Það hafa ýmsir lent í Þjóðhátíðarnefnd Baldvin Þormóðsson skrifar 15. maí 2014 13:30 Baggalútsmenn voru aðeins of fljótir á sér að semja þjóðhátíðarlagið. „
Okkur var nú bara svo mikið í mun að fá að spila á Þjóðhátíð,“ segir Karl Sigurðsson, söngvari Baggalúts, en hljómsveitin samdi óvart þjóðhátíðarlag á dögunum. „Við höfum aldrei fengið að spila áður á Þjóðhátíð, þannig að við erum búnir að bíða í tíu ár eftir tækifærinu,“ segir Karl. „Það bara varð óvart til þjóðhátíðarlag af tilefninu, við erum svona að pæla hvað við eigum að gera við það núna,“ segir tónlistarmaðurinn og bætir því við að þetta hafi gerst allt frekar hratt. „Það er nú Bragi Valdimar sem á lagið. Án þess að vilja gera lítið úr textahöfundinum þá semja þessir textar sig eiginlega sjálfir. Þegar maður er að fjalla um Heimaey og brekkusöng þá raðast þetta heppilega vel saman,“ segir Karl en þjóðhátíðarlag strákanna er meira og minna klárt. „Ég held að við eigum ekki annarra kosta völ en að leyfa fólki að heyra það,“ segir söngvarinn. „Ef við þorum að taka þetta á hátíðinni, mér skilst að það hafi ýmsir lent í þjóðhátíðarnefnd þannig að maður veit ekki hverju maður á að eiga von á,“ segir Karl en eins og kunnugt er þá skipaði nefndin tónlistarmanninn Jón Jónsson til þess að semja þjóðhátíðarlagið í ár. „Við vonum bara að allir taki þessu vel. Það er bara gaman að hafa fleiri en eitt þjóðhátíðarlag.“
Mest lesið Ranglega greind með MS-sjúkdóm Lífið Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Lífið Sahara Ray látin Lífið Verður að geta hent sér í hnébeygju Tíska og hönnun Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Lífið Sagður hafa valið sjálfan sig til að troða upp á Ofurskálinni Tónlist Hvað veistu um… Nylon? Lífið Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Lífið Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Lífið Norðmenn hrepptu öll verðlaun Norðurlandaráðs Menning Fleiri fréttir Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Örn Árnason fimmti keppandinn í Taskmaster „Þvílík gleði með þennan tíma“ Fluttur í annað fangelsi eftir fréttir af lúxuslífi og slagsmálum Sveitadraumurinn breyttist í martröð Drukku brjóstamjólk á brúðkaupsdaginn Fréttatía vikunnar: Mistök, oflæti og vélmenni Þrengt að sjoppum og skemmtistöðum á meðan borgin breytist í eitt stórt hótel Sjá meira