlíus Valsson skrifar Skoðun Getum við gert enn betur? Já í ágúst Elvar Örn Arason skrifar Skoðun Húsnæðiskaupmáttur Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Hef trú á Arnari Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Börn eiga ekki að bíða meðan kerfið rífst Guðmundur Ármann skrifar Skoðun Júlí - mánuður fötlunarstolts Freyja Haraldsdóttir ,Jana Birta Björnsdóttir skrifar Skoðun Níutíu ár af sameiginlegu öryggi Ragnar Þór Ingólfsson skrifar Skoðun Var þetta sýndarsamráð? Sigurborg Kr. Hannesdóttir skrifar Skoðun Hvað vitum við í ágúst? Staðreyndir og möguleikar Íslands Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Töpum við fullveldinu ef við göngum í ESB? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Samningurinn sem allir hafa lesið skrifar Skoðun UT-mál Reykjavíkurborgar Haukur Arnþórsson skrifar Skoðun Er Ísland tilbúið fyrir dánaraðstoð? Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Þolendur sem vitni í eigin málum Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Maðurinn sem treysti þjóðinni, en ekki lengur Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Mælanlegt sjálfstæði þjóðar Sigurður Friðleifsson skrifar Sjá meira