Skapa raunveruleg verðmæti úr engu Baldvin Þormóðsson skrifar 15. maí 2014 13:00 Nemendurnir hafa stórar hugmyndir um fiskeldi. vísir/stefán „
Verkefnið snýst um að fullnýta bleikjuna en um 43 prósentum fisksins er fargað í dag,“ segir Halldóra Ársælsdóttir en hún vinnur að áhugaverðu verkefni í Háskólanum í Reykjavík ásamt systur sinni Guðbjörgu Erlu Ársælsdóttur, Hrannari Guðmundssyni, Bergi Ástráðssyni, Snorra Níelssyni og Birki Helgasyni. „Við þekktum aðeins inn á fiskeldi og höfum séð vannýtingu á bleikjunni,“ segir Halldóra en systurnar sáu sér þá tækifæri í vannýtingunni. „Við fáum sem sagt afskornu dálkana, hryggjarsúlu bleikjunnar, tökum kjötið og búum til bleikju-paté úr því,“ segir Halldóra. Hópurinn er strax kominn af stað með verkefnið og hefur nú þegar framleitt nokkrar frumgerðir patésins. Hönnuðurinn Helga Dögg Ólafsdóttir hannaði umbúðirnar. „Núna erum við að skoða réttu hráefnin og hvert besta framleiðsluferlið sé upp á endingartíma og þvíumlíkt,“ segir Guðbjörg Erla en stefnt er að því að koma patéinu á almennan markað eftir átta mánuði ef allt gengur eftir. „Við erum að vinna uppskriftina með kokkum og matvælafræðingi og erum búin að finna skemmtilega leið til þess að reykja bleikjuna. Við viljum að þetta sé hágæðavara,“ bætir Halldóra við.Læra að vera frumkvöðlar Verkefnið er hluti af þverfaglegum nýsköpunaráfanga í HR en sjálf lærir Halldóra sálfræði, Guðbjörg viðskiptafræði og strákarnir fjórir verkfræði en einn þeirra, Birkir Helgason, hafði kynnt sér svipaða starfsemi í Noregi. „Það eru dæmi um svona framleiðslu í Noregi þar sem menn vinna mikið með lax en þeir eru komnir á það stig að aukaafurðirnar eru farnar að skila meiri tekjum en flökin sem upphaflega voru seld,“ segir Birkir. „Draumurinn er að geta fullnýtt fiskinn eftir tíu eða tuttugu ár,“ segir Guðbjörg. „Þá væri kannski hægt að nýta hann í framleiðslu snyrtivara eða olía. Það er hægt að skapa fullt af raunverulegum verðmætum úr þessu hráefni sem er ekki nýtt.“
Mest lesið Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Lífið Ranglega greind með MS-sjúkdóm Lífið Sahara Ray látin Lífið Verður að geta hent sér í hnébeygju Tíska og hönnun Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Lífið Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Lífið Hvað veistu um… Nylon? Lífið Norðmenn hrepptu öll verðlaun Norðurlandaráðs Menning Diljá Mist á lausu Lífið Sagður hafa valið sjálfan sig til að troða upp á Ofurskálinni Tónlist Fleiri fréttir Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Örn Árnason fimmti keppandinn í Taskmaster „Þvílík gleði með þennan tíma“ Fluttur í annað fangelsi eftir fréttir af lúxuslífi og slagsmálum Sveitadraumurinn breyttist í martröð Drukku brjóstamjólk á brúðkaupsdaginn Fréttatía vikunnar: Mistök, oflæti og vélmenni Þrengt að sjoppum og skemmtistöðum á meðan borgin breytist í eitt stórt hótel Sjá meira