Varðliðar umhverfisins fyrir jökulmælingar Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 28. apríl 2014 11:00 Hluti af 7. bekk Hvolsskóla skólaárið 2013 til 2014 við skyldustörf nærri Sólheimajökli, ásamt kennara sínum Jóni Stefánssyni sem jafnframt er verkefnisstjóri Grænfánans við skólann. Mynd/úr einkasafni „
Við fengum flott skjal, þetta er mikill heiður,“ segir Sigurlín Sveinbjarnardóttir, skólastjóri Hvolsskóla, um viðurkenninguna Varðliðar umhverfisins sem skólinn fékk fyrir verkefnið Jökulmælingar. Hún tók við þeim í umhverfis- og auðlindaráðuneytinu fyrir skólans hönd, ásamt Jóni Stefánssyni kennara og fulltrúum úr þeim árgöngum sem hafa tekið þátt í verkefninu síðustu ár. Undanfarin haust hefur 7. bekkur Hvolsskóla farið að Sólheimajökli og mælt hversu mikið hann hafi hopað á árinu og fyrsti árgangurinn sem tók þátt í því verkefni er að ljúka 10. bekk í vor. Frá fyrstu mælingu að þeirri næstu hopaði jökullinn um 43 metra, það næsta um 39 metra en síðastliðið haust hafði hann einungis hopað um 8 metra. „Það var mikil ævintýraferð farin síðasta haust því erfitt var að komast að GPS-punktinum sem þurfti að mæla,“ segir Sigurlín og heldur áfram. „Stórt lón hafði myndast fyrir framan jökulsporðinn svo það þurfti að fá björgunarsveitina Dagrenningu til aðstoðar. Hluti hópsins fór í bát en sumir krakkarnir vildu frekar labba og fengu þá viðeigandi búnað til að ganga yfir jökul. Þetta var mjög spennandi.“ Hvolsskóli er eini skólinn á landinu sem hefur tvívegis fengið viðurkenninguna Varðliðar umhverfisins því hann hlaut þau líka árið 2010. Stendur hann sig svona vel í umhverfismálum? „Já, skólinn okkar hefur verið með grænfána frá árinu 2008 og er að gera ýmsa góða hluti í þessum efnum. Á þessu svæði eru einstakar náttúruperlur og fallegir staðir. Það er mikill hvati fyrir okkur því auðvelt er að fyllast áhuga á að fara vel með landið og vernda það. Sjálf er Sigurlín uppalin á Torfastöðum í Fljótshlíð og býr enn í hinni fögru hlíð. Innt í lokin eftir því hversu lengi hún hafi verið skólastjóri Hvolsskóla svarar hún: „Ég hef sinnt því starfi frá árinu 2009 og hef mikinn áhuga á umhverfismálum en kennararnir og krakkarnir eru samt í aðalhlutverki við að sinna þeim. Ég bara reyni að hvetja þau og styrkja og sjá til þess að fjármálin séu í lagi og ramminn í kringum verkefnin.“Um keppninaVerkefnasamkeppnin Varðliðar umhverfisins er haldin á meðal grunnskólabarna í 5. til 10. bekk. Hún var haldin í fyrsta skipti vorið 2007. Það eru umhverfis- og auðlindaráðuneytið, Landvernd og Náttúruskóli Reykjavíkur sem standa að henni.Markmið keppninnar er að hvetja ungt fólk til góðra verka í umhverfisvernd, vekja athygli á sýn ungs fólks á umhverfismál og kalla eftir leiðsögn yngri kynslóðarinnar á því sviði.Nemendum er frjálst að skila inn verkefnum á hvaða formi sem er svo lengi sem þau eru sannarlega unnin af nemendunum sjálfum og umfjöllunarefni þeirra eru umhverfismál í víðum skilningi þess orðs.
Mest lesið Stjörnuleikur Góa og Unnar bjargar Höggi Gagnrýni Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Lífið Góðgerðartreyja til styrktar Ingvari hönnuð af 66° Norður Tíska og hönnun Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Lífið Ranglega greind með MS-sjúkdóm Lífið Tímamót hjá Árna Má Menning Eignaðist barn, missti ömmu sína og erfði púðlusafnið Menning Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Lífið Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Lífið Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Lífið Fleiri fréttir Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Örn Árnason fimmti keppandinn í Taskmaster Sjá meira