Lífið

Ber að ofan fyrir Maxim

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Fyrirsætan Irina Shayk prýðir nýjustu forsíðu tímaritsins Maxim en á henni er hún ber að ofan.

Í viðtal við tímaritið segist hún ekki hlusta á neikvæðar raddir og að kærasti hennar, knattspyrnugoðið Cristiano Ronaldo, geri það ekki heldur.

„Mér er sama um skoðanir fólks og kærastanum mínum líka. Sumt fólk elskar þig, sumt fólk hatar þig. Maður verður að vera sterkur,“ segir Irina. Hún elskar starf sitt, sérstaklega vegna þess að það gefur vel í aðra hönd.

„Þetta er vinna fyrir mér, ekki áhugamál. Hvaða hluta af starfinu elska ég mest? Fjárhagslega hlutann. Það að vera sjálfstæð.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.