Innlent

Búið að opna Bröttu­brekku

Stefán Árni Pálsson skrifar
Þæfingsfærð á Bröttubrekku.
Þæfingsfærð á Bröttubrekku. vísir
Búið er að opna fyrir umferð um Bröttubrekku en ófært var þar um í morgun. Þar er aftur á móti Þæfingsfærð.

Hálkublettir eru á Hellisheiði. Hálka er á Sandsskeiði og Þrengslum og á flestum leiðum á Suðurlandi.

Hálka á Holtavörðuheið  og víða á Vesturlandi. Á Vestfjörðum er víða snjóþekja eða hálka. Þæfingsfærð er á Ennishálsi.

Á Norðurlandi vestra er víða hálka og skafrenningur og snjókoma á stöku stað. Þæfingsfærð og éljagangur er á Þverárfjalli. Ófært er yst á Siglufjarðarvegi.

Norðaustanlands er hálka á Öxnadalsheiði.  Annars er yfirleitt snjóþekja eða hálka á vegum og víða ofankoma.  Nú er búið að opna Ólafsfjarðarmúla og er þar snjóþekja og ennþá snjóflóðahætta. Hálka er á Mývatnsöræfum en hálkublettir og éljagangur er á Möðrudalsöræfum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×