Segir Snorra Stein besta leikstjórnandann í frönsku deildinni Tómas Þór Þórðarson skrifar 23. desember 2014 15:45 Snorri Steinn skorar og skorar. mynd/sa-hb.fr
Snorri Steinn Guðjónsson hefur farið á kostum með Sélestat í frönsku 1. deildinni í handbolta á sínu fyrsta tímabili með liðinu. Þrátt fyrir frammistöðu hans er liðið í fallsæti eftir fjórtán umferðir, en það hefur glímt við mikil meiðslavandræði. Það vann þó sterkan sigur á Cesson-Rennes, 31-27, í síðustu umferð fyrir HM-fríið og er nú aðeins einu stigi frá öruggu sæti. Snorri Steinn skoraði fimm mörk í þeim leik, en í heildina er hann búinn að skora 97 mörk í fjórtán leikjum sem gera rétt tæp sjö mörk í leik.Snorri hefur skorað 67 mörk í 135 skotum sem er skotnýting upp á rétt tæp 50 prósent og þá hefur hann nýtt 31 af 41 vítaköstum sem gerir 75 prósent vítanýtingu. Í heildina er skotnýting hans 55 prósent. Yérime Sylla, þjálfari Sélestad, er bjartsýnn fyrir seinni hluta leiktíðarinnar þrátt fyrir stöðu liðsins enda er hann að fá menn til baka úr meiðslum og þá hefur hann Snorra Stein. „Undirbúningurinn verður ekki eins núna og fyrir tímabilið,“ sagði Sylla um HM-fríið á heimasíðu Sélestat. „Nýju leikmennirnir eru komnir betur inn í þetta og svo er [Snorri Steinn] Guðjónsson besti leikstjórnandinn í deildinni.“
Handbolti Mest lesið Stöðvaði leikinn og skutlaði sér á eftir gæs Íslenski boltinn Andri Lucas svaraði fautaskap með marki Enski boltinn Harðvítugar deilur og tómur völlur hjá nýju liði Alberts Fótbolti „Stundum þarftu smá löðrung til að fara í fimmta gírinn“ Sport Leitar að áhugamanni til að vinna Littler Sport Arsenal sótti þrjú stig í hitaleik Enski boltinn „Við höfum óbilandi trú á okkur sjálfum “ Handbolti Alþjóðadómarinn verður yfirþjálfari Íslenski boltinn „Höfðum engu að tapa um leið og þær komast í 1-0“ Fótbolti Hjörtur og Kolbeinn unnu þriðja leikinn í röð Fótbolti Fleiri fréttir „Við höfum óbilandi trú á okkur sjálfum “ Uppgjörið: HK - ÍR 18-20 | Tæpur sigur ÍR í Kópavoginum Haukar á flugi Sautján mörk Gunnars dugðu skammt Fram á toppinn og flautumark á Selfossi Haukur leiddi endurkomu Löwen Danskt stórlið búið að klófesta Elínu Klöru ÍBV samdi við bandarískan hermann „Pirraðastur er ég yfir þessum tíu lokamínútum“ Uppgjörið: Afturelding - FH 33-33 | Allt jafnt eftir háspennuleik Þórsarar komnir á blað Sextán íslensk mörk í Meistaradeildinni Kanalausir Eyjamenn unnu Suðurlandsslaginn Reynir að skáka og máta „einn efnilegasta þjálfara í heimi“ ÍBV fær bandarískan liðsauka Íslendingaliðin ekki í vandræðum í Meistaradeildinni Fullkomin skotnýting Bjarka Más í spennutrylli Meistaradeildin spiluð með nýju fyrirkomulagi Guðjón Valur með augastað á landsliðsmanni Íslands ÍBV hreppir Magnús Dag frá KA „Eru og voru ekki mínir bestu vinir“ Aron og Kúveit redda strákunum okkar eftir svik Egypta Tveir nýliðar í landsliðshópnum Hættur hjá danska landsliðinu eftir samskipti við unga leikmenn Freyr frábær í stórsigri á ÍBV Varamaður Ómars hetja Magdeburgar Skoraði fimmtán mörk Díana og Elín Rósa töpuðu í Meistaradeildinni Afturelding vann síðari hálfleikinn sem var leikinn tveimur dögum eftir þann fyrri Skoraði fimmtán mörk fyrir Guðjón Val Sjá meira