Þórir búinn að missa aðalmarkvörðinn sinn Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 10. desember 2014 18:15 Kari Aalvik Grimsbö. Vísir/AFP
Þórir Hergeirsson, þjálfari norska kvennalandsliðsins þurfti að gera breytingar á hópnum sínum strax í upphafi Evrópumótsins eftir að norska liðið varð fyrir áfalli strax í fyrsta leik. Markvörðurinn Kari Aalvik Grimsbö reif liðþófa í hné í sigri á Rúmeníu og verður ekki meira með á Evrópumótinu í Ungverjalandi og Króatíu. Grimsbö tók við aðalmarkvarðarstöðunni af Katrine Lunde Haraldsen, sem er í barnseignarfríi á þessu Evrópumóti. Þórir er því án tveggja bestu markvarða sinna. Grimsbö varði 48 prósent skotanna sem á hana komu (12 af 25) í þessum eina leik sínum á EM 2014 en hún er eins og er efst á listanum yfir bestu markvörsluna á Evrópumótinu. „Ég fann fyrir þessu fyrst í upphafi leiksins og svo varð þetta alltaf verra og verra. Ég var búinn að leggja mikið á mig til að vera klár í þetta mót og þetta er því mjög svekkjandi," sagði Kari Aalvik Grimsbö við norska blaðamenn þegar hún hitti þá á hækjum eftir sigur Norðmanna í gær. Silje Solberg tók stöðu Grimsbö í markinu og er með 42 prósent markvörslu í fyrstu tveimur leikjunum en norsku stelpurnar eru búnar að vinna örugga sigra á Rúmeníu (27-19) og Úkraínu (34-23). Þórir Hergeirsson er búinn að kalla í annan markvörð en það er Emily Stang Sando. Sando er einmitt varamarkvörður Kari Aalvik Grimsbö hjá danska liðinu Esbjerg. Næsti leikur norska liðsins er á móti Danmörku á morgun en þetta er úrslitaleikur um sigurinn í riðlinum.
Handbolti Mest lesið Rúllaði um gólfið í fanginu á dómaranum Körfubolti 76 prósent leikmanna kjósa Miðflokk eða Sjálfstæðisflokk Íslenski boltinn Biðlar til lýsenda sonar síns vegna Enski boltinn Gaf heila eiginmannsins og hann var með CTE Sport Besta-spáin 2026: Enginn afsláttur Íslenski boltinn Fjórtán ára þjóðhetja eftir að hann stal miða eins besta markvarðar heims Fótbolti Metfjöldi norrænna kylfinga á Masters og Ísland gæti bæst í hópinn Golf Svona var kynningarfundur Bestu deildar karla Íslenski boltinn „Í hausnum á mér er ég orðinn þessi maður“ Sport Wirtz segir Van Dijk hafa haft rangt fyrir sér Fótbolti Fleiri fréttir „Allt of margir leikmenn sem þurfa að stíga upp“ „Þetta er margfræg klisja“ „Tel mig vera rosalegan stemningskarl“ Uppgjörið: FH - Haukar 27-21 | Hafnarfjörður er hvítur í bili Íslendingaliðið áfram eftir frábæran sigur Stórleikur Kristjáns dugði skammt Uppgjörið: Valur - KA 39-21 | Algjör slátrun á Hlíðarenda „Þeir refsa fyrir öll mistök og þeir refsuðu vel í dag“ Viggó fer til Flensburg Kraftaverkið í Barcelona: „Næst er ég undir öllu Haukaliðinu“ Gísli með sjö stoðsendingar þegar Magdeburg endurheimti sjö stiga forskot Stórleikur Hauks dugði ekki til sigurs Goðsögn hleður Guðjón Val og Gummersbach lofi Díana Dögg innsiglaði deildarmeistaratitil í toppslag Stjarnan og Hörður berjast um sæti í Olís deildinni Viktor með flottan leik og Börsungar halda áfram að valta yfir deildina Lið Donna byrjar úrslitakeppnina vel Bjarki í úrslitaeinvígið í Ungverjalandi Hafdísi blöskraði valið: „Konur sem fá ekki blómin sem þær eiga skilið“ Orri öflugur en staða Sporting viðkvæm Elín Klara markahæst og undanúrslit blasa við Naumt forskot hjá Janusi og félögum Uppgjörið: Haukar - Afturelding 32-24 | Hafnfirðingarnir sendu Aftureldingu í sumarfrí Óttaðist endalokin fyrir þrettán árum Fram skildi ÍR eftir og mætir Val í undanúrslitum Stjarnan og Grótta spila upp á sæti í efstu deild Haukar áfram í undanúrslit en Akureyringar í sumarfrí Birgir markahæstur í óvæntum sigri Danir að þvælast fyrir viðræðum HSÍ við Snorra og Arnór? „Styttist í fréttir“ Í afar erfiðum málum eftir stórt tap Sjá meira