„Hæfileikaríkustu kvikmyndagerðarmennirnir hafa áhuga á mér“ 28. apríl 2014 22:00 Jared Leto Vísir/Getty
Jared Leto segir að þótt að Óskarsverðlaunin sem hann fékk í síðasta mánuði fyrir hlutverk sitt í kvikmyndinni Dallas Buyers Club hafi opnað fyrir honum dyr í Hollywood, sé hann ekki of upptekinn af styttunni sjálfri. „Ég skemmdi styttuna aðeins. En svo kom ég heim og sá að það sá heilmikið á henni. Þannig að það hafa einhverjir verið að leika sér með hana. Styttan mín er eiginlega orðin frekar illa farin. Það voru allir að snerta hana. Ég var bara að láta hana ganga í partíum. Stundum týndi ég henni og hugsaði bara, ef hún kemur ekki aftur, þá á það bara að vera svoleiðis. En hún fann mig reyndar alltaf aftur.“ Leto er um þessar mundir að kynna nýja heimildamynd sem hann leikstýrði um baráttuna sem hljómsveitin hans, 30 Seconds to Mars, háði við plöturisa um samninginn þeirra, en sú barátta endaði í lögsóknum upp á háar fjárhæðir. Myndin heitir Artifact og kom út á iTunes á laugardaginn. Hinn 42-ára Leto segir velgengnina í kringum Dallas Buyers Club hafa endurvakið áhuga hans á að leika, vegna þess að nú hefðu hæfileikaríkustu kvikmyndagerðarmennirnir áhuga á honum. „Já, þannig að ég er að líta á handrit og lesa handrit. Sem er áhugavert því að ég las ekki handrit í mörg ár fyrir Dallas Buyers Club. En núna hef ég tækifæri til að vinna með fólki sem ég ber mikla virðingu fyrir og lít upp til. Fólk sem hefur gert bíómyndir sem hafa raunveruleg áhrif.“ Leto hefur leikstýrt mörgum af tónlistarmyndböndum sveitarinnar sinnar. Hann leikstýrði Artifact undir nafninu Bartholomew Cubbins. Og hann langar til þess að leikstýra kvikmyndum í fullri lengd. „Ég held að það væri ótrúlega gaman. Og þegar ég hef réttu söguna til að segja, þá mun ég klárlega gera það. Ég kom mér inn í þennan furðulega bransa því að ég hafði áhuga á að búa til kvikmyndir og leikstýra. Ég var í listaháskóla að læra að mála myndir. Og svo skipti ég um aðalfag og fór að læra kvikmyndagerð og hætti til þess að fara að leika því ég hélt að það myndi hjálpa mér að verða leikstjóri.“
Mest lesið Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Lífið Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Lífið „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Lífið Harry Styles setti heimsmet Lífið Það allra besta að gráta í gufu Lífið Geirvörtur og latex vekja athygli í París Tíska og hönnun Listabarn á leiðinni Lífið Stjörnulífið: Bátsferðir og brjóst Lífið Baðst afsökunar á að hafa sagst vilja ríða Minogue Lífið Birtu fyrstu myndina af Mette-Marit eftir aðgerðina Lífið Fleiri fréttir „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Harry Styles setti heimsmet Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Það allra besta að gráta í gufu Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Listabarn á leiðinni Kenningin um útskiptin miklu sem umbreytti vestrænum stjórnmálum Snæfríður og Högni selja útsýnisíbúð í 101 Baðst afsökunar á að hafa sagst vilja ríða Minogue Pétur Jóhann á von á öðru barnabarni Birtu fyrstu myndina af Mette-Marit eftir aðgerðina Stjörnulífið: Bátsferðir og brjóst Rauðhærðasti Íslendingurinn fundinn Stjörnum prýddur gestalisti Swift og Kelce Krakkatía vikunnar: Tindur, stríð og letibikkja Melabúðin fagnar sjötíu árum „Þú ert greinilega manneskja sem hefur strögglað mikið andlega“ „Það er gaman að gera erfiða hluti“ Taylor Swift og Travis Kelce eru gift Eins og að vera með kláða sem hverfur aldrei „Erum enn að ná utan um allt sem gerðist“ Fréttatía vikunnar: EBU, aftaka og Love Island „Klukkan er fimm einhvers staðar“ „Þegar þið eignist ykkar fyrsta barn, má ég þá fá það?“ Snæddi með furstanum af Mónakó Kyssti ekki Maguire heldur tottaði rafrettu Allir og amma þeirra á Ítalíu Brúðkaupshátíð Taylor Swift og Travis Kelce hafin Bubbi, Herra og þeir allra rauðhærðustu á Írskum dögum Helga Þóra og Óli Sig ástfangin á Grikklandi Sjá meira